Fréttablaðið - 05.08.2005, Side 13
FÖSTUDAGUR 5. ágúst 2005 13
NÍGERÍA
PEKING, AP Bandaríkjamenn vilja fá
nákvæmar upplýsingar um hvað
Norður-Kóreumenn muni sam-
þykkja í viðræðum um kjarnorku-
afvopnun sem sex þjóðir taka þátt
í. Bandaríkjamenn segjast hafa
gert allt sem í þeirra valdi standi
til að ná ásættanlegum markmið-
um með viðræðunum en óttast að
þær muni engu skila. Viðræðurnar
hafa staðið yfir í tíu daga og Norð-
ur-Kóreumenn hafa ekki enn sam-
þykkt að undirrita samkomulag
sem allar hinar fimm þjóðirnar
hafa þegar undirritað. Ekki hefur
enn verið gefið upp hvað sam-
komulagið felur í sér.
Viðræðurnar eru þær fjórðu í
röðinni frá 2003 en enn hafa þær
engan árangur borið.
Kim Kye Gwan, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Norður-Kóreu og
helsti fulltrúi landsins í kjarnorku-
afvopnunarviðræðunum, sagði á
þriðjudag að Norður-Kóreumenn
myndu ekki eyða kjarnorkuvopn-
um sínum fyrr en ekki væri lengur
hætta á því að Bandaríkjamenn
gerðu kjarnorkuárás á Norður-
Kóreu. - sda
AÐSTOÐARUTANRÍKISRÁÐHERRA NORÐUR-
KÓREU Kim Kye Gwan, fulltrúi Norður-
Kóreu í kjarnorkuafvopnunarviðræðunum.
Norður-Kóreumenn eru ein sex þjóða sem
ekki hafa enn undirritað samkomulag um
kjarnorkuafvopnun.
Viðræður um kjarnorkuafvopnun:
Nor›ur-Kóreumenn flráast enn vi›
Kona í flugvél:
Reyndi a›
opna dyr
BANDARÍKIN, AP Kona var handtekin
í Bandaríkjunum fyrir að gera til-
raun til þess að opna dyr flug-
vélar meðan hún var enn á flugi.
Vélin var í fjögur þúsund feta
hæð og á leið inn til lendingar í
Seattle þegar atvikið átti sér
stað, að því er AP-fréttastofan
skýrir frá. Konunni tókst ekki
að opna dyrnar en tókst að snúa
handfanginu nægilega langt til
að viðvörunarljós kviknaði í
stjórnklefa flugvélarinnar.
Flugþjóni tókst að sannfæra
konuna um að snúa til sætis síns
en farþegar sátu með beltin
spennt það sem eftir var ferðar-
innar. ■
Sprenging í Istanbúl:
Tveir létust
TYRKLAND, AP Tveir létust og fleiri
slösuðust í sprengingu í Istanbúl
í Tyrklandi skömmu eftir mið-
nætti aðfaranótt fimmtudags.
Fregnum um orsök spreng-
ingarinnar ber ekki saman.
Vitni segja að sprengingin hafi
orðið í ruslatunnu í vegkanti en
önnur að bíll hafi sprungið í loft
upp.
Nokkrar sprengjutilræði
hafa verið gerð í Tyrklandi að
undanförnu og kenna sumir
kúrdískum öfgahópum um en
aðrir segja að íslamskir öfga-
hópar beri ábyrgðina. ■
debenhams
debenhams
S M Á R A L I N D
Síðustu
Nú eru allar útsöluvörur með a.m.k.
50% afslætti
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
90
68
08
/2
00
5 2 1fyrir
Af allri útsöluvöru - greitt er fyrir dýrari vöruna
Mun
ið gö
tuma
rkað
inn!
dagar
útsölu
SKÓLAVÖRÐUSTIG 2
Bresk stjórnvöld:
Seldu Ísraelum
flungt vatn
LONDON, AP Bretar seldu Ísraelum
á sjötta áratugnum nauðsynleg
efni til að smíða kjarnorku-
sprengju. Þetta kemur fram í
opinberum skjölum sem BBC
hefur undir höndum.
Í þættinum Newsnight í
breska ríkissjónvarpinu kom
fram að samkvæmt opinberum
skjölum frá árinu 1959, sem
geymd eru á þjóðskjalasafninu,
sendu Bretar tuttugu tonn af
þungu vatni til Ísrael. Vatnið
var nauðsynlegt til þess að
framleiða plútóníum fyrir
Dimona-kjarnakljúfinn í Negev-
eyðimörkinni.
Þessar upplýsingar koma illa
við bresk stjórnvöld, sem eru nú
að reyna að semja við Írani um
að hætta við kjarnorkuáætlun
sína. ■
11,5 TONN AF FÍKNIEFNUM
BRENND Fíkniefnalögreglan í
Nígeríu hefur brennt ellefu og
hálft tonn af eiturlyfjum nærri
alþjóðaflugvellinum í Lagos.
Tilgangurinn er að sýna opin-
berlega hvernig gengur í bar-
áttu við eiturlyfjabarónana, en
stór hluti fíkniefna í heiminum
fer í gegnum Nígeríu á leiðinni
til áfangastaðar.