Fréttablaðið - 05.08.2005, Side 16
Göngugarparnir Bjarki Birgisson
og Guðbrandur Einarsson komu til
Reykjavíkur í gær og luku þar með
46 daga hringferð sinni um landið.
„Þetta hefur ekki verið svo erfitt
líkamlega en það reynir á þolrifin
að vera svona lengi frá sínu fólki,“
sagði Guðbrandur þegar þeir komu
að Rauðavatni klukkan hálf fjögur í
gær og lokuðu hringnum.
Bjarki neitaði því ekki að ferðin
hafi tekið á, enda var skóþvengur
hans til merkis um það en hann var
tættur mjög. „Þetta er ellefta parið
sem ég eyði í ferðinni en Guðbrand-
ur hefur aðeins eytt þremur,“ upp-
lýsti Bjarki blaðamann um.
Þeir göngugarpar sögðust vera
himinlifandi með viðtökurnar sem
þeir hlutu víða um land. Reykvík-
ingar létu ekki sitt eftir liggja í
þeim efnum og var slegið til veg-
legrar móttökuveislu við Ingólfs-
torg klukkan fimm í gær og voru
tæplega tvö hundruð manns við-
staddir. Þar héldu Árni Magnússon
félagsmálaráðherra og Alfreð Þor-
steinsson borgarfulltrúi ræður
ásamt fleirum og kórinn Blikandi
stjörnur söng göngugörpunum til
heiðurs.
Hvað tekur við hjá þeim að þess-
ari göngu lokinni? „Ég verð að fara
að huga að nuddstofunni minni. Svo
ætla ég að bregða mér í sveitina og
moka skít og skipta um þök á fjár-
húsum,“ sagði Guðbrandur, og var
greinilega ekki úr sér genginn.
Bjarka bíða mörg verkefni en
hann ætlar að vinna að barnabók
sem hann mun gefa út í vetur og svo
ætlar hann að setjast á skólabekk.
Þó sagðist hann umfram allt ætla að
vara sig á því að fara ekki á næst-
unni í nudd til Guðbrands þar sem
hætta væri á að þá myndu þeir fé-
lagar eggja hvorn annan upp í ein-
hverju öðru eins brjálæði og að
ganga í kringum landið. Það var
einmitt í nuddtíma hjá Guðbrandi
sem þessi hugmynd þeirra að göng-
unni kviknaði.
Annars segja þeir félagar sam-
komulagið vera hið þokkalegasta.
„Við ætlum þó að taka frí hvor frá
öðrum frá og með morgundegin-
um,“ sagði Bjarki en var þá minntur
á að þeir félagar voru búnir að lofa
því að koma fram í sjónvarpsþætti
saman svo ekki yrði af þessu fríi
strax.
jse@frettabladid.is
„Það er allt gott að frétta og ég hef haft það rosalega fínt í sumar,“
segir Birna Björnsdóttir danskennari. Birna eignaðist sitt þriðja barn á
dögunum og nýtur þess að vera móðir í þriðja sinn. „Ég er bara búin
að vera hérna heima í sumar og reyni að njóta veðursins þegar hægt
er. Ég var reyndar kominn á fremsta hlunn með að panta ferð fyrir alla
fjölskylduna til Spánar en svo lagaðist veðrið í lok júlí og það bjargaði
málunum,“ segir hún létt í bragði.
Birna getur ekki beðið eftir að byrja aftur að kenna dans, enda hefur
hún varla tekið sporið síðan hún dansaði kasólétt yfir Eurovision. „Ég
er á fullu við að undirbúa dansskólann fyrir haustið og setja upp sýn-
ingar. Ég vona að haustið verði frábært,“ segir Birna, sem finnst lítil
ástæða til þess að hægja mikið á sér þótt hún sé nýbúin að eignast
barn. „Það má segja að ég sé mjög virk kona,“ segir hún og hlær.
Birna á reyndar enn smá sumarfrí inni og segir ekki loku fyrir það skotið
að hún reyni að líta út á land og kíkja í sumarbústað eða í heimsókn til
vina. „Ég get í það minnsta alltaf dansað heima ef fráhvarfseinkennin
verða of mikil. Það er mikið dansað á heimilinu og það æfa allir, nema
kannski maðurinn minn en hann fylgist vel með okkur. Ég sé þó til þess
að hann sé nógu liðtækur til þess að geta tekið sporið við mig af og til.“
16 5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
SKÓLAVÖRÐUSTIG 2
Dansar um me› n‡fæddan son
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? BIRNA BJÖRNSDÓTTIR DANSKENNARI
nær og fjær
„Mi›a› vi› flessi laun
sem flau eiga a› njóta
eru flau 117 prósent
undir lágmarkstaxtan-
um hjá mér.“
GUÐBRANDUR EINARSSON, FOR-
MAÐUR VERSLUNARMANNAFÉLAGS
SUÐURLANDS, Í FRÉTTABLAÐINU.
„fiví mi›ur er enginn
nornaskóli til á Íslandi,
en vi› höfum leitt hug-
ann a› flví a› bæta úr
flví einn gó›an ve›ur-
dag.“
EYRÚN SKÚLADÓTTIR OG EVA
HAUKSDÓTTIR, VERSLUNARKONUR OG
NORNIR, Í MORGUNBLAÐINU.
OR‹RÉTT„ “
Ætla a› taka sér frí hvor frá ö›rum
Eftir 46 daga og fjórtán skópör komu þeir félagar Bjarki og Guðbrandur til Reykjavíkur í gær og luku þar
með hringferð sinni um landið. Svo var haldið á Ingólfstorg þar sem hátíð var haldin þeim til heiðurs.
KOMNIR HEIM MEÐ SLITNA SKÓ
Ellefta skóparið sem Bjarki notaði á ferð-
inni var illa farið þegar hann kom á enda-
stöð í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SÍÐUSTU SKREFIN Félagarnir luku
göngu sinni loks í gær, 46 dögum
eftir að þeir lögðu af stað.