Fréttablaðið - 05.08.2005, Side 28
KÍNAKÁLSSALAT MEÐ STEINSELJUPESTÓI
1 kínakálshöfuð, meðalstórt
3-4 tómatar, þroskaðir
1/2 gúrka
100 g fetaostur
1 knippi steinselja
2 hvítlauksgeirar
2 msk. furuhnetur
3 msk. nýrifinn parmesanostur
Rifinn börkur af 1/2 sítrónu
100 ml ólífuolía
Pipar
Salt
1 dós hrein jógúrt
Skiptið kálinu í blöð og takið nokkur fallegustu blöðin frá - best er að þau séu sem
jöfnust að stærð. Raðið þeim á fat. Saxið afganginn af kálinu smátt. Skerið tómatana í
geira eða bita og gúrkuna í litla bita. Blandið káli, gúrku og fetaosti saman í skál. Fjar-
lægið stönglana af steinseljunni en setjið blöðin í matvinnsluvél eða blandara, ásamt
hvítlauk, furuhnetum, parmesanosti og sítrónuberki. Látið ganga þar til allt er orðið að
mauki. Þeytið þá olíunni saman við og kryddið með pipar og salti eftir smekk. Blandið
helmingnum af pestóinu saman við jógúrtina, hellið yfir grænmetið í skálinni og bland-
ið vel. Hrúgið svo blöndunni á salatblöðin. Dreypið afganginum af pestóinu yfir eða
berið það fram með salatinu.
Egg
Til að athuga hvort egg sé harðsoðið eða ekki er gott að leggja það á eldhúsbekkinn
og ýta við því þannig að það snúist hring eftir hring eins og skopparakringla. Ef eggið
snýst vandræðalaust er það harðsoðið en ekki ef það stoppar eða vagar til og frá.[ ]
Sérlega gott í súpur
LAX MEÐ BATENJAN BE THINI
EÐA LÍBÖNSKU TILBRIGÐI AF
EGGALDIN Í TAHINI
2-3 miðlungsstór eggaldin
2 hvítlauksrif
Safi úr einni sítrónu
Salt
3-5 msk. tahini
3-4 msk. extra virgin græn ólífuolía
Myntulauf
1 laxaflak
2-3 msk. maldon salt
Hickory viðarspænir
Eggaldinið grillað á öllum hliðum
í 45 til 60 mínútur eða þangað til
það er mjúkt og vel soðið. Áður en
eggaldinið fer á grillið þarf að
stinga í það nokkur göt með gaffli
því annars springur það með
hvelli. Þegar eggaldinið hefur
kólnað aðeins er hýðið tekið utan
af og það síðan kramið mjög vel
með kremjara eða botni á glasi
þangað til það er orðið að mauki.
Tahini bætt út í miðast við stærð
eggaldisins. Sítrónunni og ólífu-
olíunni síðan bætt við og hvít-
lauksrifin pressuð út í og hrært
þangað til allt hefur blandast vel.
Saltað eftir smekk. Maukið er
fært yfir á grunnan disk og pínu-
lítilli ólífuolíu hellt yfir og nokkur
myntulauf sett í miðjuna til
skrauts.
Laxinn er þakinn maldon-salti
og grillaður á grillgrind fyrir fisk
á miðlungsheitu grilli í örskamma
stund. Gott er að pensla teinana
fyrst með pínulítilli olíu. Síðan er
spæninum bætt á grillið og hitinn
minnkaður eins og mögulegt er og
fisknum leyft að reykjast í fimm
til tíu mínútur á hvorri hlið, alls
ekki of lengi. Með þessu er gott að
bera fram basmati eða jasmin
hrísgrjón og létt grænt salat með
myntulaufum og einfaldri dress-
ingu úr ólífuolíu og sítrónu.
Batenjan be thini eða eggaldin í
tahini er stundum borið fram sem
hliðardiskur en má einnig nota
arabískt brauð, stundum nefnt
pítubrauð, skera það í þríhyrning
og dýfa út í.
Sachtein - verði ykkur að góðu.
Líbanskur lax með eggaldin í tahini
Hrafnhildur Gunnarsdóttir hefur orðið fyrir arabískum áhrifum og þá sérstaklega líbönskum,
eins og sést glögglega í þessari uppskrift.
Rauðvín frá Suður-Afríku hafa ver-
ið mjög vinsæl á Íslandi síðustu ár
en þaðan koma einnig frísk
ávaxtarík hvítvín, oft blönduð vín
úr dæmigerðum þrúgum heima-
manna. Þau eru jafnan þurr og
grösug og svona í léttari kantinum.
Pearly Bay Dry White er frískandi
vín með ilmi af sumarblómum og
nýslegnu grasi. Ávaxtaríkt með vott
af sítrónum í eftirbragði. Afbragðs
gott eitt og sér eða með léttum
réttum, s.s. brauði, osti og salati.
Tilvalið sumarvín sem er með
ódýrustu kassavínum.
Verð í Vínbúðum 2.990 kr.
Bláberin sem fást í verslunum núna eru
stór og safarík.
Himneskur
bláberjaís
Útlendu bláberin sem fást í versl-
unum núna eru stór og safarík og
góð til að stífa úr hnefa. Þau henta
þó að sjálfsögðu vel í alla matar-
gerð og Ásgeir Sandholt kondi-
torímeistari notar þau gjarnan í
ísrétti. Hér er uppskrift að ljúf-
fengu bláberjagelato eins og Ás-
geir gerir það.
BLÁBERJAGELATO
fyrir ca 4-6
400 g mjólk
200 g rjómi
4 eggjarauður
165 g sykur
300 g fersk bláber
safi úr sítrónu (eftir smekk)
Aðferð: Hitið mjólk, rjóma og sykur í
potti að suðu og bætið upphrærðum
eggjarauðum saman við. Sigtið strax í
kalda skál og setjið til hliðar.
Maukið bláberin algerlega í matvinnsluvél
og sigtið í fínu sigti. Blandið maukinu
saman við heitt eggjakremið og kælið.
Frystið í ísvél eða frystikistu í nokkrar
klukkustundir og hrærið rösklega 3-4
sinnum á klukkutíma fresti. Frystið svo
yfir nótt. Til að ísinn verði fullkomlega
mjúkur og laus við alla ískristalla er mjög
gott að losa hann úr skálinni meðan
hann er vel frosinn og skera í bita og
keyra í gegnum matvinnsluvél.
Þá er hann settur í box í frysti. Takið ísinn
úr frystinum klukkutíma áður en hann er
borinn fram og hafið í kæli. Berið svo
fram með ferskum bláberjum og myntu.
PEARLY BAY:
Frísklegt hvítvín frá S-Afríku Íslenska kínakálið getur verið
aðaluppistaða í réttum og er
gott í salöt.
Nýtt íslenskt kínakál fæst nú í
verslunum. Það hentar vel í salöt
af ýmsu tagi en það er ekki síður
gott að léttsteikja það og nota í
ýmsa austurlenska rétti. Það
getur verið aðaluppistaðan í
grænmetisréttum en svo má
einnig nota það með öðru græn-
meti eða snöggsteiktu kjöti.
Kálið er líka sérlega gott í
súpur og svo má súrsa það, til
dæmis með hvítlauk og chili, og
búa til verulega sterkt og gott
meðlæti. ■
KJÚKLINGUR MEÐ KÍNAKÁLI OG SVEPPUM
1/2 kínakálshöfuð, meðalstórt
3 msk. olía
2 cm bútur af engifer, saxaður smátt
2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
2 kjúklingabringur, skornar í þunnar sneiðar
250 g sveppir, gjarna kastaníusveppir,
skornir í sneiðar
1/2 chilialdin, skorið í örþunnar sneiðar
3 msk. saxaður graslaukur eða vorlaukur
1 msk. sojasósa, eða eftir smekk
Kálið skorið í mjóar ræmur. Olían hituð í wok eða á pönnu og þegar hún er vel heit er
engifer og hvítlaukur sett á pönnuna og steikt í fáeinar sekúndur en síðan tekið upp
með gataspaða og geymt. Kjúklingurinn settur á pönnuna og steiktur við háan hita í 1-
2 mínútur. Sveppum og chili bætt á pönnuna, steikt áfram í 2-3 mínútur og hrært oft á
meðan. Káli, graslauk og sojasósu bætt á pönnuna, steikt í 2-3 mínútur, bragðbætt
með sojasósu eftir smekk og síðan borið fram strax, til dæmis með soðnum hrís-
grjónum eða núðlum.
STEIKT KÍNAKÁL MEÐ NÚÐLUM
1 kínakálshöfuð, stórt
3 pakkar skyndinúðlur (súpunúðlur)
3 msk. olía
1-2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
2 cm bútur af engifer, saxaður smátt
100 g sykurbaunir
2 msk. sojasósa, eða eftir smekk
Kálið skorið, um það bil í tvennt þvert
yfir. Efri hlutinn (blöðin) skorinn í mjóar
ræmur og geymdur en hitt skorið í
breiðari ræmur. Núðlurnar settar í skál,
heitu vatni hellt yfir og látið standa í nokkrar mínútur, samkvæmt leiðbeiningum á um-
búðum. Olía hituð í wok eða á stórri pönnu. Hvítlaukur og engifer sett á pönnuna og
andartaki síðar kálræmurnar. Steikt við góðan hita í 3-4 mínútur og hrært oft á meðan.
Sykurbaunum og sojasósu bætt á pönnuna og látið malla í eina mínútu í viðbót. Af-
ganginum af núðlunum hellt í sigti og látið renna vel af þeim en síðan er þeim hvolft á
pönnuna, afganginum af kálinu dreift yfir, og blandað vel. Bragðbætt með meiri
sojasósu eftir smekk og borið fram strax.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Pólsk rabarbarakaka
ÞESSI RABARBARAKAKA ER
GÓÐ BÆÐI HEIT OG KÖLD -
MEÐ RJÓMA EÐA ÍS.
100 g smjör eða smjörlíki
3 dl sykur
1 egg
1 1/2 dl rjómabland eða mjólk
1 1/2 dl kókosmjöl
1 1/2 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
4 stórir rabarbaraleggir
Allt sett í eina skál nema rabarbarinn
og hrært um stund. Deigið er síðan
sett í smurt mót eða eldfast form.
Rabarbarinn skorinn í bita og þrýst
ofan í deigið. Kakan er bökuð í ca 40-
50 mínútur við 175 gráður.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir við grillið.