Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.08.2005, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 05.08.2005, Qupperneq 30
Hippo Hybrid golfsett á tilboðsverði 32.625, Markinu. Bolur á 7.900, buxur 8.900 og der 1.400, Nevada Bob. Proquip goretex jakki á 18.900 og buxur á 15.900 Hi- Tex skór á 14.900, Markinu. Við litum inn í nokkrar búðir sem selja golffatn- að og sett og skoðuðum úrvalið í herratískunni. Svo byrjað sé á fótabún- aðinum þá eru vandaðir lágir leðurskór sem gilda. Svartir, brúnir og rauðbrúnir eru algeng- astir en hvítir þykja flott- astir. Þeir sem stunda golfið af al- vöru eiga flestir slíka. Vellir eru flestir lagðir dreni svo lítil hætta er á stórum pollum en stígvél með tökkum fást líka til að nota í við- lögum. Þykkir og hlýir sokkar eru nauðsynlegir og þeir fáu sem nota pokabuxur í golfinu eru í hnéháum sokkum. Gallabuxur eru ekki vel séðar af golfurum, né heldur hlaupabuxur eða annars konar íþróttabuxur heldur eiga þeir að vera í snyrtilegum og vönduðum taubuxum og hananú. Stuttbux- urnar verða að vera bermúda bux- ur sem ná niður að hnjám. Einkennisbúningur golfaranna er tvímælalaust stuttermabolir með kraga, svokallaðir pólóbolir. La- coste, Burberry og Lindeberg eru vel þekkt merki á þeim. Tiger hefur þó innleitt boli með standkraga og þeir virðast komnir til að vera, að sögn afgreiðslufólks. Þægileg peysa er yfirleitt nauðsynleg á Íslandi á flestum árstímum og þá er mikil- vægt fyrir golfara að eiga góðan vindþéttan galla. Flestir vilja hafa hann vatnsheldan svo það megi nú koma skúr. Sunderland er skoskt merki sem er vel þekkt í göllum. Svo verða derhúfur eða bara der að fylgja golfaranum til að bægja birtunni frá augum hans. Að sögn Gunnars Þór Gunnars- sonar landsliðsmanns í golfi er minni hefð fyrir golffatnaði á Íslandi og víða erlendis. „Í Bretlandi fær enginn að koma inn í klúbbhúsið í íþróttaskóm, hvað þá með húfu á hausnum og talandi í síma. Þeim er bara vísað út,“ nefnir hann sem dæmi. 2 ■■■ { GOLF } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■                              ! „Við erum líklegast um þrjár konur sem erum í IPGA-samtökunum á Ís- landi (samtökum golfkennara). Karlarnir eru miklu fleiri, þeir skip- ta ábyggilega tugum,“ segir María Guðnadóttir, leiðbeinandi í golfi. Það er liðin tíð að golf sé talin vera íþrótt fyrir karlmenn, konum sem stunda íþróttina hefur farið ört fjölgandi á undanförnum árum. „Áhugi kvenna fyrir golfinu hefur aukist mikið á undanförnum árum og miklu meira um að þær vilji vera þátttakendur. Áður fyrr var al- gengt að þær drægju kerrurnar fyr- ir karlana, en nú vilja þær í aukn- um mæli vera með. Þar af leiðandi er aukin ásókn kvenna í námskeið og þær kjósa oftast að koma til kvenleiðbeinenda, Við konurnar tölum kannski sama tungumál og þess vegna höfum við kvenleið- beinendurnir haft nóg að gera.“ María einskorðar sig þó ekki við konurnar, karlar hafi einnig sótt hjá henni námskeið. „Oft hef ég verið með blönduð námskeið, bæði fyrir karla og konur. Körlunum finnst ekkert athugavert við það að taka við leiðbeiningum frá konum, að minnsta kosti hef ég ekki orðið vör við það. Ég hef ekki fundið fyrir fordómum karla, mér finnst þeir taka leiðbeiningum vel og þeir hafa verið mjög áhugasamir á nám- skeiðum hjá mér.“ María hefur boðið upp á fjögurra daga námskeið í Kópavogi á túni við Kópavogshælið. „Konur kjósa yfirleitt að vera dálítið sér áður en þær hella sér út í golfíþróttina. Á fyrstu þremur dögum námskeiðsins er farið yfir grunnatriðin og á fjórða deginum er farið upp á Ljúf- ling, golfvöll uppi í Heiðmörk og spilað þar lítið golfmót þar sem kennd er spilamennska og um- gengni við völlinn. Áhugi kvenna á golfíþróttinni einskorðast ekki við höfuðborgarsvæðið, ég hef oft verið með námskeið úti á landi, til dæmis á Selfossi og Hveragerði. Að sjálfsögðu reynum við að sinna fyrirspurnum kvenna utan af landi um námskeið í golfinu. Ég hef sjálf mjög gaman af því að skreppa út á landsbyggðina til að leiðbeina áhugasömum konum.“ María Guðnadóttir, leiðbeinandi í golfi, segir að konur sem séu að byrja vilji yfir- leitt frekar fá leiðbeiningar frá konum. Konur vilja vera með Golfið var í eina tíð íþrótt sem konur fylgdust með úr fjar- lægð. Það er löngu liðin tíð og konurnar kjósa nú í auknum mæli að vera þátttakendur í þessari skemmtilegu íþrótt. Flestir kylfingar vilja slá langt ogþá helst með drævernum. Golf-kennarinn David Leadbetter leggur áherslu á úlnliðinn í aftur- sveiflunni. Hann segir að kylfingur- inn eigi að ímynda sér að hann sé að slá inni í herbergi með mjög lítilli lofthæð. Kylfan má ekki snerta loft- ið og til þess að það sé mögulegt verður kylfingurinn að sveigja (brjó- ta) úlnliðinn í aftursveiflunni. Efst í aftursveiflunni á kylfingurinn að finna mikla teygju í vinstri þumal- fingri. Þá á tilfinningin einnig að vera eins og sveiflan sé stutt og þétt. David Leadbetter Leadbetter er einn frægasti golfkennari í heimi. Hann hefur þjálfað marga af allra bestu kylfing- um veraldar. Golfarar klæða sig gjarnan upp í sérstakan fatnað sem fylgir þeirri íþrótt. Þar koma nýjungar við sögu jafnframt því sem haldið er í hefðir. Peysa á 7.900, buxur á 6.400, Nevada Bob. Goritex jakki 29.800 og Ekkó goretex golf- skór á 19.900, Hole in one. Der á 1.790, Hole in one. Burberry bolur á 10.900 og Lindeberg der á 3.200, Hole in one. Nýjungar í bland við hefðir í herratískunni Pútter á 10.900 í Hole in one. FR ÉT TA BL AÐ IÐ /G VA , E . Ó L O G H EI ÐA KRAFT Í DRÆVIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.