Fréttablaðið - 05.08.2005, Síða 33

Fréttablaðið - 05.08.2005, Síða 33
Phil Mickelson Fyrir Masters árið 2001 sagði Mickelson að hann vildi vinna og komast í sögubækurnar. Íþrótta- sálfræðingurinn Gio Vali- ante segir þetta rangan hugsunarhátt. Mickelson hafi ekki einbeitt sér á réttan hátt enda hafi hann ekki unnið mótið. Þremur árum seinna var viðhorf Mickelson allt annað og hann vann. Eitt eiga allir kylfingar sam-eiginlegt og það er að hafaeinhvern tímann leikið golf sífellt hugsandi um hvað geti farið úrskeiðis. Allir kylfingar kannast við að standa við boltann og vera að rembast við að einbeita sér að högginu en á sama tíma hugsandi um hvað meðspilararnir hugsi ef höggið klúðrist. Þegar kylfingur leikur golf hræddur við að gera mistök, hræddur við að verða sér til skammar, hræddur við hið óvænta, hræddur við að taka vit- lausa ákvörðun, hræddur við að leika með einhverjum ákveðnum, hræddur við langa braut, hræddur við þrönga braut, sandgryfju eða tjörn, þá er fjandinn laus. Sjálfs- traustið er ekkert. Íþróttasálfræðingurinn Gio Valiante segir að kylfingar, bæði háforgjafakylfingar og lágfor- gjafakylfingar, verði að ná tökum á óttanum. Fyrsta skrefið sé að vera fullkomlega einbeittur. Hvat- inn við að leika golf á fyrst og fremst að vera sá að vilja læra og bæta sig. Ekki vera að hugsa um skorkortið heldur um næsta högg og bara næsta högg. Valiante segir að kylfingar eigi ekki að hugsa um hvað aðrir segji, hvort sem þeir hrósi eða segi eitthvað annað. Fókusinn eða einbeitingin á að vera á næsta högg. Valiante leggur mikla áherslu á það. Hann segir að það sé ekki gott að mæta á fyrsta teig og hugsa: „Nú ætla ég að leika undir 90 eða á 68.“ Heldur eigi kylfingar að mæta á fyrsta teig og hugsa: „Ég ætla að leika þennan hring högg fyrir högg og eins vel ég tel mig geta.“ Síðan þegar komið er inn í klúbb- hús er í lagi að setjast niður og telja höggin. ■■■■■■■■■■■■■■■ { GOLF } ■■ 5 Léttar veitingar í boði OPNA FRÆGA RJÚPUMÓTIÐ VERÐLAUN Veglegir vinningar fyrir þrjú efstu sætin, með og án forgjafar Glæsileg verðlaun fyrir högg sem næst er holu á öllum par 3 Verðlaun fyrir lengsta teighögg á 14. braut Dregið verður úr skorkortum í mótslok og fá nokkrir keppendur óvæntan glaðning. Þeir sem vinna til verðlauna án forgjafar, geta ekki unnið til verðlauna með forgjöf verður haldið hjá golfklúbbnum Oddi á Urriðavelli laugardaginn 20. ágúst 2005 Þátttökurétt hafa allir sem náð hafa 20 ára aldri. Mótsgjald 3.000 kr. Mótið hefst kl. 8 Skráning hjá vallarverði í síma 565 9092 og á www.golf.is • • • • • Leikinn verður 18 holu höggleikur með og án forgjafar HVERNIG Á AÐ LEIKA ÁN ÓTTA Galdurinn er að einbeita sér að næsta höggi og engu öðru.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.