Fréttablaðið - 05.08.2005, Side 35
Heiðar Davíð Bragason er
nýkrýndur Íslandsmeistari
karla í golfi. Hann byrjaði
tólf ára að munda kylfurnar
norður á Blönduósi og síðan
hefur leiðin legið upp á við.
Heiðar bjó á Blönduósi þar til fyrir
fimm árum og kveðst hafa haft
ágæta æfingaraðstöðu þar enda fáir
í klúbbnum. „Menn voru ekkert að
pirra sig á því þótt ég væri að fylla
flatirnar af boltum og það kom sér
mjög vel fyrir mig,“ segir hann.
Upphaflega kveðst hann hafa smit-
ast af félaga sínum sem var að
skipta um golfsett. „Hann dró mig
út á völl og mér fannst þetta svo
gaman og ég fékk pabba til að
kaupa gamla settið,“ rifjar hann
upp. Hann segist hafa verið í öðrum
íþróttum með og ekki byrjað að æfa
golfið á fullu fyrr en 18 eða19 ára.
Árið 2003 small allt hjá Heiðari
Davíð fyrir alvöru. Í ár hefur hann
verið á topp tíu listanum á þeim
mótum sem hann hefur keppt á er-
lendis auk þess að vinna þau mót
sem hann hefur tekið þátt í hér
heima. Hann hefur þó ekki áhuga á
atvinnumennskunni að sinni heldur
vill halda í keppnisferðirnar með
landsliðinu og fá meiri reynslu út
úr þeim. Hann vinnur hjá golf-
klúbbnum sínum, Kili í Mosfellsbæ
yfir sumarið en á veturna bjargar
hann sér með öðrum hætti. Hann
býst jafnvel við því að fara að mála
í vetur. Fram undan er þó úrtöku-
skóli fyrir Evrópumótaröðina og
úrtökumót fyrir sænsku atvinnu-
mannamótaröðina því þar má hann
spila sem áhugamaður. „Það er
ágætur peningur í því ef maður
kemst inn og stendur sig vel. Að
minnsta kosti nóg til að þrauka,“
segir hann og bætir við. „Stefnan er
að halda áfram að leika sér í golfi
og njóta lífsins. Þetta er ekkert
flókið.“
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { GOLF } ■■ 7
Heiðar Davíð segir atvinnumennskuna í golfinu harðan heim og vill keppa sem áhuga-
maður enn um sinn.
Að leika sér í golfi og njóta lífsins
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/H
AR
I
Ragnhildur telur golfið stórkost-
lega íþrótt sem allir geti tekið þátt
í á jafnréttisgrundvelli. Áhugann
kveðst hún eiga Sigurði bróður
sínum að þakka því hann hafi
dregið hana útá völl með sér,
frekar trega í taumi í byrjun. Um
fermingu hafi hún verið komin
með ólæknandi golfbakteríu og
ekki átt sér viðreisnar von eftir
það. Reyndar segir hún Sigurð
eiga stóran þátt í því að henni hafi
tekist að hala inn Íslandsmeist-
aratitlinum í Leirunni um daginn
enda hafi hann verið kylfusveinn
hjá henni á síðasta degi mótsins
og sannarlega haldið systur sinni
við efnið. „Siggi er ótrúlegur
keppnismaður og hefur unnið ófáa
titlana í hestamennskunni. Hann
er núna að keppa á heimsmeistara-
mótinu í Svíþjóð og það kæmi mér
ekkert á óvart þótt hann kæmi
heim með heimsmeistaratitil í
hnakktöskunni,“ segir hún.
Sjálf hefur Ragnhildur fengið sinn
skerf af keppnisskapinu og er
stöðugt að bæta árangur sinn, búin
að lækka sig um einn heilan í for-
gjöf í sumar og er komin niður í +
2. En hvað skyldi vera framundan
hjá henni núna?
„Ég reyndi fyrir mér í úrtökumótum
fyrir Evróputúrinn haustið 2003 og
2004 en hafði ekki erindi sem erfiði.
Ég er þó ekki hætt og ætla að láta
vaða aftur í haust,“ svarar hún. „Ef
andlega hliðin verður eins og hún á
að vera á ég góðan séns á að kom-
ast í gegn og ætla að gera allt sem
ég get til að byggja upp sjálfstraust
og sigurvilja.“
Einbeitingin er nauðsynleg er í golfinu og hana á Ragnhildur í ríkum mæli.
Var treg í taumi í byrjun
Ragnhildur Sigurðardóttir Íslandsmeistari á marga titla
í golfinu, allt frá því hún varð Íslandsmeistari stúlkna
árið 1983.