Fréttablaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 44
„Óviðeigandi“ að Íslendingar eigi
Magasín Aftur hefur Baugur gert Dönum grikk
með því að kaupa þekkt og fínt vöruhús í Danmörku
en í þetta sinn var það vöruhúsið Illum. Vægast sagt
tóku danskir fjölmiðlar fréttunum ekki fagnandi. Berl-
ingske fjallaði um að breyta spilinu Matador
og setja stórmarkaði í stað húsa og gatna.
Jyllandsposten tekur það fram að Jón Ás-
geir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hafi ekki
verið viðstaddur kaupin.
Dönunum finnst gaman að nöldra yfir
kaupum Íslendinga sín á milli og heyrðist
til fínna eldri kvenna ræða um það í
Magasín nýlega að það væri „óviðeigandi“
að Íslendingar ættu búð á fínasta stað í
bænum.
Danirnir þurfa bara að venjast tilhugsun-
inni að Íslendingar geti átt fyrirtæki í Dan-
mörku. Danir ættu því frekar að rölta niður Strikið og
benda á Magasin og Illum og segja: „Det er islandsk,
det er dejligt.“
Baugur lýsti því yfir að frekari fjárfestinga væri að
vænta þannig að nú er bara Tívolíið eftir.
Stendur á gömlum merg Nýjasta félagið í
Kauphöllinni verður brátt Dagsbrún sem tekur við
móðurhlutverki Og Vodafone. Stjórnendum
Dagsbrúnar þótti við hæfi velja sér rammís-
lenskt og gott nafn í stað þess að nefna fé-
lagið „Group“ eða öðru erlendu heiti. Dag-
brún merkir byrjun dagsins og á að tákna
samstöðuna innan félagsins.
Dagsbrúnarheitið er reyndar ekki nýtt af
nálinni. Flestir kannast við Verkamannafé-
lagið Dagsbrún, sem háði stormasama bar-
áttu við atvinnurekendur og stjórnvöld hér
á árum áður, og Guðmund jaka sem var
lengi formaður þess. Dagsbrún, Verka-
kvennafélagið Framsókn og fleiri stéttarfé-
lög sameinuðust síðan undir merkjum Eflingar.
Einnig er til Ungmennafélagið Dagsbrún í Austur-
Landeyjum sem var stofnað árið 1909.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.488,67
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 612
Velta: 19.151 milljónir
+2,07%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Greiningardeild Íslandsbanka
spáir 0,1 prósenta lækkun á vísi-
tölu neysluverðs milli júlí og
ágúst.
Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr, sagði sig úr varastjórn
Kaupþings banka. Það gerði
hann til að uppfylla skilyrði ríkis-
ins um kaup á hlut í Símanum.
Heildartekjur á mann hafa vaxið
um 57 prósent að raungildi frá
árinu 1994 og ráðstöfunartekj-
urnar hafa aukist um 47 prósent
samkvæmt Vefriti Fjármálaráðu-
neytisins.
Greiningardeild Íslandsbanka
segir miklar líkur á vaxandi verð-
bólgu sé horft til lengri tíma.
24 5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 42,90 +0,7% ... Bakkavör
39,30 +0,5%... Burðarás 17,60 +3,5%... FL Group 14,70 +0,7% ... Flaga
4,47 -6,3% ...HB Grandi 8,5 +0,00% ... Íslandsbanki 14,70 2,1% ... Jarð-
boranir 21,00 +0,0% ... KB banki 575,00 +3,00% ... Kögun 57,80 -0,3%
... Landsbankinn 21,20 +1,9% ... Marel 59,50 +0,00% ... SÍF 4,73 -0,2%
...Straumur 13,30 +1,1% ... Össur 87,00 +0,00%
Burðarás 3,53%
Kaupþing Bank 3,05%
Íslandsbanki 2,08%
Flaga -6,29%
Atorka -1,67%
Kögun -0,34%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Og fjarskipti og 365 ljósvaka-
og prentmiðlar verða dótturfé-
lög innan Dagsbrúnarsamstæð-
unnar. Árni Pétur Jónsson hefur
tekið við starfi forstjóra Og
fjarskipta.
Skipulagsbreytingar verða á
starfsemi Og fjarskipta hf. sem
munu taka gildi þann 1. október.
Nýtt móðurfélag hefur verið
stofnað undir heitinu Dagsbrún
en Og fjarskipti, sem hefur und-
ir höndum fjarskiptarekstur fé-
lagsins, og 365 ljósvaka- og
prentmiðlar verða að dótturfé-
lögum þess.
Eiríkur Jóhannsson, sem
verður eftir sem áður forstjóri
móðurfélagsins, segir að mark-
miðið með breytingunum sé tví-
þætt. „Við erum að uppfylla
skilyrði sem Samkeppnisstofn-
un setti vegna kaupa okkar á
fjölmiðlafyrirtækjum. Okkur er
gert að aðskilja fjarskiptahlut-
ann frá fjölmiðlarekstrinum
með stofnun nýs móðurfélags.“
Dagsbrún ætlar sér hins veg-
ar að leiða útrás fjarskipta- og
fjölmiðlastarfseminnar á er-
lenda markaði.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
við segjum opinskátt að félagið
ætli að vaxa með útrás. Við
erum nýbúin að kaupa færeyska
fjarskiptafélagið Kall. Varðandi
vöxt samstæðunnar getur hann
farið fram innan ramma fjar-
skipta hér heima og erlendis
sem og innan fjölmiðla og af-
þreyingar og svo eftir atvikum í
öðrum greinum sem tengjast
fjarskiptum og fjölmiðlum,“
segir Eiríkur enn fremur. Hann
segir að um leið sé verið að efla
stjórnun félagsins. Hann hafði
áður sinnt bæði útrás félagsins
og daglegri stjórnun fjarskipta-
hlutans en nú hefur Árni Pétur
Jónsson verið ráðinn sem nýr
forstjóri Og fjarskipta.
Árni er viðskiptafræðingur
að mennt og hefur áður gegnt
stjórnunarstöðum hjá Jes Zim-
sen, Olís og Baugi auk þess að
gegna starfi stjórnarformanns
hjá Lyfju. Þá hefur Árni setið í
stjórnum Skeljungs og Húsa-
smiðjunnar.
Árni segist hlakka til að
takast á við nýja starfið: „Og
Vodafone er spennandi fyrir-
tæki á skemmtilegum markaði
sem ég held að verði enn
skemmtilegri með þeim breyt-
ingum sem nú standa yfir hjá
Símanum.“
Hann segir engar meiriháttar
breytingar fram undan hjá Og
Vodafone þrátt fyrir þær skipu-
lagsbreytingar sem nú verða.
„Fyrirtækið er vel rekið og hef-
ur unnið markvisst að því að
veita góða þjónustu. Við munum
kappkosta að keyra áfram á
þeirri braut og gefa í frekar en
hitt.“ eggert@frettabladid.is / jsk@frettabladid.is
William Demant-fjárfestingasjóð-
urinn, sem átti rúmlega 20 pró-
sent í Össuri, hefur aukið við hlut
sinn og á nú 24 prósent í félag-
inu. Með þessum kaupum Dem-
ant er um helmingur hlutafjár í
Össuri í eigu erlendra aðila. Öss-
ur er eina félagið í Kauphöllinni
sem hefur erlenda hluthafa á sín-
um snærum.
Gengi Össurar hefur hækkað
nokkuð frá því í síðustu viku en
þá tilkynnti félagið um kaup á
bandaríska stuðningstækjafyrir-
tækinu Royce Medical og skilaði
góðu uppgjöri.
- dh
ERLENDIR FJÁRFESTAR
AUKA HLUT SINN Jón Sig-
urðsson, forstjóri Össurar.
Demant kaupir meira í Össuri
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÁRNI PÉTUR JÓNSSON, FORSTJÓRI OG VODAFONE Samhliða skipulagsbreytingum
Og fjarskipta hefur Árni Pétur Jónsson verið ráðinn forstjóri Og Vodafone. Dagsbrún boðar
útrás fjarskipta- og fjölmiðlastarfseminnar.
Dagsbrún
ætlar í útrás
Rekstrarhagnaður Eimskips á
fyrstu sex mánuðum ársins nam
rúmlega 1,5 milljörðum króna,
fyrir afskriftir fjármagnsliða og
skatta. Það er 402 milljóna króna
aukning miðað við sama tímabil í
fyrra. Velta félagsins hefur aukist
um rúma tvo milljarða frá því á
fyrri helmingi árs 2004.
Í tilkynningu frá Eimskipi segir
að hagnaðaraukinguna megi
rekja til hagræðingar sem ráðist
var í á síðasta ári. Einnig er
þess getið að ytri aðstæður
eins og hátt olíuverð og óhag-
stætt gengi hafi dregið úr af-
komubatanum.
- jsk
Sex mánaða uppgjör:
Aukinn hagnaður hjá Eimskipi