Fréttablaðið - 05.08.2005, Page 53

Fréttablaðið - 05.08.2005, Page 53
FÖSTUDAGUR 5. ágúst 2005 M IX A • fít • 5 0 7 6 5 Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun Sumarið er okkar tími! Tilvalið að líta inn Nánari upplýsingar um opnunartíma á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000. Sýningarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Végarður í Fljótsdal Kynnið ykkur Kárahnjúkavirkjun og allt sem henni viðkemur í Végarði. Tilvalið að koma þar við áður en haldið er upp að Kárahnjúkum. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals „Andlit Þjórsdæla“ – áhugaverð sýning um mannlífið í Þjórsárdal í 1100 ár. Blöndustöð í Húnaþingi Þorir þú 200 metra niður í jörðina? Hvað verður í göngum Blöndustöðvar í sumar? Magnaður viðkomustaður. Kröflustöð í Mývatnssveit Allt um Kröfluelda í Gestastofu. Kynnist eldsumbrotunum sem urðu í nágrenni Kröflustöðvar 1975-1984. „Hreindýr og dvergar“ Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir magnaða tréskúlptúra í Laxársstöð í sumar. „Hvað er með Ásum?“ Frábær sýning Hallsteins Sigurðssonar, sem hlotið hefur einróma lof. Ljósafosstöð í Soginu „Ár og kýr“ Jóns Eiríkssonar komnar suður. 365 kúamyndir sem hlotið hafa verðskuldaða athygli. Einnig ljósmyndasýning Guðmundar frá Efri-Brú „Oft er í holti heyrandi nær“. Hvernig verður rafmagn til? Hvers vegna er rafmagn á Íslandi umhverfisvænna en hjá öðrum þjóðum? Laxárstöðvar í Aðaldal Heimsókn til Landsvirkjunar er upplýsandi og skemmtileg Nýr diskur, Bacalao, með hjómsveitinni South River Band kom út í byrjun júlí. Hljómsveit- ina skipa þeir Matthías Stefáns- son, Helgi Þór Ingason, Ólafur Sigurðsson, Kormákur Bragason, Ólafur Þórðarson og Einar Sig- urðsson. Á disknum eru þrettán lög frá ýmsum löndum og hengja með- limir sveitarinnar merkimiðann „alþýðleg heimshornatónlist“ á lög plötunnar. Þar er að finna tónlist frá Úkraínu, Írlandi, Spáni og Banda- ríkjunum svo eitthvað sé nefnt. Útsetningar laganna á plötunni eru stílhreinar og hefðbundnar, þau er stutt en flest hver skemmtileg og snerta einhverjar taugar sem þjóðlagatónlistin hefur, að því er virðist, ein svo greiðan aðgang að. Upphafslag disksins er írska þjóðlagið Whiskey Before Breakfast eða Dramm fyrir Dagmál og er það ágætis upphaf að skemmtilegri og tregafullri plötu því sum lögin á plötunni eru þannig að maður gæti bæði hlegið og grátið yfir þeim. Það gerir tilfinningin í þeim, hækkanirnar og hraða- breytingarnar, tónlistin fer frá því að vera hæg og tilþrifalítil upp í að vera hröð og tilfinningarík. Sveitinni tekst hvað best til í þjóðlaginu Brúðkaupsvals frá Úkraínu sem hefur í sér hinn ljúfsára trega sem er oft einkenn- andi fyrir þjóðlagatónlist frá Austur-Evrópu. Laginu er haldið uppi af fiðluleik Matthíasar Stef- ánssonar, sem spilar áberandi rullu í mörgum lögum plötunnar, og er laglínan í því falleg. Einnig ber að geta Kveðjustundarinnar eða La Partida eftir Alvarez, Fermin Maria, írska þjóðlagsins Á blístri af berjum og úkraínska þjóðlagsins Mánaskin sem nánast ærir mann því það er svo hratt og æpandi, eiginlega móðursjúkt lag. Diskurinn í heild sinni er skemmtilegur þótt farnar séu afar troðnar slóðir í útsetningum og flutningi. Ég gæti vel hugsað mér að fara og hlusta á hljóm- sveitina spila á balli og kannski dilla mér eitthvað og hoppa, jafn- vel fá mér nokkra gráa og hafa gaman, því þrátt fyrir tregann er þetta tónlist gleðinnar. Ingi Freyr Vilhjálmsson Hef›bundin og skemmti- leg fljó›lagatónlist SOUTH RIVER BAND: BACALAO NIÐURSTAÐA: Diskurinn í heild sinni er skemmtilegur þótt farnar séu afar troðnar slóðir í útsetningum og flutningi. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.