Fréttablaðið - 05.08.2005, Side 54
> Plata vikunnar ...
M.I.A.:
Arular
„Frumraun M.I.A. er
með þeim magnaðri í
áraraðir. Þessi plata
er svo heit að hún á
eftir að brenna harða
diskinn ykkar. Ólíkt flestu sem þið
hafið heyrt áður og algjör skyldueign.“
BÖS
34 5. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
Aðdáendur Cooper síðan 1982
tonlist@frettabladid.is
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
The Magic Numbers: The Magic Numbers, Röyksopp:
The Understanding, Brian Wilson: Smile DVD, Arcade
Fire: Funeral, Dr. Spock: Dr. Phil, Villikettirnir: Lög við
vísur eftir Davíð Þór Jónsson og Pétur W. Kristjáns-
son: Gamlar myndir.
>
Rö
yk
so
pp
>
Arcade Fire
Rappsveitin Quarashi er hætt eftir
tæplega tíu ára samstarf. Sveitin gaf
út þrjár plötur á ferli sínum, nú síð-
ast Guerilla Disco sem hefur selst í
8.000 eintökum hér á landi og er
þar með orðin mest selda plata
sveitarinnar hérlendis.
„Við erum búnir að klára það sem
við ætluðum að klára. Ég er búinn
að snúa mér að öðru og Ómar er
búinn að snúa sér að öðru. Partíið
er búið. Þetta er var fínt partí en það var orðið
þreytt og nú er það búið,“ segir Sölvi Blöndal,
sem hefur verið forsprakki Quarashi frá stofnun
sveitarinnar 1996.
Hann vill ekki meina að sveitin hafi ætlað sér
stærri hluti í framtíðinni. „Svona hljómsveitir eru
eins og annar félagsskapur. Þær byggjast á því að
gredda sé í gangi og hún var bara ekki í gangi.
Menn eru komnir á annan stað í lífinu og allar
hljómsveitir þurfa að enda ein-
hvern tímann.“
Sölvi byrjar á næstunni á sínu öðru
ári í hagfræði við Háskóla Íslands
og Ómar Örn Hauksson stundar
nám í grafískri hönnun auk þess
sem Egill „Tiny“ Thorarensen hygg-
ur á nám í menntaskóla. Þeir
munu því ekki sitja auðum hönd-
um á næstunni þrátt fyrir að
Quarashi sé dauð og grafin. Áður
höfðu þeir Höskuldur Ólafsson og Steinar Fjelsted
hætt í sveitinni, sem gaf til kynna að leiði var
kominn í mannskapinn.
„Þetta er orðið fínt,“ segir Sölvi. „Ég er búinn að
brasa í tónlist í lengri tíma en ég hélt og það er
mjög gott að taka sér frí í dágóða stund. Það
verður fínt að hafa tónlistina sem áhugamál. Ég er
ekkert svekktur og ákvörðunin um að hætta var
tekin í eins mikilli sátt og samlyndi og hægt er.“
Partíi› var or›i› flreytt
> Popptextinn ...
„So wont you make a man out of me,
I’ve gotta be,
connected computerized son of a bitch,
makes me itch, sucker for life.
I cant decide darkness or light or just
a heavenly fright.
Stick it, I’m tired I’m bored, I’m trying
so hard and I can’t be adored.“
Rappsveitin sáluga Quarashi í einu vin-
sælasta lagi sínu, Stick’ Em Up.
SUNNUMÖRK 2
810 HVERAGERÐI
SÍMI 483 3206
Í VERSLUNARMIÐSTÖÐINNI SUNNUMÖRK VIÐ ÞJÓÐVEG NR. 1
OPNUNARTÍMI
MÁNUD. - FIMMTUD...........
FÖSTUDAGA......................
LAUGARDAGA...................
11:00 - 18:30
11:00 - 19:30
12:00 - 16:00
ALVÖRU HUMAR
& ANNAÐ GIRNILEGT FISKMETI
BEINT Á GRILLIÐ
ERTU Á LEIÐINNI AUSTUR FYRIR FJALL
Í BÚSTAÐINN EÐA ÚTILEGUNA?
The Duke Spirit: Cuts Across
the Land
„The Duke Spirit er ný töffarasveit frá London sem
var að gefa út fyrstu plötu sína. Þetta er töffararokk
eftir formúlunni, tekur litla áhættu, en útkoman er
vel yfir meðallagi. Ekki skemmir að það er ljóska í
fremstu víglínu með blúsaða sandpappírsrödd.“
BÖS
Björk: Drawing Restraint 9
„Björk fer lengra með pælingarnar á Medúllu og
skilar frá sér skrítinni plötu, sem þó á sín aðgengi-
legu augnablik. Eflaust á þessi plata vel við kvik-
mynd eiginmannsins en ein og sér er hún ekkert
sérlega heillandi.“
FB
Roisin Murphy: Ruby Blue
„Fyrsta sólóplata Moloko-söngkonunnar Roisin
Murphy er mjög lifandi og fallegt verk. Hér skapar
hún sína eigin veröld á milli djass og raftónlistar,
draums og vöku. Svo syngur hún auðvitað eins og
engill líka. Mögnuð frumraun.“
BÖS
Helgi Valur: Demise of Faith
„Demise of Faith er ágætis plata með nokkrum fín-
um lögum. Helgi er greinilega mjög efnilegur tón-
listarmaður en hann á enn eftir að skapa sér sinn
eigin stíl.“
FB
Davíð Smári: You Do Some-
thing to Me
„Davíð skilar sínu með sóma en vonandi kemur al-
vöru sólóplata frá honum sem fyrst þar sem hann
syngur ný íslensk dægurlög sem hreyfa betur við
manni.“
FB
Black Eyed Peas: Monkey
Business
„Fylgifiskur Elephunk er öfgafull tilraun til þess að
gera metsöluplötu. Hér er verið að reyna of mikið
til þess að heilla og fyrir vikið verður heildin hálf
aum. Lítið um góða spretti, hrein og klár von-
brigði.“
BÖS
Nouvelle Vague: Nouvelle
Vague
„Tveir franskir sérvitringar útsetja þekkta ný-
bylgjuslagara á borð við Love Will Tear Us Apart í
bossanovaútgáfum. Fá svo kornungar söngkonur
sem þekkja ekki upprunalegu útgáfurnar til þess
að syngja. Útkoman er ein mest sexí plata sem þú
finnur, hvar sem er.“
BÖS
Birgir Örn Steinarsson
Freyr Bjarnason
Hita upp
fyrir Stones
Íslandsvinirnir í Metallica munu
hita upp fyrir The Rolling Stones á
tvennum tónleik-
um í nóvember í
San Francisco.
Þar með hefur
Metallica slegist í
hóp með stórum
nöfnum á borð
við Pearl Jam,
Beck og Black
Eyed Peas sem öll hafa hitað upp
fyrir Stones undanfarið.
„Eftir að hafa spilað með mörg-
um af átrúnaðargoðum okkar í
gegnum tíðina eins og AC/DC, Deep
Purple, Iron Maiden og Ozzy, hvern-
ig gátum við sagt nei við þessa
merku rokksveit sem ber að hluta
til ábyrgð á þessu öllu saman,“
sögðu meðlimir Metallica á heima-
síðu sinni.
Fyrsta hljóðversplata The Roll-
ing Stones í átta ár, A Bigger Bang,
kemur út 5. september.
Gerir tónlist vi›
mynd 50 Cent
Quincy Jones ætlar að gera tónlist
við kvikmynd um ævi rapparans 50
Cent. Myndin heitir Get Rich or Die
Trying eins og fyrsta plata 50 Cent.
Leikstjóri verður Jim Sheridan.
Myndin fjallar um munaðarleys-
ingja úr fátækrahverfi sem gerist
fíkniefnasali áður en hann slær í
gegn sem rappstjarna. Quincy
Jones er reyndur kappi sem m.a.
stjórnaði upptökum á
plötunni Thriller með
Michael Jackson. Hann
hefur fengið Óskarstil-
nefningar fyrir
tónlist sína við
myndirnar The
Color Purple,
In the Heat of
the Night, The
Italian Job, In
Cold Blood og The
Wiz.
RASS Hljóm-
sveitin Rass er
enn í efsta sæti
X-listans með
lagið Burt með
kvótann.
[ TOPP 10 ]
X-IÐ 977
RASS
Burt með kvótann
KAISER CHIEFS
Every Day I Love You Less and Less
THE VIKING GIANT SHOW
Party at the White House
GREEN DAY
Wake Me Up When September Ends
CYNIC GURU
Drugs
AUDIOSLAVE
Your Time Has Come
TRABANT
Maria
TEAM SLEEP
Ataraxia
TRANSPLANTS
Gangsters and Thugs
INTERPOL
Narc
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
Hljómsveitin Dimma verður ein
þeirra fjögurra sveita sem munu
hita upp fyrir sjokkrokkarann
Alice Cooper á tónleikum hans í
Kaplakrika 13. september.
Stofnendur Dimmu, bræðurnir
Ingó og Silli Geirdal, eru góð-
kunningjar upprunalegra með-
lima hljómsveitar Alice Cooper
sem var stofnuð 1968. Árið 1996
gáfu þeir bræður út plötuna Late-
Nite Cult með þáverandi hljóm-
sveit sinni, Stripshow. Þegar yfir-
völd í Japan og Kóreu ákváðu að
banna tónlist sveitarinnar vegna
textagerðar og ímyndar hennar
vakti það mikla athygli utan
Kóreu. Í kjölfarið var þeim
bræðrum boðið að spila víðs
vegar um Bandaríkin með þessum
upprunalegu meðlimum Alice
Cooper, þeim Dennis Dunaway,
Neal Smith og Michael Bruce. Sá
síðastnefndi fékk þá bræður
einnig til að stjórna upptökum og
spila inn á tvær plötur með sér.
Silli er að vonum yfir sig
spenntur að fá að hita upp fyrir
goðið sitt. „Við bræður erum
búnir að vera aðdáendur í mörg ár
og erum búnir að fíla þetta síðan
1982,“ segir Silli, sem hefur séð
Alice Cooper fimmtán sinnum á
tónleikum. Hann segist aldrei
hafa spilað með Cooper en einu
sinni hitað upp fyrir hann. „Við
spiluðum á undan honum á veit-
ingastað sem hann á í Phoenix í
Arizona. Þá spiluðu allir eftirlif-
andi meðlimir Alice Cooper-
hljómsveitarinnar saman til að
minnast Glen Buxton, sem lést
1997. Það er ekkert stirt á milli
þeirra, alls ekki. Það var örlítið
fyrst en síðan eru allir orðnir góð-
ir vinir.“
Dimma var stofnuð á síðasta
ári upp úr rústum Stripshow.
Nafnið Dimma dregur nafn sitt af
tónlist sveitarinnar, sem er á köfl-
um þungt og myrkt rokk með
skírskotun í ýmsar stefnur, meðal
annars íslenska þjóðlagahefð.
„Við höfum æft núna á hverjum
degi og ég get lofað góðum tón-
leikum. Miðað við upphitunar-
böndin ætti fólk að mæta
snemma,“ segir Silli, sem telur að
Cooper sé betri söngvari núna en
hann var fyrir fimmtán árum.
„Hann er alveg frábær. Það drýp-
ur ekki af honum á sviðinu. Það er
mikið stuð hjá honum og ekki
hægt að sjá að hann sé að verða 57
ára.“
Dimma mun hita upp fyrir
herlegheitin í Kaplakrika með
tónleikum á Gauknum föstudag-
inn 12. ágúst. Rokksveitirnar
Sign, sem einnig hitar upp fyrir
Cooper, Noise og Dead Sea Apple
munu líka stíga á stokk. Allar
sveitirnar munu spila eitt lag með
Cooper og lagið sem Dimma hefur
valið sér er hið tíu mínútna langa
Halo of Flies sem er í miklu uppá-
haldi hjá Silla. freyr@frettabladid.is
JAMES HETFIELD
DIMMA Hljómsveitin Dimma var stofnuð á síðasta ári upp úr rústum Stripshow.