Fréttablaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 58
Fengur a› fá
Schneider í heimsókn
Bandaríski gamanleikarinn Rob
Schneider kemur til landsins
þriðjudaginn 23. ágúst í tilefni af
frumsýningu kvikmyndarinnar
Deuce Bigalow: European Gigolo
9. september. Myndin er framhald
Deuce Bigalow: Male Gigolo sem
naut mikilla vinsælda fyrir sex
árum.
Rob Schneider er rísandi
stjarna í heimalandi sínu. Hann
hóf feril sinn sem uppistandari en
gekk síðan til liðs við Saturday
Night Live þar sem hann var leik-
ari og handritshöfundur. Síðan þá
hefur hann leikið í gamanmynd-
um á borð við The Animal og The
Hot Chick auk Bigalow-mynd-
anna. Einnig hefur hann komið
fram í smærri hlutverkum í
myndum vinar síns Adam Sandler
og hefur Sandler líka sést í mynd-
um Schneiders.
Þetta er í fyrsta sinn sem svo
vinsæll leikari heimsækir land og
þjóð markvisst til að kynna nýja
kvikmynd og er Rob mjög spennt-
ur fyrir því að koma til Íslands.
„Þetta á sér langan aðdrag-
anda. Þetta byrjaði hjá Jamie
Kennedy, sem kom hingað um síð-
ustu áramót. Þessir gamanmynda-
leikarar eru allt sami vinahópur-
inn og Jamie upplifði Ísland beint
í æð og sagði vinum sínum frá
því,“ segir Jón Gunnar Geirdal
hjá Senu. „Síðan hittum við aðila
frá Sony og Schneider á Cinema
Expó og þá barst Ísland í tal.
Hann sýndi áhuga á að koma og
þar byrjaði þetta fyrir alvöru.
Hann mun flakka mikið til að
kynna myndina, meðal annars til
Rússlands og Þýskalands og fer til
Mexíkó eftir að hann kemur hing-
að.“
Schneider dvelur hér á landi
frá þriðjudegi fram á laugardags-
morgun. Hann verður viðstaddur
sérstaka boðssýningu í Smárabíói
á Deuce Bigalow: European
Gigolo 25. ágúst og fer í eftirpartí
með aðdáendum sínum að sýningu
lokinni. Einnig ætlar hann að gefa
sér góðan tíma til að upplifa land
og þjóð og skoða helstu ferða-
mannastaði.
Að sögn Jóns Gunnars er mikill
fengur í að fá svo þekktan gaman-
leikara til landsins. „Við höfum
reynt ítrekað í gegnum árin að fá
stjörnur hingað til að kynna
myndirnar sínar. Þótt Schneider
sé ekki stærsti gamanleikari í
heimi er hann mjög vinsæll hérna
heima og koma hans opnar pott-
þétt dyrnar fyrir aðrar stjörnur
hingað til lands.“
Deuce Bigalow: European
Gigolo verður frumsýnd á Ís-
landi föstudaginn 9. september í
Smárabíói, Regnboganum,
Laugarásbíói og Borgarbíói
Akureyri. ■
ROB SCHNEIDER Stillir sér upp við hlið föngulegra kvenna í nýjustu mynd sinni, Deuce
Bigalow: European Gigolo.