Fréttablaðið - 05.08.2005, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍSKALDUR
EINN LÉTTUR
Málum bæinn
RAUÐAN!
Tækni og
heilkenni
Það er alltaf verið að velta þvífyrir sér hvers vegna tíðni and-
legra vandkvæða og geðrænna
sjúkdóma sé stöðugt að aukast.
Fyrir utan geðhvörf og þunglyndi
erum við komin með ótal einkenni
sem hafa fengið heiti eins og at-
hyglisbrestur, misþroski, bi-polar
(einhvers konar tvískautun í sál-
inni), og svo mætti lengi telja.
EFTIR AÐ HAFA verið í Banda-
ríkjunum í hálft ár er ég orðin
sannfærð um að tengsl séu á milli
tækniframfara og allra nýrra and-
legra einkenna og heilkenna sem
mannkynið hefur uppdiktað á síð-
ustu árum, ásamt aukinni tíðni geð-
sjúkdóma. Hér situr maður tengdur
við öflugasta símakerfi, netkerfi,
póstkerfi í heimi, sem er, hins
vegar, sjaldnast í lagi.
EN ÞAÐ VANTAR ekki að allir
eru með mikilfengleg þjónustunúm-
er sem hægt er að hringja í. Þegar
maður svo hringir fær maður sam-
band við tölvu sem býður manni að
velja einn af níu kostum. Maður
velur einn og fær að hlusta í tvær
til þrjár mínútur á auglýsinga-
skrum um þjónustuna hjá fyrirtæk-
inu áður en maður er beðinn að
velja einn af næstu níu kostum.
Maður velur einn, hlustar aftur á
auglýsingaskrum í þrjár mínútur
áður en maður er beðinn um að
velja einn af næstu níu kostum.
Svona gengur þetta lengi dags.
Vandinn sem maður situr frammi
fyrir er sjaldnast einn af valkostun-
um, þannig að þegar loksins næst
samband við líf á jörðu er maður
ekki með réttan aðila og verður að
byrja upp á nýtt.
ÉG SÁ ÞÁTT um alls kyns nú-
tímakvilla í sjónvarpinu í gær og
geri mér grein fyrir að eftir hálfs
árs dvöl er ég komin með athyglis-
brest, alvarlegan misþroska, er illa
þunglynd og örugglega með þessa
tvískautun. Ef ég þarf að hringja í
„þjónustu“ fyrirtæki fyllist ég
kvíða og angist og það tekur mig
einn til tvo daga að safna kjarki til
þess. Þegar ég hef setið við símann
í klukkutíma eða svo er ég orðin
mannýg af pirringi, rek mig í allt
sem ég geng framhjá, missi allt út
úr höndunum og garga á mína nán-
ustu. Verð síðan svo miður mín
eftir allt saman að ég sé bara allt
svart fram undan og langar til að
drepa mig. ■
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR