Fréttablaðið - 20.08.2005, Page 10
ALLT Í PLATI Talsverð skelfing greip um sig
í Beirút í Líbanon í fyrradag þegar mikil
sprenging drundi. Þar voru þó eingöngu á
ferðinni öryggissveitir borgarinnar sem
æfðu viðbrögð við hryðjuverkaárás.
10 20. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Útspil Þórshafnarhrepps til varnar fólksfækkun:
Bjó›a á a›ra milljón í byggingarstyrki
NÝBYGGINGAR Sveitarstjórn Þórs-
hafnarhrepps hefur ákveðið að
hrinda í framkvæmd tímabundnu
átaki til að verjast fólksfækkun og
í því augnamiði hyggst hreppurinn
styrkja þá sem ætla að byggja
íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu
með 10 þúsund króna framlagi á
hvern fermetra nýbyggingar, að
hámarki 1,3 milljónir króna. Ein-
staklingar, fyrirtæki og félaga-
samtök eiga kost á byggingarfram-
lögum, hvort heldur íbúðirnar eru
til eigin nota eða útleigu.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri
segir að ætlunin sé að verja 2,5
milljónum króna vegna þessa á yf-
irstandandi ári og fjórum milljón-
um króna á næsta ári. „Eftirspurn
eftir íbúðarhúsnæði á Þórshöfn fer
vaxandi. Nú er svo komið að farið
er að bera á skorti á meðalstórum
eignum til kaups og leigu og hætta
á að húsnæðisskorturinn hamli
eðlilegri fólksfjölgun. Því gripum
við til þessa ráðs,“ segir Björn.
Þann 1. desember í fyrra voru
411 manns skráðir til heimilis í
Þórshafnarhreppi og segir Björn
íbúafjöldann lítið hafa breyst
undanfarin ár. - kk
Ævintýri í uppsiglingu:
Olía vellur upp
úr jör›inni
GRÆNLAND Vonir eru bundnar við
að olíulindir sé að finna úti fyrir
Nuuk á vesturströnd Grænlands
sem geti fært íbúum landsins
allt að 700 milljörðum íslenskra
króna í tekjur.
Kanadíska olíufélagið ElCana
áformar að bora á svæðinu eigi
síðar en árið 2008 en vonir eru
bundnar við að umtalsvert magn
olíu finnist í jarðlögum á hafs-
botninum þar.
„Á ákveðnum stöðum vellur
olían hreinlega upp úr
berggrunninum,“ er hermt í
danska blaðinu Jyllands-Posten.
Talsmenn auðlindaskrifstofu
Grænlands benda á að enn sé of
snemmt að fullyrða að olíuna sé
hægt að vinna en frumniður-
stöður lofi hins vegar góðu. ■
UNGVERJALAND
NAUÐLENDING Í BÚDAPEST
Tyrknesk farþegaþota varð að
nauðlenda á alþjóðaflugvellin-
um í Búdapest höfuðborg Ung-
verjalands í fyrradag. Þotan
var á leið frá Istanbúl í
Tyrklandi til Brussel í Belgíu
þegar mælitæki í henni virtust
gefa vélarbilun til kynna. Allt
gekk þó að óskum þegar hún
lenti en önnur vél var fengin til
að flytja farþegana 293 á leiðar-
enda.
Loksins
alvöru vasaorðabók
Ný og sérlega vönduð vasaorða-
bók sem stenst allar þær kröfur
sem gera má til góðra orðabóka.
Allar nauðsynlegar málfræði-
upplýsingar eins og orðflokkur
og beyging danskra orða, góðar
merkingarskýringar og notkunar-
dæmi. Framsetning bókarinnar
er skýr og aðgengileg.
NÝ BÓK
Verð
aðeins
3.990 kr.
M
YN
D
/A
P
LÖGREGLUFRÉTTIR
FJÓRTÁN ÁRA ÖKUMAÐUR
Fjórtán ára unglingur var
stöðvaður af lögreglu í Kópa-
vogi í fyrrinótt eftir að hann
tók bifreið foreldra sinna
traustataki og fór í bíltúr. Öku-
maðurinn ungi var færður á
lögreglustöð og sóttu foreldr-
arnir hann þangað.
VELTU BÍLALEIGUBÍL VIÐ BRÚ
Tveir spænskir ferðamenn
hlutu minniháttar meiðsl þegar
þeir veltu bílaleigubíl skammt
sunnan Brúar í Hrútafirði á
fimmtudagskvöldið. Nýlögð
klæðning var á veginum og því
hafði hámarkshraði verið lækk-
aður að sögn lögreglu á Hólma-
vík. Bifreiðin er talin ónýt.
ÞÓRSHÖFN Sveitarstjórn Þórshafnar lítur á byggingarstyrkina sem fjárfestingu sem skili
tekjum til sveitarfélagsins þegar fram í sækir.
KABÚL, AP Nær helmingur allra
brúða í Afganistan er yngri en 16
ára og á afskekktum svæðum
landsins eru stúlkubörn allt niður
í sex ára gefin í hjónabönd sam-
kvæmt upplýsingum sem AP-
fréttastofan hefur frá Sameinuðu
þjóðunum.
Þá er ekki óalgengt að stúlkur
séu gefnar í hjónaband í því skyni
að leysa ágreining milli ættflokka
og verða stúlkurnar þá eign fjöl-
skyldunnar eða einstaklingsins
sem fær hana afhenta.
Fall harðlínustjórnar talibana í
Afghanistan 2001 markaði nýja
tíma fyrir konur í Afganistan.
Milljónir stúlkna hafa hafið skóla-
göngu og konur flykkst út á vinnu-
markaðinn, sérstaklega í borgum
landsins.
Réttur kvenna var bættur í
nýrri stjórnarskrá en ósjaldan er
horft fram hjá lögunum. Ríkis-
stjórnin, undir stjórn Hamid
Karzai forseta, hefur lítil völd í
sumum héruðum landsins, sér-
staklega afskekktum svæðum, og
getur því ekki séð til þess að lög-
unum sé fylgt eftir. - sda
Hjónabönd í Afganistan:
Helmingur brú›a
undir lögaldri
AFGANSKAR KONUR Sameinuðu þjóðirnar segja að helmingur allra kvenna sem ganga í
hjónaband í Afganistan sé yngri en 16 ára.
Segja undirtóninn pólitískan
Í umfjöllun erlendra fjölmi›la um Baugsmáli› er ásökunum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á hendur Daví›
Oddssyni gefi› miki› vægi. Fjölmi›larnir fjórir sem sko›a›ir voru sérstaklega segja allir a› pólitískan
undirtón megi greina í málinu. Einn segir íslenskt vi›skiptaumhverfi fyrir rétti.
Niðurstaðan eftir
lagatúlkunum
Breska dagblaðið The
Independent segir að íslenskt
viðskiptaumhverfi sé fyrir
rétti í Baugsmálinu. Þá er
haft eftir Jóhannesi Jónssyni
að málið sé pólitískt samsæri
sem stjórnað er af Davíð
Oddssyni, fyrrverandi for-
sætisráðherra.
Blaðið segir að meginatriði
málsóknarinnar varði við-
skipti milli Baugs og Gaums.
„Í meginatriðum leyfa íslensk
lög viðskipti milli skyldra
einkahlutafélaga og almenn-
ingshlutafélaga þó svo að í
sumum tilfellum séu takmörk
á lánum sem veitt eru milli fé-
laganna. Það fer eftir því
hvernig lögin verða túlkuð
hvort Jóni Ásgeiri tekst að
hreinsa mannorð sitt,“ segir í
blaðinu.
Íhuga skaðabótamál
Danska dagblaðið Politiken
hefur eftir Gesti Jónssyni,
lögmanni Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, að hann hafi í
höndum skjöl sem sanni sak-
leysi sakborninga í hverjum
einasta ákærulið. Þá segir að
sakborningar haldi þeim
möguleika opnum að höfða
skaðabótamál gegn yfirvöld-
um vegna þess skaða sem
Baugur hefur orðið fyrir
vegna málsins.
Í Politiken segir jafnframt
að málið gegn Baugi hafi póli-
tíska undirtóna. „Jón Ásgeir
og faðir hans, Jóhannes Jóns-
son, saka fyrrum forsætisráð-
herra Íslands og núverandi
utanríkisráðherra, Davíð
Oddsson um að vera manninn
bak við yfirgripsmikla rann-
sókn lögreglu á málinu,“ segir
í blaðinu.
Davíð og múturnar
Í danska dagblaðinu Berl-
ingske Tidende segir að allir
hinna sex ákærðu í Baugsmál-
inu hafi lýst yfir sakleysi sínu
í málaferlum vegna svika er
nema alls 2,7 milljörðum ís-
lenskra króna. Í blaðinu segir,
líkt og í Politiken, að málið
hafi pólitíska undirtóna.
„Fyrrum forsætisráðherra og
núverandi utanríkisráðherra,
Davíð Oddsson, heldur því
fram að Jón Ásgeir Jóhannes-
son hafi reynt að múta sér,“
segir í Berlingske.
Minnst er á hlut Jóns Ger-
alds Sullenberger í málinu og
bent á að hann hafi komið
málinu af stað með því að
kæra Jón Ásgeir fyrir að falsa
reikninga.
sda@frettabladid.is
Pólitískar ástæður
Megininntak fréttar breska
viðskiptablaðsins Financial
Times um þingfestingu Baugs-
málsins eru fullyrðingar Jóns
Ásgeirs Jóhannssonar um þátt
Davíðs Oddssonar, fyrrverandi
forsætisráðherra, í málinu.
„Hr. Johannesson hélt því fram
að rannsóknin, sem tók þrjú ár,
hafi verið gerð af pólitískum
ástæðum og hafi upprunalega
átt að leiða til uppstokkunar
Baugs. Hann sagði að rann-
sóknin hafi verið gerð að til-
stuðlan Davíðs Oddssonar, sem
var forsætisráðherra á árunum
1991 til 2004,“ segir í blaðinu.
Þá segir að alvarlegasta
ákæran á hendur Jóni Ásgeiri
sé vegna fjárdráttar sem gæti
þýtti allt að sex ára fangelsis-
vist og að sumar ákærurnar
varði fjárfestingar í breska
fyrirtækinu Arcadia.