Fréttablaðið - 20.08.2005, Side 31
3LAUGARDAGUR 20. ágúst 2005
Almenn smurþjónusta
Hjólbarðaþjónusta
Sjálfskiptingaþjónusta
Rafgeymaþjónusta
Ísetning bremsuklossa
Dempara – ísetningar o.fl.
Vegmúli 4 • Sími 553 0440
Bíldshöfða 18 • 110 Rvk
Sími 567 6020 • Fax 567 6012
opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00
www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Frelsið er yndislegt
Íslendingar hafa orð á sér fyrir að hafa ekki of miklar áhyggj-
ur af því sem á eftir að gerast. Við látum hverjum degi nægja sín-
ar þjáningar, tæklum vandamálin jafnóðum og þau verða til og trú-
um því statt og stöðugt að ekkert verkefni sé of stórt fyrir okkur
að leysa á nokkrum klukkutímum. Þetta reddast.
Sennilega á veðrið sinn þátt í þessu, við þurfum að vera undir
allt búin, en ef við hefðum áhyggjur af veðrinu í hvert sinn sem
það breyttist myndum við sennilega ganga af göflunum.
Það er því kannski ekki skrítið að það heyri til undantekninga
að Íslendingar gefi stefnuljós. Slík fyrirhyggja og merki um niður-
njörfandi áætlanagerð er einfaldlega ekki okkar stíll. Við viljum
geta tekið bráðaákvörðun um hvert við förum og ef við þurfum að
láta heiminn vita með nokkurra metra fyrirvara erum við einfald-
lega að fórna frelsi og mannréttindum sem okkur þykja sjálfsögð.
Slíka fjötra er ekki hægt að setja á íslensku þjóðarsálina.
Úti í hinum stóra heimi er þetta öðruvísi. Þar er enginn frjáls í
umferðinni og allir gefa stefnuljós. Tímanlega. Þeir vita þá líka
hvenær bíllinn á undan ætlar að beygja. Þeir vita hvort bílstjórinn
sem steytir hnefann við hliðina á þeim er að reyna að skipta um
akrein eða hvort hann er einfaldlega morgunfúll. Þeir vita hvort er
verið hleypa þeim framúr, hvort bíllinn úti í kanti ætlar að vera
þar áfram, hverjir það eru hinum megin við gatnamótin sem ætla
að keyra þvert á þeirra stefnu og svo mætti lengi telja. Úti í hin-
um stóra heimi eru þessar upplýsingar aðgengilegar á kostnað
frelsisins. Í staðinn fyrir að gera það sem þeir vilja þurfa erlend-
ir bílstjórar að gefa stefnuljós með nokkurra sekúndna fyrirvara
og margir eru svo langt leiddir að þeir víkja fyrir öðrum sem nota
þessi merki. Til dæmis ef bílstjóri gefur til kynna með stefnuljósi
að hann vilji komast inn í bílaröð á næstu akrein. Já, það er sko
margt skrítið í útlandinu.
Fyrir þá sem vilja prófa er rétt að benda á að stefnuljós eru gef-
in með því að ýta stangarrofanum vinstra megin við stýrishjólið
upp (fyrir hægra ljós) eða niður (fyrir vinstra ljós). Með einföld-
um æfingum má ná töluverðri færni í þessari list en munum að
það er ekki síður mikilvægt að gefa æfingum annarra gaum og
sýna þeim tillitssemi með því að skapa þeim svigrúm, enda flækir
þessi viðbót stjórnun bifreiðar til muna.
Frelsið er yndislegt... en stefnuljós eru ekkert alslæm heldur.
Mikil sorg var hjá starfsmönnum MG Rover
þegar fyrirtækið fór á hausinn í apríl.
Ný bílalína á
rústum MG Rover
NANJING AUTOMOBILE GROUP OG GB
SPORTS CAR COMPANY HEFJA FRAM-
LEIÐSLU Á NÝJUM BÍLUM INNAN ÁRS.
Nanjing Automobile Group, kínverska fyr-
irtækið sem keypti eftirstandandi eigur
MG Rover, ætlar að vinna með breskum
hönnuðum hjá GB Sports Car Company
að því að framleiða nýja bílalínu í Long-
bridge í Birmingham á Englandi. Vonast
er til þess að framleiðsla nýju bílanna
verði hafin innan árs og stefnt er að
framleiðslu áttatíu þúsund bíla á ári.
Þegar Rover var selt stóðu vonir starfs-
manna til þess að tvö þúsund störf yrðu
til. Næstum sex þúsund manns misstu
vinnuna þegar fyrirtækið varð gjaldþrota
í apríl. Ráðningar starfsmanna hjá GB
Sports Car Company hefjast innan
skamms.
Sjötta kynslóð Variant kynnt
Hjá Heklu hefst sala á nýjum
Passat Variant í september.
Nýr Volkswagen Passat Variant
kom á markað í Þýskalandi í gær.
Hann er væntanlegur hjá Heklu í
september en þetta er sjötta kyn-
slóð Passat skutbílsins.
Variant merkið hefur verið
vörumerki skutbíla frá Volks-
wagen í 43 ár og hingað til hafa
verið smíðaðar rúmlega 4,3 millj-
ónir slíkra bíla.
Hinn nýi Variant mun fást í
fjórum gerðum með mismunandi
búnaði; Trendline, Comfortline,
Sportline og Highline. Grunn-
gerðin Trendline er til dæmis
búin rafrænum stöðugleikabún-
aði, Climatic loftræstibúnaði, sex
loftpúðum, sextán tommu felgum,
rafmagnshandbremsu, rafstýrðu
aflstýri, tölvustýrðum ræsi-
hnappi og þakgrindum.
Sé Variant pantaður með drátt-
artengi er bíllinn útbúinn rafræn-
um stöðugleikabúnaði fyrir farar-
tækið sem dregið er.
Átta gerðir véla verða fáanleg-
ar á Evrópumarkaði og skila þær
allt að 250 hestöflum. Grunngerð-
in er búin fimm gíra kassa, allar
hinar sex gíra kassa. Tvær vél-
arnar eru nýrrar gerðar. Önnur er
tveggja lítra TDI-vél, hin er 3,2
lítra V6 FSI-vél. Frá og með
haustinu 2005 verður einnig hægt
að fá 4MOTION með 2.0 FSI bens-
ínvél og 2.0 TDI dísilvél með for-
þjöppu.
Nýi Variantinn er 477 sentímetra langur
og 182 sentímetra breiður en það þýðir
að hann er 9,23 sentímetrum lengri og
7,4 sentímetrum breiðari en áður.