Fréttablaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 +10 +7 +6 +8 FÖSTUDAGUR 26. ágúst 2005 - 229. tölublað – 5. árgangur Nennir engu rugli Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson yfirgaf sófann í Kvöldþættinum á sjón- varpsstöðinni Sirkus á miðvikudag. Ástæðan er að hans sögn einfaldlega sú að þátturinn sé eins og menntaskóla- sjónvarp og hann hafi ekki tíma fyrir slíkt. ÍBV kærir Val Knattspyrnudeild ÍBV hefur lagt fram kæru til KSÍ vegna ólögmætra við- ræðna Valsmanna við Atla Jóhanns- son, leikmann ÍBV. Atli, sem er samn- ingsbundinn Eyjamönnum til ársins 2006, fékk símtal frá formanni knattspyrnu- deildar Vals þar sem honum var boðið að ganga til liðs við Hlíðar- endafélagið næsta sumar. ÍÞRÓTTIR 31 Leiðtogavandræði Sjálfstæðismenn í borginni fást við kunnuglegt foringjavandamál enda hefur þeim haldist illa á slíkum, segir Birgir Guðmundsson. Foringjamálin eru þó lítið skýrari hjá Samfylkingu. Í DAG 22 Í MIÐJU BLAÐSINS ● matur ● tilboð ▲ tíska kóngafólk heilsa persónuleikapróf dans matur stjörnuspá SJÓ NV AR PS DA GS KR ÁI N 26 . á gú st - 1 . s ep tem be r » og s ku gg al eg ir f yl gi fi sk ar br il lj an t la us n LY ST A R ST O L » da ns ka p ri ns es sa n st or ka r þj óð in ni A LE X A N D R A » sá tt v ið ti lv er un a V A L A M A T T Sátt vi› tilveruna VALA MATT ● lystarstol ● kóngafólk ▲ FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG VEÐRIÐ Í DAG ÍSKALDUR EINN LÉTTUR Málum bæinn RAUÐAN! BETRI NOTAÐIR BÍLAR Ennþá betri notaður bíll og Medion fartölva í kaupauka. Ekki mæta of seint! Eldurinn gaus upp í eldhúsinu MARGRÉT VILHJÁLMSDÓTTIR NORÐANÁTT ÁFRAM en dregur úr vindi. Bjart áfram syðra en áfram rigning eða skúraveður norðan- og austanlands. Hlýnar eitthvað. VEÐUR 4 FÓLK 42 SVEITARSTJÓRNARMÁL Borgaryfir- völd ætla að ganga til samninga við Sigurjón Sighvatsson kaup- sýslumann um sýningarrétt á úti- listaverki Ólafs Elíassonar, Blind Pavilion, til tveggja ára. Þegar hefur verið gerð viljayfirlýsing um slíkan samning en forsenda hans er að Sigurjón kaupi verkið af Ólafi. Frá því hefur ekki verið gengið. Reykjavíkurborg greiðir eina milljón í leigu fyrir hvort ár, auk þess að greiða tryggingu fyrir verkið. Verkið yrði þá tryggt fyrir 17,5 milljónir en samkvæmt heim- ildum mun söluverð þess vera um 30 milljónir króna. Sigurjón Sighvatsson segir að kaupi hann verkið af Ólafi verði það óháð því hvort gerður verði samningur við Reykjavíkurborg. Það kom honum á óvart að þetta hefði verið rætt á fundinum, þar sem samningum væri ekki lokið. „Þetta er ekki listaverk sem borgin myndi kaupa nema með sérstakri fjárveitingu,“ segir Stef- án Jón Hafstein, formaður menn- ingarmálaráðs. Hann segir að málið hafi borið nokkuð brátt að, þar sem búið hafi verið að ráða fólk til að taka verkið niður í næstu viku. „Þetta er gert af því að verk- ið er í Viðey og okkur finnst mikil- vægt að gera eyna að menningar- legum áfangastað.“ Hann segir leiguverðið fyrir verkið ekki hátt miðað við aðra samstarfssamninga sem borgin hafi gert. Gísli Marteinn Baldursson, sem á sæti í ráðinu, segir sjálf- stæðismenn hafa setið hjá við af- greiðslu málsins þar sem ekki sé hægt að taka afstöðu til þess fyrr en þeir sjái samninginn. „Almennt séð væri það stefnubreyting að leigja listaverk af eigendum þeirra úti í bæ og greiða hærra verð en listamenn sem eiga verk- in eru að fá. Borgin þarf að fara varlega í að borga kaupsýslu- mönnum úti í bæ fyrir að sýna okkur listaverkin sem þeir hafa keypt þegar við erum á sama tíma að reyna að toga peninga út úr öðrum kaupsýslumönnum til að styrkja ýmsa listviðburði.“ Áslaug Thorlacius, sem situr sem áheyrnarfulltrúi í ráðinu fyrir hönd listamanna, segir að sér finnist samningurinn mjög sérstakur, ekki síst í ljósi þess að tillagan hafi ekki borist á borð ráðsins í samræmi við þær reglur sem það hafi sett sér um að lista- styrkir fari í gegnum fagráð. - ss Leigja af tilvonandi eiganda Reykjavíkurborg ætlar a› semja vi› Sigurjón Sighvatsson um a› leigja af honum listaverki› Blind Pavilion eftir Ólaf Elíasson í tvö ár. Sigurjón hefur ekki fest kaup á verkinu en ef af ver›ur fær hann tvær milljónir frá borginni. Listaverkinu er ætla› a› bæta ímynd Vi›eyjar, segir forma›ur menningarmálará›s. BAGDAD, AP Ekkert varð af því að íraska þingið legði blessun sína yfir drög að framtíðarstjórnar- skrá landsins í gær en þá rann frestur þess til þess út í þriðja sinn. Síðla dags var ákveðið að reyna til þrautar í dag að fá súnnía til að samþykkja stjórnarskrárdrög sem liggja fyrir. Geri þeir það ekki verða þau eftir sem áður lögð undir þjóðaratkvæði, sagði Hajim al- Hassani þingforseti. Á mánudaginn gáfu íraskir stjórnmálaleiðtogar sér þriggja daga viðbótarfrest til að ljúka við gerð stjórnarskrár og átti þingið að fjalla um drögin í gærkvöld. Síðdegis í gær tilkynnti hins vegar Bishro Ibrahim, einn tals- manna þingsins, að engin áform væru um þingfundi þann daginn og ekkert væri ákveðið um hvenær það kæmi saman næst. Enn virðist því vera bullandi ágreiningur á milli landsmanna um inntak þessa mikilvæga plaggs. Dæmi um sundrungina eru átök heittrúaðra sjía, annars vegar manna Muqtada al-Sadr, eldklerks frá Najaf, og liðsmanna Íslamska byltingarráðsins í Írak (SCIRI). Fjórir féllu í bardögum þeirra í Najaf í fyrradag og skarst í odda á milli fylkinganna víðar um landið í gær. Þær greinir á um hvort Írak skuli verða sambandsríki eður ei. Lík 36 manna, Kúrda að því er talið er, fundust skammt utan við Bagdad í gær. Hendur þeirra höfðu verið bundnar og þeir skotnir í höfuðið. - shg Hvorki gengur né rekur í viðræðum stjórnmálaleiðtoga Íraks: Stjórnarskráin enn í pattstö›u M YN D /A P HEITT Í HAMSI Muqtada al-Sadr sagði árásir SCIRI-manna vera geymdar en ekki gleymdar. Björgunarsveitir kallaðar út: Manns leita› á hálendinu LEIT Björgunarsveitir frá Höfn í Hornafirði og Egilsstöðum leituðu í nótt á hálendinu að bandarískum ferðamanni sem skilaði sér ekki til byggða á tilætluðum tíma. Að sögn lögreglu á Höfn var maðurinn á leið frá Snæfelli, en ætlaði að koma niður af hálendinu á Lónsöræfum við Illakamb um klukkan tvö í gær. Aðstæður til leitar voru erfiðar í gær, dimmt yfir með roki og kalsa, og grennsluðust björgunar- sveitirnar fyrir um hvort maður- inn hefði haldi kyrru fyrir í skála einhvers staðar. Hafi maðurinn ekki komið í leitirnar í nótt verður tekin ákvörðun um frekari leit þegar morgnar. - óká Í ÞJÓÐBÚNINGUM VIÐ HALLGRÍMSKIRKJU 600 konur frá 28 löndum taka þátt í árlegu heimsþingi Ladies Circle sem var sett í Hallgríms- kirkju í gærkvöldi. Margar þeirra voru klæddar þjóðbúningum landa sinna og setti það mikinn svip á þingið. Ladies Circle er alþjóðleg samtök kvenna sem hafa það markmið að auka vináttu kvenna frá ólíkum menningarheimum og víkka sjóndeildarhring þeirra. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L BLIND PAVILION Reykjavíkurborg hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við Sigurjón Sighvats- son um að leigja verkið af honum í tvö ár ef hann kaupir Blind Pavilion af Ólafi Elíassyni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.