Fréttablaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 22
Eflaust hefur frétt í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í fyrrakvöld kætt marga á kaffistofum landsins í gær. Hún fjallaði um eigendur býlis í Stafford-skíri í Bretlandi, sem neyddust til að hætta ræktun á svínum frá Gíneu og nokkur hundruð vísindamenn sem höfðu safnað undirskriftum til stuðn- ings notkun tilraunadýra í vís- indalegum tilgangi. Með því vildu þeir sporna gegn áralangri bar- áttu dýraverndunarsinna. Hið kátlega við frétt RÚV var meinleg þýðingarvillan, en sem kunnugt er kalla enskir öll tilraunadýr „guinea pig“. Bókstafstrúin hefur augljóslega ráðið ríkjum í flýtin- um á fréttastofunni þannig að hamstrar og kanínur og önnur til- raunadýr á búgarði í Stafford- skíri urðu að svínum frá Gíneu. Ólíklegt er að nokkur muni erfa skondin mistök af þessu tagi við fréttastofuna, sem nær alltaf flyt- ur áreiðanlegar, yfirlesnar og vandaðar fréttir, sérstaklega þegar um er að ræða mál sem miklu skipta. Svínin frá Gíneu munu því kveðja dyra eitt andar- tak í íslenskri þjóðfélagsumræðu, létta mönnum lund og hverfa síðan á burt. Framboðs- og foringjataflið í borgarstjórn Reykjavíkur er hins vegar þess eðlis að verra er fyrir þá sem þar spila að gera mistök. Gildir þá einu hvort yfirsjónin er stór eða smá – í skákinni sem nú er að hefjast er spilað fast og mönnum refsað grimmilega fyrir sérhvern afleik. Eftir formlega andlátstilkynningu Reykjavíkur- listans er staðan orðin enn við- kvæmari en ella, og mikið í húfi fyrir alla flokka, en ekki síst stóru flokkana sem báðir gera sér vonir um að komast í lykilstöðu að kosn- ingum loknum. Foringjamál skipta miklu, enda ljóst að bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur munu í krafti stærðar sinnar tefla fram borgarstjóraefni, hvort sem einmitt það orðalag verður notað eða eitthvað annað. Víst er að sjálfstæðismenn eru hér að fást við kunnuglegt vanda- mál, enda hafa þeir haldið óhönduglega á foringjamálum sínum í borginni frá því Markús Örn Antonsson sté til hliðar á sín- um tíma. Ágætis stjórnmálamenn hafa komið fram en ekki náð að festa sig í sessi sem leiðtogar, einkum vegna þess að tiltrúna og eindrægnina hefur vantað inni í flokknum sjálfum. Árna Sigfús- syni var ekki fyllilega treyst, og ekki Ingu Jónu Þórðardóttur held- ur. Innkoma Björns Bjarnasonar á sínum tíma var óneitanlega nokk- uð sérstök og fól í sér yfirlýsingu um að borgarstjórnarflokkurinn byggi í raun við leiðtogaskort. Og mitt í þeim leiðtogaskorti tekur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson við leiðtogahlutverkinu en nýtur – líkt og Inga Jóna – ekki ótvíræðs stuðnings, því sífellt er verið að leita að einhverjum öðrum leið- toga. Nú er nefndur til sögunnar Gísli Marteinn Baldursson og raunar fleiri. Össur Skarphéðinsson skrifar í vikunni pistil á heimasíðu sína þar sem hann fjallar um fram- boðsmál sjálfstæðismanna og sér- staklega hugsanleg átök milli Vil- hjálms Þ. og Gísla Marteins. Greinilegt er að Össur gjörþekkir framboðsraunir sjálfstæðis- manna og stráir salti í sárin með því að draga athyglina að því að enn eina ferðina kunni menn að vera að upplifa sömu martröðina – enn einn „múrmeldýrsdaginn“! Sú tilraunastarfsemi sem leið- togaefni sjálfstæðismanna séu að stunda á sjálfum sér kunni með öðrum orðum að hafa slæmar af- leiðingar fyrir flokkinn. Það vekur hins vegar athygli að foringjamálin hjá Samfylking- unni eru lítið skýrari en hjá Sjálf- stæðisflokknum. Þar eru í það minnsta þrír mjög frambærilegir stjórnmálamenn sem eru tilbúnir að gerast tilraunadýr í leiðtoga- rannsóknum flokksins. Innbyrðis staða Steinunnar Valdísar Óskars- dóttur borgarstjóra og Stefáns Jóns Hafstein oddvita flokksins er afar óræð og ekki bætir úr skák að Össur hefur sjálfur gefið því undir fótinn að hann útiloki ekki að taka að sér leiðtogahlut- verk flokksins í borginni. Slík inn- koma forustumanns flokksins á landsvísu – sem hins mikla bjarg- vættar – minnir raunar óþyrmi- lega á innkomu Björns Bjarnason- ar hjá sjálfstæðismönnum síðast. Sú formúla gekk ekki upp eins og alkunna er. Nú kunna það að vera góð vísindi að endurtaka tilraunir til að kanna hvort ekki fáist sama niðurstaða og í fyrri tilraun – en það væri engu síður skynsamlegt fyrir Össur að hugsa sig vel um áður en hann gerist tilraunadýr í slíkri endurtekningu. Össur hefur þrátt fyrir allt ýmsa valkosti í pólitík á landsvísu enda snjall pólitíkus og það er því talsvert í húfi fyrir hann. Og raunar gildir svipað um önnur leiðtogaefni hjá Samfylkingunni. Gagnrýni þeirra á ósamkomulag sjálfstæðismanna um leiðtoga gæti sem hægast hitt þá sjálfa fyrir. Mistök hjá tilraunadýrunum í leiðtogabaráttu stóru flokkanna munu því ekki hverfa úr þjóð- félagsumræðunni í einni svipan eins og Gíneusvín Fréttastofu RÚV. Það er því eðlilegt að hik sé á mönnum, því enginn vill vera pólitískt svín frá Gíneu í mis- heppnaðri stjórnmálatilraun í Reykjavík – allra síst ef verið er að endurtaka fyrri tilraunir sem allar mistókust. ■ Þ að kostaði um tíu milljónir að gera upp á milli formanns-efnanna Össurar Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sól-rúnar Gísladóttur hjá Samfylkingunni. Eflaust kostaði líka mikla peninga að gera upp á milli Davíðs Oddssonar og Þor- steins Pálssonar á sínum tíma. Það kostar líka mikið að halda úti kosningabaráttu fyrir heilu flokkana. En hvað sem öll þessi bar- átta kostar og hversu margir sem liggja eftir átökin og sama hversu mikið hefur verið tekist á og hversu stór orð hafa fallið eiga nær allir frambjóðendur í stjórnmálum á Íslandi eitt sam- eiginlegt, þeir upplýsa ekki þjóðina um það hverjir borga millj- ónir á milljónir ofan til að tryggja Össuri eða Ingibjörgu eða Davíð eða Þorsteini eða Sjálfstæðisflokki eða Framsókn eða Samfylkingu eða Vinstri grænum framtíð í stjórnmálum. Þjóðin hefur ekki kost á að athuga hvort frambjóðendurnir sem ná kjöri eigi það til að borga framlögin sem þeir þáðu til baka í störfum sínum. Hversu mikið sem stjórnmálamenn takast á skulu þeir standa saman um leyndina. Þar skera þeir sig frá því sem gerist í öðrum löndum. Okkar stjórnmálamenn segja meira að segja að það gæti orðið lýðræðinu hættulegt ef þjóðin vissi hverjir borga flokkunum og þingmönnunum. Að lög í öðrum löndum sem tryggja að upplýsingarnar séu gerðar opinberar séu lýðræðinu hættuleg. Þessu trúir ekki nokkur maður, ekki heldur þeir sem halda þessu samt fram í hvert sinn sem bent er á ruglið. Það gengur ekki endalaust að benda á aðra. Það er tækifæri nú fyrir Össur og Ingibjörgu Sólrúnu að sýna gott fordæmi og upplýsa þjóðina um það hvaða fyrirtæki og félög stóðu straum af kostnaði við framboð þeirra til embættis formanns Samfylk- ingarinnar. Sennilega verður þetta tækifæri ekki nýtt frekar en öll hin. Stjórnmálamenn hika ekki við að gagnrýna svo margt. Þeir liggja ekki á skoðunum sínum, sem betur fer. Hitt er annað að það leysir þá alls ekki frá þeirri kröfu að þeir geri hreint fyrir sínum dyrum. Fram undan eru sveitarstjórnarkosningar sem munu kosta verulega mikla peninga. Áður en til þeirra kemur verða mörg bræðravíg, þar sem fleiri vilja komast í bestu sæti framboðslista en pláss er fyrir. Þess vegna verður tekist á og miklu til kostað. Fyrir fram er það nokkuð víst að allir fram- bjóðendurnir og allir flokkarnir munu enn og aftur gefa kjós- endum langt nef þegar kemur að því að skýra frá því hverjir hafa gengið í liðið með peninga og kostað flokkana og frambjóð- endurna í valdastóla. Það á eftir að upplýsast hverjir kosta flokkana og stjórn- málamennina, kannski ekki strax en sérstaða Íslands hvað þetta varðar verður ekki eilíf. En hvers vegna haldið er dauðahaldi í leyndina geta þeir einir svarað sem ekkert vilja segja, okkur hin getur í mesta lagið grunað að þiggjendurnir hafi eitthvað að fela. En hvað það er skýrist síðar. 26. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR SJÓNARMIÐ SIGURJÓN M. EGILSSON Enn hafa stjórnmálamenn kjörið tækifæri til að upplýsa hverjir borga þeim. Hver er hvers? FRÁ DEGI TIL DAGS En hvers vegna haldi› er dau›ahaldi í leyndina geta fleir einir svara› sem ekkert vilja segja, okkur hin getur í mesta lagi gruna› a› fliggjendurnir hafi eitthva› a› fela. Í DAG LEIÐTOGAMÁL Í REYKJAVÍK BIRGIR GUÐMUNDSSON SUNNUMÖRK 2 810 HVERAGERÐI SÍMI 483 3206 Í VERSLUNARMIÐSTÖÐINNI SUNNUMÖRK VIÐ ÞJÓÐVEG NR. 1 OPNUNARTÍMI MÁNUD. - FIMMTUD........... FÖSTUDAGA...................... LAUGARDAGA................... 11:00 - 18:30 11:00 - 19:30 12:00 - 16:00 ALVÖRU HUMAR & ANNAÐ GIRNILEGT FISKMETI BEINT Á GRILLIÐ ERTU Á LEIÐINNI AUSTUR FYRIR FJALL Í BÚSTAÐINN EÐA ÚTILEGUNA? Svín frá Gíneu Engin svör Einar K. Guðfinnsson alþingismaður gerir Samfylkinguna að umtalsefni á heima- síðu sinni í tilefni af nýbirtu uppgjöri Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur um kostnað við formannskjörið í vor. Samfylkingin segist vilja hafa bókhald stjórnmálaflokk- anna opið. „Samt er þeirra eigið bókhald, harðlæst fyrir öllum, nema innvígðum og útvöldum. Og þegar fyrir liggur að kostn- aður í formannskjöri flokksins á síðasta vori var a.m.k. einn tugur millj- óna, að sögn, er því harð- neitað að gera nokkuð opinbert. Styrktu fyrirtæki framboðið og þá hversu mikið og hversu mörg og þá hver, spurði fréttamað- urinn í útvarpinu.... - Ég bara veit það ekki sagði formaður Samfylkingarinnar (!) og vísaði á fram- kvæmdastjóra einhvers konar fyrirtækis sem stofnað var um framboð hennar.“ Skinhelgi Einar segir þetta ekki eina dæmið um „ótrúlegar þverstæður og skinhelgi“ í starfi flokks sem sé „sífellt með siða- prédikanir á vörunum“ en meini bersýni- lega ekkert með orðagjálfrinu. „Í Samfylk- ingunni segja þeir að ekki passi að þing- menn sitji í nefndum og ráðum. Einkan- lega ekki ef þar sé vélað með fé. Þetta framkvæma þeir til dæmis með því að setja varaþingmenn en ekki þingmenn í sum ráð og í stjórnir sumra stofnana, þar sem þeir eiga aðkomu að. En svo gildir þetta ekki alltaf og alls staðar. Sums staðar virðast menn jafnari en aðrir...Þess vegna situr formaður flokksins í stjórn Seðlabankans, einn þingmaður í stjórn stærsta orkufyrirtækis landsins, annar í stjórn stærstu hafnar landsins, enn einn í stjórn fjármálafyrirtækis og svo má áfram telja.“ Drykkjusamkoma Æ fleirum verður tíðrætt um ómenning- arbraginn sem er að færast yfir Menning- arnótt í Reykjavík. Er ekki kominn tími til að hugsa þessa ágætu dagskrá alveg upp á nýtt? Hún hefur smám saman verið að breytast í eina allsherjar drykkjusam- komu, borgarbúum og borgaryfirvöldum til álitshnekkis. Nú þegar tími hugmynda- stjórnmálanna er að renna upp í aðdraga borgarstjórnarkosninga væri gaman að fá ferskar tillögur um hvernig bregðast eigi við þessum vanda. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprent- smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.