Fréttablaðið - 26.08.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,33 63,63
114,19 114,75
77,89 8,33
10,447 10,509
9,822 9,88
8,353 8,401
0,576 0,5794
93,02 93,58
GENGI GJALDMIÐLA 25.8.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
08,91 +0,01
4 26. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
Skýrsla Sameinuðu þjóðanna um félagslegt ástand heimsins:
Ójöfnu›urinn fer stö›ugt vaxandi
FÁTÆKT Ójöfnuður er meiri í
heiminum í dag en fyrir áratug
og stór hluti heimsbyggðarinnar
er fastur í gildru fátæktar. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu
Sameinuðu þjóðanna.
Í skýrslunni Félagslegt
ástand heimsins 2005: Gildra
ójöfnuðar, sem Sameinuðu þjóð-
irnar gáfu út í gær, er varað við
vaxandi ójöfnuði um allan heim.
Þar er því haldið fram að gjáin á
milli ríkra og fátækra, mennt-
aðra og ómenntaðra og sjúkra
og heilbrigðra hafi snarbreikk-
að síðastliðin tíu ár.
Helstu niðurstöður skýrslu-
höfunda eru að ójöfnuður innan
og á milli landa sé fylgifiskur
hnattvæðingar en aftur á móti
er viðurkennt að umdeilt sé
hversu stóran þátt aukin einka-
væðing og frjálsræði í efna-
hagslífi eigi í þróuninni. Þá er
atvinnuleysi sagt enn of mikið,
sérstaklega á meðal ungs fólks.
Jafnframt er á það bent að
dagstekjur nærri fjórðungs
vinnandi fólks í heiminum séu
enn undir einum Bandaríkjadal
á dag – með öðrum orðum undir
fátæktarmörkum – og er ástand-
ið sérstaklega slæmt í Afríku
sunnan Sahara.
Launaójöfnuður hefur aukist
mjög á undanförnum árum, sér-
staklega á milli fag- og ófag-
lærðra. Lægstu laun hafa lækk-
að en hæstu tekjurnar aukist
gríðarlega. - shg
Menningarnótt:
Funda› um
breytingar
MENNINGARNÓTT Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykja-
vík, fundar í dag með samstarfsaðil-
um Reykjavíkurborgar um Menn-
ingarnótt. Á fundinum verður rætt
hvort tilefni sé til að halda Menning-
arnótt með öðrum hætti en hefur
verið undanfarin ár vegna
drykkjuláta og ofbeldis sem ein-
kenndu aðfaranótt sunnudags, eftir
að skipulagðri dagskrá Menningar-
nætur lauk.
Jóna Hrönn Bolladóttir mið-
borgarprestur leggur meðal annars
til að Menningarnótt verði ekki
haldin að ári eða að hún verði haldin
á sunnudegi, í viðtali við Fréttablað-
ið sem birt verður á morgun. - ss
BÍLL FORSÆTISRÁÐHERRANS Bílstjóri ráð-
herrans lést en ráðherrann sjálfur slapp
lítið meiddur.
Hryðjuverk í Ingúsetíu:
Tilræ›i vi›
héra›sstjóra
RÚSSLAND, AP Tvær sprengjur
sprungu við vegkant í borginni
Nazran í sjálfsstjórnarhéraðinu
Ingúsetíu í Rússlandi í gær þegar
héraðsstjóra þess var ekið hjá.
Bílstjóri héraðsstjórans lést í
tilræðinu. Héraðsstjórinn slasað-
ist sjálfur nokkuð ásamt tveimur
öðrum við sprenginguna.
Að sögn aðalsaksóknara Suður-
Rússlands virðast tjsetsjenskir
skæruliðar hafa verið að verki en
borgin Nazran hefur áður verið
skotmark í sjálfstæðisstríði þeirra
gegn Rússum. Ingúsetía á landa-
mæri að Tsjetsjeníu. ■
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A
MANTRA 4x4
á ferð um landið
Laugardaginn 27. ágúst
Kl. 10.00 á Hvolsvelli – hjá Björgunarsveitinni Dagrenningu.
Kl. 13.00 á Selfossi – hjá Björgunarfélagi Árborgar.
Kl. 15.30 í Hveragerði – hjá íþróttahúsinu.
Nánari upplýsingar um staðsetningu og tímaáætlun bílanna
í símum 825 5451 og 825 5452. RÆSIR HF. sími 540 5400
VEÐRIÐ Í DAG
Herjað á kókabændur:
Myrtir me›
köldu bló›i
KÓLUMBÍA, AP Skæruliðar myrtu að
minnsta kosti fjórtán bændur,
þrettán karla og eina konu, sem
tíndu kókalauf af runnum Norð-
vestur-Kólumbíu í gær.
Skæruliðarnir eru meðlimir í
samtökum sem kalla sig Bylting-
arher Kólumbíu, FARC. Samtök-
in græða fúlgur fjár á hverju ári,
líkt og önnur slík samtök í Kól-
umbíu, á eiturlyfjaframleiðslu og
sölu á ákveðnum svæðum. Í Kól-
umbíu hika skæruliðasamtök
sem þessi ekki við að myrða
bændur sem ekki fara að fyrir-
mælum þeirra. ■
KJÖRIN ERU KRÖPP Fjórðungur vinnandi
fólks í heiminum fær minna en einn
Bandaríkjadal í laun á dag.
M
YN
D
/A
P
UMÖNNUNARSTÖRF Svo mikill
skortur er á fólki í umönnunar-
störf að dæmi eru um að stofn-
anir sem sinna hjúkrun aldraðra
geti ekki mannað allar vaktir
sínar með sjúkraliðum, segir
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélags Íslands.
„Ástandið á sumum stofnun-
um er hræðilegt og mikið álag á
starfsfólk,“ segir Kristín. „Það
er alvarlegt ef hjúkrunarstofn-
anir ná ekki einu sinni að manna
allar vaktir með sjúkraliðum og
eingöngu er ófaglært starfsfólk í
umönnun. Gæði hjúkrunar
minnka að sama skapi og farið
verður að loka á innlagnir,“ segir
hún. „Það kemur niður á öllu
þjóðfélaginu því á hjúkrunar-
heimilum fyrir aldraða er nær
eingöngu fólk sem ekki hefur
heilsu til að hugsa um sig sjálft,“
segir Kristín.
„Yfirvöld tala um að fjölga
þurfi úrræðum fyrir aldraða. Ég
spyr hins vegar: Hver á að
manna þau störf sem við það
skapast þegar ekki er nóg af
fólki til að vinna þau störf sem
fyrir eru? Það er eins og yfir-
völd stingi höfðinu í sandinn yfir
þessu vandamáli,“ segir hún.
Áslaug Björnsdóttir hjúkrun-
arforstjóri Sunnuhlíðar, hjúkr-
unarheimilis aldraðra í Kópa-
vogi, segir að enn vanti fólk í
nokkrar stöður hjá Sunnuhlíð.
„Það er ívið meiri skortur á
starfsfólki nú en venjulega,“
segir Áslaug. „Það er augljós
tregða við að sækja um, sérstak-
lega í stöður ófaglærðra, það er
að segja störf við aðhlynningu,“
segir hún.
Áslaug segir skýringuna
einna helst þá að vegna þenslu í
þjóðfélaginu séu þessi störf ekki
lengur samkeppnisfær hvað
varðar laun. „Við greiðum ófag-
lærðu starfsfólki eftir taxta Efl-
ingar og eru grunnlaun um 100
þúsund krónur á mánuði, en svo
bætist ofan á það vaktaálag og
annað,“ segir Áslaug. Hún segir
að besta leiðin til þess að leysa
vandann sé að bæta launakjör.
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að
vinnuaflsskortur sem hafi verið
bundinn við byggingariðnaðinn
og stórframkvæmdir komi nú
fram víðar. „Þá eru þau störf
sem eru kannski verr launuð og
þykja erfið þau sem eftir sitja,“
segir hann. Hann segir það þó já-
kvætt að fyrirtæki séu farin að
leita að reynslumiklu starfsfólki
eða eldra fólki í ýmis störf.
Aðspurður segir hann tals-
vert um innflutning á útlending-
um til að vinna við þrif og þjón-
ustu í kringum umönnunarstörf
en ekki beint í umönnun vegna
þess hve mikilvægt tæki tungu-
málið sé í þeim störfum.
sda@frettabladid.is
Sjúkrali›alaust á sumum vöktum
Forma›ur Sjúkrali›afélags Íslands segir skort á starfsfólki í umönnunarstörf ver›a til a› gæ›i hjúkrunar
minnki. Stjórnvöld stingi höf›inu í sandinn yfir vandanum. Á sumum vöktum stofnana eru engir sjúkra-
li›ar. Hjúkrunarforstjóri Sunnuhlí›ar segir bætt launakjör bestu lei›ina til a› fjölga fólki.
SKORTUR ER Á FÓLKI Í UMÖNNUNARSTÖRF Ástandið er svo alvarlegt að á sumum hjúkrunarheimilum aldraðra tekst ekki að manna allar
vaktir með sjúkraliðum og sinnir því eingöngu ófaglært starfsfólk umönnun aldraðra.