Fréttablaðið - 26.08.2005, Page 40

Fréttablaðið - 26.08.2005, Page 40
„Mér líst mjög vel á þetta. Lista- háskólinn er mjög kraftmikil stofnun og í stöðugri þróun, starfsfólkið er kraftmikið og nem- endur frjóir,“ segir Kjartan Ólafs- son tónskáld sem nýverið var ráð- inn prófessor í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands en það er fyrsta staða sinnar tegundar hér á landi. Kjartan lauk doktorsgráðu í tónsmíðum og tónfræðum frá Sí- belíusar-Akademíunni í Helsinki árið 1995 en hafði áður lagt stund á nám í raftónlist í Hollandi. „Þetta starf er þrískipt. Kennsla er grunnurinn, síðan er stjórnunarþáttur þar sem námið er skipulagt og þróað áfram í sam- ræmi við þróun í listalífinu. Í þriðja lagi eru tónsmíðar og rann- sóknir,“ segir Kjartan sem býst við að geta sinnt tónsmíðum af jafn miklum krafti og áður. „Þetta kallar á meiri skipulagningu sem er af hinu góða,“ segir Kjartan sem semur allar gerðir tónlistar. „Ég hef mest starfað við nú- tímatónsmíðar fyrir kammerhópa og sinfóníuhljómsveitir og verið mikið í raftónlist sem er mjög spennandi vettvangur sem er alltaf í þróun. Síðan hef ég gert leikhústónlist, barnatónlist og popptónlist,“ segir Kjartan sem hlustar á mjög fjölbreytta tónlist þegar hann slakar á heimavið. „Plötuskápurinn hjá mér er mjög fjölbreyttur og svo veltur bara á því hvaða stemmningu maður vill ná fram,“ segir Kjartan sem er sem stendur á norrænni ráðstefnu um höfundarrétt á Egilsstöðum. Kjartan hefur frá árinu 1988 unnið að hönnun og þróun tón- smíðaforritsins CALMUS. „Þetta forrit er í raun bara framlenging af eldri aðferðum. Reikniaðferð- um er beitt til að vinna með tónefni eins og hefur verið gert frá því Pýþagóras kom fram með sínar kenningar,“ segir Kjartan og bætir við að Bach hafi meðal annars notað þessar aðferðir mik- ið. „Ég hannaði forritið fyrst og fremst til að auka fjölbreytni í tónsköpun,“ segir Kjartan sem tók snemma þá ákvörðun að fara ekki út í markaðssetningu á því enda hefði hann þá hugsanlega endað sem fínstrokinn stórlax í viðskiptum frekar en prófessor með úfið hár tónskáldsins. ■ 28 26. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR Semur allar gerðir tónlistar KJARTAN ÓLAFSSON TÓNSKÁLD: RÁÐINN PRÓFESSOR Í TÓNSMÍÐUM timamot@frettabladid.is Hljóðver hinnar rafmögnuðu dömu eða The Electric Lady Recording Studio var þennan dag árið 1970 opnað í New York í Bandaríkjunum. Hugmynda- smiður og upphafsmaður hljóð- versins var gítarhetjan Jimi Hendrix, sem hafði í mörg ár dreymt um að koma á stofn nú- tímalegu hljóðveri. Vegna vandamála dróst það til 1970 en hljóðverið var opnað aðeins mán- uði fyrir dauða Hendrix. Jimi Hendrix fæddist í Seattle árið 1942 og ólst nánast upp með gítar í hönd. Hann fór í herinn árið 1959 og varð fallhlífahermaður. Hann hætti í hernum árið 1961 vegna meiðsla og þurfti af þeim sökum ekki að gegna herstörf- um í Víetnam. Snemma á sjöunda áratugnum spilaði hann sem varagítarleikari fyrir ekki minni listamenn en Little Richard, B.B. King og Ike og Tinu Turner. Eitt kvöld heyrði bassaleik- ari hljómsveitarinnar The Animals Hendrix spila á kaffihúsi í New York. Hann heillaðist af spila- mennskunni, gerðist umboðsmað- ur Hendrix og flutti hann til Bretlands þar sem hann stofnaði hljómsveit. Fyrsta smáskífa sveit- arinnar, Hey Joe, sló rækilega í gegn. Hendrix kom í síðasta sinn fram á tónlistar- hátíð í Bretlandi í ágúst árið 1970. Hann lést í London í september sama ár. Dauðdagi hans var ekki fagur þar sem hann kafnaði í eigin ælu eftir ofneyslu eiturlyfja. Hann var aðeins 27 ára gamall. JIMI HENDRIX MERKISATBURÐIR 1920 Konur fá rétt til að kjósa í Bandaríkjun- um. 1948 Loftleiðir hefja áætl- unarflug til Bandaríkj- anna. 1950 Vegurinn um Óshlíð, milli Hnífsdals og Bolungarvíkur, er vígður. 1974 Flugkappinn Charles Lindbergh deyr 72 ára að aldri á Hawaii. 1984 Keppt er í fyrsta sinn í Reykjavíkurmaraþoni. 1991 Ísland stofnar fyrst ríkja formlega til stjórnmálasambands við Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lett- land og Litháen. 1994 Jón Arnar Magnússon bætir tíu ára Íslands- met í langstökki um 21 sentimetra. Hendrix opnar hljó›ver Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn hér a› ofan má senda á netfangi› timamot@frettabladid.is. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Erlendur Kr. Vigfússon Rjúpufelli 42, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. ágúst síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum veittan stuðning. Jóhanna S. Sigurðardóttir Vigfús Erlendsson Ásta Kjartansdóttir Björk Erlendsdóttir Símon Jónsson Sigurður Erlendsson Rósa Williamsdóttir Guðmundur Erlendsson Dagný Svavarsdóttir Guðbjörg Erlendsdóttir Ólafur H. Ólafsson og fjölskyldur Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma, Alda Sigurvinsdóttir Barðastöðum 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. ágúst kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Kristín S. Vilhelmsdóttir Atli Edgarsson Guðmundur J. Vilhelmsson Jóndís Einarsdóttir Ragna G. Vilhelmsdóttir Rudolf K. Rúnarsson Linda B. Vilhelmsdóttir Óskar G. Óskarsson Halldór G. Vilhelmsson Íris Ólafsdóttir Alda Guðlaug, Bryndís Ósk, Ragnar Björn, Hanna Liv, Guðný Ása og Vilhelm Frank. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, tengdadóttir og amma, Guðný (Nína) Jóhannesdóttir Einhamri (áður Jörundarholti 26), Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness 22. ágúst sl. Útför hennar verður gerð frá Akraneskirkju þriðjudaginn 30. ágúst kl. 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Hjörleifur Jónsson Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir Elvar Trausti Guðmundsson Lísbet Fjóla Hjörleifsdóttir Gunnar Sigurðsson Guðrún Hjörleifsdóttir Hilmar Ægir Ólafsson Fjóla Guðbjarnadóttir Lilja Helgadóttir og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Héðinn Jónsson skipstjóri, Mýrum 14, Patreksfirði, andaðist mánudaginn 22. ágúst. Útförin fer fram frá Patreksfjarðarkirkju þriðjudaginn 30. ágúst kl. 14:00. Guðrún Jónsdóttir Elín Magnea Héðinsdóttir Bolli Ólafsson Jón Már Héðinsson Rósa Líney Sigursveinsdóttir Inga Mirjam Héðinsdóttir Kristján Hermannsson Jóhannes Héðinsson Styrgerður Fjeldsted Freyr Héðinsson Steinunn Finnbogadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Snjólaug Magnea Bjarnadóttir Þelamörk 54, Hveragerði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, sunnudaginn 21. ágúst, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag föstudag kl. 11.00. Magnús Kr. Guðmundsson Guðrún Reynisdóttir Gyða Ó. Guðmundsdóttir Kolbeinn Kristinsson Bjarni R. Guðmundsson Brynja Sveinsdóttir Ragnheiður Guðmundsdóttir Lars D. Nielsen Sveinn H. Guðmundsson Erna Þórðardóttir Hildur Rebekka Guðmundsdóttir ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. www.steinsmidjan.is ANDLÁT Erlendur Kr. Vigfússon, Rjúpufelli 42, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hring- braut 11. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrr- þey. Guðrún Agla Gunnlaugsdóttir, Sörlaskjóli 28, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 16. ágúst. Útför hef- ur farið fram í kyrrþey. Daníel Teitsson, Hátúni 12, Reykjavík, lést í Hátúni 12 sunnudaginn 21. ágúst. Guðrún Jóna Dagbjartsdóttir, Brekku, Núpasveit, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 23. ágúst. Jóhanna Sigrún Thorarensen, Lágholti 17, Mosfellsbæ, lést miðvikudaginn 24. ágúst. JAR‹ARFARIR 11.00 Guðbrandur Jóhannsson frá Ás- hóli, Grenilundi 6, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju. 11.00 Guðmundur Benediktsson, fyrr- verandi ráðuneytisstjóri, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni. 11.00 Jenný Oddsdóttir, Kárastíg 13b, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju. 11.00 Snjólaug Magnea Bjarnadóttir, Þelamörk 54, Hveragerði, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju. 13.00 Guðmundur Helgason málara- meistari, Fensölum 6, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Digranes- kirkju. 13.00 Haraldur Steinþórsson, Neshaga 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 13.00 Sigurjón Jóhannsson, Kapla- skjólsvegi 65, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju. 13.00 Valgerður Ólöf Adolfsdóttir, til heimilis á hjúkrunarheimilinu Fellsenda, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu. 14.00 Sigrún Edda Jónasdóttir, Snægili 23, Akureyri, verður jarðsungin frá Glerárkirkju. 14.00 Stefán Gunnarsson frá Skipanesi verður jarðsunginn frá Akranes- kirkju. 16.00 Margrét Hallgrímsdóttir frá Skálanesi, til heimilis á Suðurgötu 14, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju. ÞETTA GERÐIST > 26. ÁGÚST 1970 PRÓFESSOR Í TÓNSMÍÐUM Kjartan býst við að geta sinnt tónsmíðum af jafn miklum krafti og áður. M YN D /Þ Ó R IR B AL D U R SS O N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.