Fréttablaðið - 26.08.2005, Page 42
26. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR
> Við undrumst ...
... ummæli Barkar Edvardssonar hjá
knattspyrnudeild Vals við vefmiðilinn
Fótbolta.net síðdegis í gær. Þar kvaðst hann
ekki vita hver Atli Jóhannsson hjá ÍBV væri,
en Börkur er sakaður um að hafa rætt við
hann á ólögmætan hátt. Stuttu síðar sagði
hann við Fréttablaðið að málið væri
misskilningur sem til væri kominn
vegna rangra upplýsinga frá
heimildarmanni sínum, sem
Börkur vill með engu móti gefa
upp. Það Það þarf varla að minna
Börk á það að tvísaga málflutningur
á það til að grafa undan trú-
verðugleika.
Hannes strax til Stoke?
Landsliðsframherjinn Hannes Þ.
Sigurðsson, sem er á mála hjá Viking í
Noregi, mun hugsanlega ganga til liðs við
Stoke áður en félagaskiptafresturinn í
Evrópu rennur út 1. september, en áður
stóð til að Hannes færi til félagsins um
áramótin. Hann kom ekki við sögu hjá
Viking í Evrópukeppninni í gærkvöldi og
gefur það til kynna að hann sé á förum á
allra næstu dögum.
sport@frettabladid.is
30
> Við óskum ...
.... Breiðabliki hjartanlega til
hamingju með að vera búið að
tryggja sér sigur í 1. deildinni.
Blikar hafa verið með lang-
besta liðið í 1. deildinni í
sumar og eru enn taplausir.
Meistaradeildin:
A-RIÐILL
BAYERN MÜNCHEN JUVENTUS
CLUB BRUGGE RAPÍD VÍN
B-RIÐILL
ARSENAL AJAX AMSTERDAM
SPARTA PRAG THUN
C-RIÐILL
BARCELONA PANATHINAIKOS
WERDER BREMEN UDINESE
D-RIÐILL
MANCHESTER UNITED VILLARREAL
LILLE BENFICA
E-RIÐILL
AC MILAN PSV EINDHOVEN
SCHALKE FENERBAHCE
F-RIÐILL
REAL MADRID LYON
OLYMPIAKOS ROSENBORG
G-RIÐILL
LIVERPOOL CHELSEA
ANDERLECHT REAL BETIS
H-RIÐILL
INTER MILAN PORTO
RANGERS ARTMEDIA BRATISLAVA
Árni Gautur Arason, markvörður ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu, átti
stórleik í fyrrakvöld þegar Våler-
enga mætti Club Brugge frá
Belgíu í Meistaradeild Evrópu.
Belgíska liðið hafði sigur í víta-
spyrnukeppni eftir að staðan
hafði verið 1-0 eftir venjulegan
leiktíma.
Geir Bakke, aðstoðar-
þjálfari Vålerenga,
sagðist aldrei hafa
orðið vitni að eins
góðri frammistöðu
hjá markverði.
„Þetta var ótrúlegt.
Árni hreinlega lok-
aði markinu í fram-
lengingunni og
varði frábærlega vel allan leikinn. En því
miður dugði það ekki til.“ Og Erik
Thorstvedt, fyrrverandi landsliðsmark-
vörður Noregs, tók í sama streng.
„Árni er góður markvörður en
frammistaða hans í þessum leik var
stórbrotin.“
Árni sjálfur var frekar daufur í dálkinn
enda alltaf slæmt að falla úr keppni
eftir vítaspyrnukeppni. Hann
sagðist ekki hafa upplifað
aðra eins stórskotahríð á sín-
um ferli. „Ég hef ekki haft
svona mikið að gera á mín-
um ferli, nema þá helst
þegar ég var með landslið-
inu gegn Brasilíu. Það var
skotið mikið á markið eftir
að við urðum einum færri í
seinni hálfleik. Ég reyndi bara að verja
það sem kom á markið og það gekk
vel. En úrslitin eru auðvitað vonbrigði.
Núna þurfum við bara að taka okkur
saman í andlitinu og vinna deildina í
Noregi og helst bikarkeppnina líka.“
Norskir fjölmiðlar héldu ekki vatni yfir
frammistöðu Árna Gauts og halda því
fram að hún hefur örugglega vakið at-
hygli hjá útsendurum stórliða sem fylgj-
ast vel með forkeppni Meistaradeildar
Evrópu. „Ég er ekkert að hugsa um neitt
annað félag en Vålerenga, sem í
mínum huga er stórt félag. Ég efast nú
um að það muni einhver lið vera að fal-
ast eftir kröftum mínum núna þegar ég
er orðinn þrítugur. Ég er viss um að
Vålerenga getur komist í Meistaradeild
Evrópu á næstu árum.“
ÁRNI GAUTUR ARASON: ÁTTI STÓRLEIK Í EVRÓPUKEPPNINNI Í FYRRAKVÖLD
Aldrei haft eins miki› a› gera í leik
Dregið í Meistaradeildinni:
Chelsea mætir
Liverpool á n‡
FÓTBOLTI Í gær var dregið í riðla í
Meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu og þar bar hæst að Liver-
pool og Chelsea, sem mættust í
undanúrslitum keppninnar í
fyrra, verða saman í riðli í ár,
ásamt Real Betis og Anderlecht
frá Belgíu. Steven Gerrard, fyrir-
liði Liverpool, var kosinn leikmað-
ur keppninnar í fyrra við þetta
sama tækifæri og sagði það
mikinn heiður. „Það er ótrúlegt að
verða fyrir valinu innan um alla
þessa frábæru leikmenn og ég get
ekki beðið eftir að mæta Chelsea í
riðlinum núna. Það eru samt fleiri
sterk lið þarna sem má alls ekki
vanmeta,“ sagði Gerrard. - bb
Sófasett í úrvali
Glæsilegt opnunartilboð:
Þriggja sæta hægindasófi og tveir
hægindastólar (3+1+1) af bestu gerð.
Sannkallaðir letistólar.
Verð aðeins 209.900
Mikið úrval af
borðstofusettum
Úrval skilrúma,
kommóða, borða.
Sjón er
sögu ríkari!
Haukur Dór - Sýningin stendur yfir
Verið velkomin að Dalvegi 18.
Gallery Húsgögn
Stofuborð.
Listagripur úr kopar og gleri.
Einn sá flottasti!
Horn sófi með snúningi á endasætum.
Opnunartilboð aðeins 221.800
í glæsilegri og rúmgóðri verslun okkar að Dalvegi 18
Opið alla virka daga frá 11-18, laugardaga 11-16 og sunnudaga frá 13-16
SÍÐASTA HELGI
OPNUNARTILBOÐS
SÍÐASTA HELGI
OPNUNARTILBOÐS
Láttu verðið koma þér á óvart!
HM U-21 í Ungverjalandi:
Loksins unnu
Íslendingar
HANDBOLTI Íslenska piltalandsliðið
í handknattleik vann í gær Suður-
Kóreu, 34-33, á heimsmeistara-
mótinu í Ungverjalandi og vann
sér þar með rétt á að spila um
níunda sæti á mótinu. Ásgeir Örn
Hallgrímsson átti stórleik og
skoraði þrettán mörk í fimmtán
skottilraunum.
Arnór Atlason var hetja
Íslands í leiknum með því að
skora sigurmarkið á síðustu
sekúndu leiksins, en íslenska liðið
var með yfirhöndina nánast allan
leikinn og átti sigurinn skilinn.
ÁSGEIR ÖRN HALLGRÍMSSON Náði loksins
að sýna sitt rétta andlit gegn S-Kóreu í gær.