Fréttablaðið - 26.08.2005, Page 51
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kate Moss hefurkeypt sér heim-
ili í Los Angeles á
tæpar 200 milljónir
króna. Samkvæmt
The New York Post
keypti fyrirsætan
íbúð í Tony Sierra-
turnunum á
Doheny Drive. Ná-
grannar hennar í
byggingunum eru
meðal annars Lindsay Lohan og
Matthew Perry. Moss á fyrir heimili í
London og setur í Oxfordshire. Þessi
glæsilega fyrirsæta hefur svo eins og
allir vita verið í sambandi með rokk-
aranum Pete Doherty að undan-
förnu, hvernig sem þau mál standa
svosum núna.
Jamie Oliver eða Kokkur án klæðaeins og hann kallar sig stendur
víst ekki eins vel undir nafni eins og
kona hans, Jools.
Þessi tveggja barna
móðir segist ein-
ungis klæðast pínu-
lítilli svuntu þegar
hún sér um elda-
mennsku heimilis-
ins og á jólunum er
hún með sérstakt
atriði. „Stelpurnar
fara í háttinn og ég
sendi Jamie út úr herberginu. Svo
kalla ég á hann að koma inn og er
nakin fyrir utan það að vera með
jólakúlur á brjóstunum og svo
dansa ég kjánalegan dans. Þetta er
mun meira kjánalegt en kynæsandi
og fær hann til að hlæja,“ segir
Jools, sem mun bráðlega sitja fyrir
hjá Ronnie Wood og hefur Jamie
heimtað að hún verði nakin á
myndunum.
Pamela Anderson vill hvetja karl-menn til að vera mun þrautseig-
ari þegar þeir reyna að heilla hana.
Hún segist alltaf vera í
vandræðum með að
finna karlmenn
vegna þess hversu
fljótt aðdáendur
hennar gefast upp
á að elta hana.
„Mig langar til að
hitta einhvern
en ég vil að
gengið sé á eftir
mér. Hér í
Hollywood er fullt
af mönnum sem
reyna einu sinni
en gefast svo upp,“
sagði hún pirruð.
„Það er lítið um að
fólk gangi á eftir
ástinni sinni og
lítið um alvöru ástríðu nú á dögum.
Það sem var best við Tommy var að
hann elti mig alla leið til Cancun og
bað mig um að giftast sér eftir fjóra
daga. Það var rómantískt og ástríðu-
fullt, allar stelpur vilja láta ganga á
eftir sér.“