Fréttablaðið - 26.08.2005, Side 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Í KVÖLD
Föst. 9.sept.
Lau. 10 sept.
Föst. 30. sept
Í bo›i Gu›s
Áfram Kristsmenn krossmenn,segi ég nú bara. Eftir ævilang-
an móral yfir því að eiga í basli
með að tolla í trúnni, klikka alger-
lega á því að vera andaktug yfir því
að Jesú hafi verið göldróttur og
skverað margföldunartöflunni á
brauð og fiska með góðum árangri,
gert efnafræðina hlægilega með
því að breyta H2O í vín, afurð sem
þarf ávexti og sérstakar veðurfars-
legar aðstæður, ásamt verkþekk-
ingu til þess að framleiða og fara
svo út að spássera á vatni, er mér
allri lokið.
UM ALLAN hinn vestræna heim
er kristin kirkja fyrirferðarmikil,
ótal tegundir, vegna þess að kristin
trúarbrögð eru eins og íslensk póli-
tík. Þegar einhver fær ekki að ráða
í þeim flokki sem hann vill ráða
stofnar hann nýjan flokk. En það er
alveg sama hvar ber niður í þessum
söfnuðum, það er alls staðar sviðin
jörð.
GRANNAR OKKAR, Írar, hafa
staðið í trúarbragðastríði áratugum
saman, þótt allt sé með kyrrum
kjörum í augnablikinu. Kaþólska
kirkjan í Ameríku er með allt niður
um sig vegna þess að prestar mis-
nota drengi og biskupar þagga það
niður, eiga nóg með sjálfa sig og sín
dónalegu sambönd við ritarana
sína. Þeir félagar Bush og Blair,
sem eru frelsaðir eins og Gunnar í
Krossinum, hamast við að „útrýma“
terroristum – og örfáum þúsundum
í viðbót sem eru þeir asnar að vera
fyrir byssunum og sprengjunum.
Nýjustu fréttir úr hinum kristna
heimi eru þær að einn dáðasti og
kristnasti sjónvarpsprédikari hins
vestræna heims, Pat Robertson,
hefur lagt til að forseti Argentínu
verði ráðinn af dögum.
ÞETTA ER bara brot af þeim
morðstefnum í nafni kristinnar
trúar sem dunið hafa yfir heiminn.
Það má til dæmis nefna rann-
sóknarréttinn og galdraofsóknirnar
á miðöldum. Það er ekki nema von
að manni renni kalt vatn milli
skinns og hörunds þegar rifjast upp
að fyrrverandi forsætisráðherra
okkar er meiriháttar sálmaskáld og
fylgir Bush og Blair blint í góð-
mennskuaðgerðum þeirra, sem eru
í boði Guðs. Þess sama Guðs sem
okkur var kennt að boðaði að við
ættum ekki að drepa. Hvers vegna
er þetta eina aðferðin sem kristnum
mönnum dettur í hug til þess að
leysa vanda heimsins? ■
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð.
Kannastu við
tilfinninguna
að fá hærri
einkunn á prófi
en þú reiknaðir
með?
Á Skóladögum hjá Betri notuðum bílum getur þú valið um
100 bíla á aldeilis frábærum tilboðskjörum.
Nú er tækifærið til að hífa upp mætinguna í skólann í vetur.
Komdu og kynntu þér málið. Þeir fyrstu verða ekki síðastir.
Það er eins og að fá meiri bíl
en maður borgar fyrir
og Medion fartölvu í kaupauka.
www.toyota.is
100% fjármögnun á notuðum bílum.
Í samstarfi við
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
Toyota
Nýbýlavegi 4
KÓPAVOGUR
Sími 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
AKUREYRI
Sími: 460-4300
Bifreiðaverkstæði Borgþórs
Miðási 2
EGILSSTAÐIR
Sími: 471-2660
Toyotasalurinn
Njarðarbraut 19
REYKJANESBÆR
Sími: 421-4888
Toyotasalurinn
Fossnesi 14
SELFOSS
Sími: 480-8000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
29
28
5
0
8/
20
05