Fréttablaðið - 25.09.2005, Side 6
LANDBÚNAÐUR Uppskera á korni
hér á landi hefur meira en tutt-
ugufaldast frá árunum 1991-1993
og ekkert lát virðist á aukning-
unni. Í ár er talið að bændur hafi
sáð 3.300 hekturum af korni,
samanborið við 150 árið 1991 og
búist er við að uppskeran verði
um 11.000 tonn í ár, en hún var
rúm 500 tonn fyrir fjórtán árum.
Nánast allt korn sem ræktað
er hér á landi er bygg, en það er
sú korntegund sem skemmstan
tíma þarf til að þroskast. Þó er
eitthvað um að bændur hafi sáð
hveiti.
„Þetta hefur aukist jafnt og
þétt um tíu til fimmtán prósent á
ári og ég býst ekki við öðru en að
það haldi áfram,“ segir Jónatan
Hermannsson, tilraunastjóri á
Korpu, en þar hefur Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins lengi
stundað tilraunir með kornrækt.
Hann á ekki von á neinum stórum
stökkum. „Bæði er bændum sem
rækta korn að fjölga og menn eru
líka að rækta meira hver fyrir
sig.“
Að sögn Hermanns eru um 50
prósent kornakra á Suðurlandi,
rúm 30 prósent á Norðurlandi,
um 15 prósent á Vesturlandi og
fimm prósent á Austurlandi.
Ræktunin fylgir nokkurn veginn
mjólkurframleiðslunni. „Þetta er
enn sem komið er fyrst og fremst
notað sem fóður fyrir mjólkur-
kýr, bændurnir rækta þetta fyrir
þær.“
Finnbogi Magnússon, fram-
kvæmdastjóri búvélafyrirtækis-
ins Jötunn Vélar á Selfossi, spáir
því að kornrækt hér á landi muni
margfaldast á næstu árum. „Við
finnum fyrir mjög miklum áhuga
á kornrækt meðal bænda,“ segir
Finnbogi. „Til dæmis seldum við
þrjár nýjar þreskivélar í ár og
við erum alltaf að selja meira og
meira af kornsniglum, kornvöls-
um og fleiru í kringum þetta.“
Finnbogi segir þennan áhuga
ekki bundinn við bændur í ein-
stökum landshlutum heldur finni
sölumenn fyrir honum um allt
landið.
Þá hefur það stóraukist síð-
ustu ár að bændur þurrki korn
frekar en að súrsa það. Jónatan
giskaði á að nú væri um helming-
ur alls korns þurrkaður, en lengi
vel var nánast öll kornfram-
leiðsla súrsuð.
grs@frettabladid.is
6 25. september 2005 SUNNUDAGUR
Stjórnarkreppa blasir við á Ítalíu eftir að Berlusconi krafðist afsagnar bankastjóra Seðlabankans:
Afsögn fjármálará›herra veldur ólgu
RÓM, AP Stjórnarkreppa blasir við
á Ítalíu í kjölfar þess að forsætis-
ráðherrann Silvio Berlusconi
krafðist þess á föstudag að banka-
stjóri Seðlabanka Ítalíu segði af
sér. Fjármálaráðherrann Domen-
ico Siniscalco sagði af sér emb-
ætti á fimmtudag þar sem tilraun-
ir hans til að koma Fazio frá völd-
um í seðlabankanum höfðu mis-
tekist.
Háværar ásakanir eru á hend-
ur Fazio um að hann hafi verið vil-
hallur ítalska bankanum Popolare
Scarl í samkeppni við hollenska
Amro bankann um yfirtöku á
Banco Antonveneta. Fjölmiðlar á
Ítalíu hafa birt hleruð samtöl sem
benda eindregið til þessa. Fazio
neitar öllum ásökunum og ætlar
ekki að segja af sér. Giulio
Tremonti hefur tekið við embætti
fjármálaráðherra. Hann er svar-
inn andstæðingur Fazios. Hann
hefur hvatt Fazio til að segja af
sér.
„Afsögn Siniscalcos er rot-
höggið fyrir trúverðugleika
stjórnar Berlusconis,“ segir í
ítalska dagblaðinu Corriere della
Sera á föstudag.
- saj
Fjölveiðiskip Samherja hafa lokið veiðum á norsk-íslenskri síld:
Aflaver›mæti› um tveir milljar›ar
SÍLDARVERTÍÐ Fjölveiðiskip Sam-
herja, Baldvin Þorsteinsson EA 10
og Vilhelm Þorsteinsson EA 11,
komu með fullfermi af frystum
síldarflökum til Akureyrar á föstu-
dag en um þrír mánuðir eru síðan
skipin komu síðast til hafnar á Ís-
landi. Skipin hafa verið að veiðum
á norsk-íslenskri síld frá 10. maí,
aðallega utan íslensku lögsögunn-
ar, og var aflinn unninn um borð.
Bæði skip hafa nú fullnýtt afla-
heimildir sínar úr norsk-íslenska
síldarstofninum og er aflaverð-
mætið um tveir milljarðar króna.
Baldvin Þorsteinsson kom með
640 tonn af frystum síldarafurð-
um úr síðustu veiðiferðinni og um
borð í Vilhelmi Þorsteinssyni voru
592 tonn. Samanlagður afli beggja
skipa á vertiðinni var 39 þúsund
tonn af síld úr sjó eða um 20 þús-
und tonn af frystum afurðum.
Til að fagna heimkomu skip-
anna, og góðri síldarvertíð, fóru á
þriðja hundrað boðsgestir í sigl-
ingu með skipunum um Eyjafjörð
í gær og var hádegisverður
snæddur um borð í boði Sam-
herja. - kk
Sprenging í kornframlei›slu
Kornrækt hefur tuttugufaldast hér á ári sí›ustu fimmtán ár og er búist vi› a› uppskeran ver›i 11.000
tonn í ár. fiá hefur fla› stóraukist a› menn flurrki korn frekar en a› súrsa fla› til manneldis.
VETUR Á HEIÐUM Það borgar sig ekki að
leggja á heiðar öðruvísi en á vel búnum
bílum.
Umferð á heiðum:
Bílvelta og
útafakstur
VEÐUR Víða um land er illfært á
heiðum enda er þar vetur genginn
í garð. Í umdæmi Sauðárkrókslög-
reglunnar urðu tvö umferðar-
óhöpp í gær, annað á Siglufjarðar-
vegi en hitt á Sauðárkróksbraut.
Bílar lentu utan vegar vegna
krapa og veðurskilyrða en engan
sakaði. Mikil umferð var á svæð-
inu vegna Laufskálarétta sem eru
um þessa helgi.
Á Siglufirði varð bílvelta í
Mánárbeygju í fyrrakvöld. Öku-
maður og farþegi voru tveir í bíln-
um og var farið með þá til skoðun-
ar á heilsugæslustöðina en meiðsl
þeirra reyndust ekki alvarleg.
Bíllinn var hins vegar óökufær
eftir og var fluttur með kranabíl
til Siglufjarðar.
Á Egilsstöðum hafa ökumenn
lent í vandræðum og björgunar-
sveitin á Seyðisfirði var kölluð út
til aðstoðar ökumanni jeppabif-
reiðar sem ekki var nógu vel búin
til aksturs í snjó og slyddu.
- bb
www.icelandfi lmfestival.is
MasterCard kynnir:
„Mundi það drepa þetta lið
að halda þetta að sumri til?“
- jökull ii
20% afsláttur af 10 mynda pössum til MasterCard korthafa.
Sjá www.kreditkort.is
40 MYNDIR Á 3 VIKUM
HVERT FER JÖKULL II?
OKTÓBERBÍÓFEST
Í Háskólabíói og Regnboga 26. október - 14. nóvember 2005
Heldurðu að Baugsmálið fái
efnislega meðferð fyrir dómi?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var eðlilegt að ýta rannsókn á hóp-
nauðgun til hliðar vegna rannsóknar á
líkamsárás?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
60,5%
39,5%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON Forstjóri Samherja ávarpaði boðsgesti áður en haldið var
í siglingu um Eyjafjörð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
R
IS
TJ
ÁN
ÍTALSKIR RÁÐAMENN Núverandi fjármála-
ráðherra Tremonti, Berlusconi forsætisráð-
herra, Letta aðstoðarritari og Siniscalco,
fjármálaráðherrann sem sagði af sér.
M
YN
D
/A
P
19921991 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005*
525
150 240 200
440
200
1.700
500
960
400
2.960
800
4.560
1.200
4.680
1.200
4.620
1.400
6.300
1.500
6.500
2.000
7.100
2.400
10.300
2.600
10.900
2.900
11.000
3.300
3,5 1,2 2,2 3,4 2,4 3,7 3,8 3,9 3,3 4,2 3,3 3,0 4,0 3,8 3,3
H
ek
ta
ra
r
H
ek
ta
ra
r
To
nn
a
f
ko
tn
i
To
nn
a
f
ko
tn
i
Tonn á hektara
Eins og sjá má hefur kornræktin, það er sánir
hektarar, vaxið jafnt og þétt, en uppskeran hefur
verið mjög mismikil og þá ræður veðurfar mestu.
Önnur súlan fyrir hvert ár sýnir sána hektara en
hin uppskeruna. Eins og sjá má hefur uppskeran
á góðu ári orðið 4,2 tonn á hektara á ári hverju
en hefur minnst orðið 1,2 á hörðu ári.
KORNSKURÐUR UNDIR EYJAFJÖLLUM
Kornskurður stendur nú yfir. Búist er
við að heildaruppskeran af 3300
hekturum verði 11.000 tonn.
*Áætlun Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Heimild: Handbók bænda
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/H
EIÐ
A
LÖGREGLUFRÉTTIR
SLAGSMÁL Á SELFOSSI Tveir
gistu fangageymslur lögreglunn-
ar á Selfossi aðfaranótt laugar-
dags vegna óláta og slagsmála
eftir að skemmtistöðum bæjarins
var lokað. Mönnunum hefur báð-
um verið sleppt en búist er við að
einhverjar kærur verði lagðar
fram. Málin voru aðskilin. Ekkert
sérstakt tilefni var til skemmt-
anahalds annað en helgin.