Fréttablaðið - 25.09.2005, Page 9
Við byrjum með autt blað
Virkjaðu hugmyndaflugið fyrir Vatnsmýrina!
MÓTUM BORG NÝRRA TÍMA
Hafðu áhrif á framtíð höfuðborgarinnar
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að halda alþjóðlega hugmyndasamkeppni um
framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar. Áður en forsendur samkeppninnar verða skilgreindar
er kallað eftir hugmyndum, viðhorfum og væntingum borgarbúa og landsmanna allra um
svæðið. Þetta er einstakt tækifæri fyrir þig til að hafa áhrif á mótun á annað hundrað
hektara lands sem gegna mun lykilhlutverki í borgarmynd Reykjavíkur í
framtíðinni.
Margar leiðir til þátttöku – vertu með
• Samráðsdagar, þar sem leitað er eftir hugmyndum og viðhorfum almennings til
skipulags Vatnsmýrarinnar í framtíðinni, verða haldnir fimmtudaginn 29. september
og laugardaginn 1. október í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
• Þú getur heimsótt heimasíðuna www.vatnsmyri.is til að fá upplýsingar um
Vatnsmýrarsvæðið og dagskrá Samráðsdaga.
• Hugmyndir má líka senda á alit@vatnsmyri.is eða til Skipulags- og bygginga-
sviðs Reykjavíkur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, merkt „Vatnsmýri“.
• Sérstaklega verður hlustað eftir viðhorfum landsbyggðarfólks til landnotkunar
í Vatnsmýri með skoðanakönnun á vegum Félagsvísindastofnunar Háskólans.
Menningarminjar í Vatnsmýrinni
Í dag verður efnt til gönguferðar um Vatnsmýrarsvæðið undir leiðsögn
Helga M. Sigurðssonar, sagnfræðings. Farið verður frá Hótel Loftleiðum kl. 14.00.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
R
V
K
29
27
2
0
9/
20
05