Fréttablaðið - 25.09.2005, Blaðsíða 10
„Höfuðmarkmið okkar er að efla
skilning landsmanna á mikilvægi
eignarréttar og frjálsra viðskipta
fyrir samfélagið. Þá eigum við
ekki bara við mikilvægi fyrir hag-
vöxt og efnahagslega velsæld
heldur líka fyrir lýðræði og rétt-
indi borgaranna. Þetta markmið
næst ekki á einni nóttu heldur
horfum við til langs tíma,“ segir
Birgir Tjörvi Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknarmið-
stöðvar um samfélag- og efna-
hagsmál (RSE).
Í fyrrahaust var RSE stofnuð af
Ragnari Árnasyni prófessor, Birgi
Þór Runólfssyni dósent, Jóhanni J.
Ólafssyni kaupmanni, Jónasi
Haralz fyrrverandi bankastjóra og
Birgi Tjörva, sem hefur gegnt
starfi framkvæmdastjóra. Hann
segir ætlunina að byggja starfsem-
ina upp hægt og bítandi. Ekki eigi
endilega að byrja með miklum
lúðrablæstri strax í upphafi heldur
undirbúa jarðveginn vel.
„Við höfum horft til áþekkra
stofnana sem eru starfræktar
víða erlendis. Þá á ég við stofnan-
ir Hoover Institution í Bandaríkj-
unum, Fraser Institute í Kanada,
Timbro í Svíþjóð og IEA í Bret-
landi. Þangað sækjum við fyrir-
myndinina þótt hugmyndafræðin
sé ekki í alla staði eins. Við byggj-
um málflutning okkar á grunni
sem hefur verið lagður af þeim
einstaklingum sem koma að starf-
inu,“ útskýrir Birgir Tjörvi.
Breiður hópur fólks
Hann segir að starfrækt sé sér-
stakt rannsóknarráð sem fari með
æðsta vald um þau verkefni sem
ráðist sé í á vegum stofnunarinnar
og sé skipað fræðimönnum í
fremstu röð. „Þeir sem koma úr
hópi fræðimanna, úr háskólum og
vísindasamfélaginu munu bera
ábyrgð á allri rannsóknarvinnu og
faglegri hlið starfseminnar. Aðrir,
sem koma aðallega úr atvinnulíf-
inu, koma meira að rekstrarlegum
þáttum. Þetta er því sameiginlegt
átak breiðs hóps fólks víða að.“
Birgir segir að RSE ætli að ná
markmiðum sínum meðal annars
með rannsóknum, fræðslu, útgáfu,
ráðstefnum og annarri starfsemi.
Ekki eigi bara að beina umræðunni
að fólki í atvinnulífinu og stjórn-
málamönnum heldur ekki síður til
almennings; fólksins í landinu. Þótt
umræðan eigi að vera fagleg og
byggja á fræðilegum forsendum
verði framsetningin að vera öllum
skiljanleg. Aukinn skilningur allra
á mikilvægi eignarréttar og
frjálsra viðskipta fyrir lýðræðis-
legt þjóðfélag sé mikilvægur.
„Þótt Íslendingar hafi í saman-
burði við aðra góðan skilning á
mikilvægi frelsis, lýðræðis og
eignarrétti, hornsteinum réttarrík-
isins, er ekki þar með sagt að við
séum alltaf á verði gagnvart þeim
hættum sem steðja að þessum
grundvallaratriðum,“ segir Birgir
Tjörvi. „Þá er ég ekki að segja að
við þurfum að vera meðvituð um
það, þegar við kaupum inn í kvöld-
matinn úti í búð, að við séum í raun
að gera samning um skipti á eign-
um, samning sem hægt er að fram-
fylgja fyrir dómstólum. Ekki frek-
ar en að við þurfum að vita allt um
rafmagn til að geta kveikt ljós í
herbergi. Hins vegar er þjóðfélag-
ið á stöðugri hreyfingu og ef við
erum ekki vakandi yfir því hvað
skapar gott samfélag er hætta á að
við glötum því sem hefur áunnist.
Það þarf ekki að gerast á einni
nóttu heldur frekar smátt og
smátt.“
Öfgafull sjónarmið
Birgir segir að þau sem standa að
RSE hafi fundið að í góðæri sé til-
hneigingin frekar sú að taka frjáls-
um viðskiptum og skýrum eignar-
rétti sem sjálfsögðum hlut. Um leið
og það gerist sé meiri hætta á
bakslagi sem þörf sé að vinna
gegn. Það megi til dæmis sjá á um-
ræðu um umhverfismál og alþjóða-
væðingu þar sem öfgafull sjónar-
mið hafi sprottið fram og notið
vaxandi hylli, einkum hjá ungu
fólki. Þar sé málflutningurinn á
köflum ómálefnalegur og feli jafn-
vel í sér ofbeldisfullan áróður.
Núna sé jafnvel stemning hjá ungu
fólki að taka undir þessi sjónarmið.
„Þetta er eitt af þessum hættu-
merkjum sem við sjáum ástæðu til
að bregðast við og ræða um. Það
þarf stöðugt að halda á lofti þeim
hugmyndum sem hafa skapað hér
gott samfélag til mótvægis við
öfgafullan málflutning sem grefur
undan þeim.“
Aðspurður segir Birgir einstak-
linga og fyrirtæki fjármagna starf-
semina. Það sé tekið sérstaklega
fram í skipulagsreglum rannsókn-
armiðstöðvarinnar að ekki sé tekið
á móti opinberum styrkjum. Það
eigi að tryggja sjálfstæði RSE og
ýta undir frumkvæði. Þetta fyrir-
komulag sé ekki algengt á Íslandi,
að stofnun sem fjalli fyrst og
fremst um þjóðfélagsmál og sinni
rannsóknum með langtímamark-
mið að leiðarljósi sé ekki fjármögn-
uð af hinu opinbera. Það sé vonandi
vísir að því sem koma skuli því
ekki sé heilbrigt að öll slík starf-
semi sé fjármögnuð af skattfé
borgaranna og háð vilja stjórn-
málamanna.
Óháð stjórnmálaflokkum
Hann segir RSE ekki tengt nein-
um stjórnmálaflokki og muni ekki
taka þátt í pólitískum framboðum.
„Það eina sem við munum gera er
að leggja til og taka þátt í umræðu
um þau mál sem eru efst á baugi,
en nálgast þau á faglegum for-
sendum. Við ætlum að taka þátt í
rökræðunni en ekki kappræðunni.
Við viljum ekki festast í einhverj-
um flokkspólitískum skilgreining-
um og ætlum ekki að nálgast hlut-
ina út frá þeim.“
Rannsóknarmiðstöð um sam-
félags- og efnahagsmál mun vera
í miklum alþjóðlegum samskipt-
um að sögn framkvæmdastjórans
og er m.a. um þessar mundir að
byggja upp samstarf við sam-
bærilegar norrænar stofnanir.
Þetta framtak hafi fengið góðan
hljómgrunn hér á landi og nú sé
bara að sýna fram að hægt sé að
reka svona stofnun án þess að
reiða sig á mjúkan faðm hins opin-
bera.
„Við verðum að standa okkur
sem óháð rannsóknarmiðstöð og
flytja mál okkar þannig að eftir sé
tekið. Við erum bjartsýn og
höfum fulla trú á að það gangi upp
enda verkefnin mýmörg. Við
ætlum að minna á þessi grund-
vallargildi, byggja upp þekkingu
á þessu sviði og hafa áhrif á hug-
myndir fólks til langs tíma. Von-
andi verður það til þess að fólk
vilji styrkja þessar grunnstoðir
þjóðfélagsins sem byggja á frelsi,
eignarrétti og lýðræði,“ segir
Birgir Tjörvi Pétursson.
25. september 2005 SUNNUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
Mikilvægi eignarréttarins árétta›
Símennt HR býður upp á tvö námskeið á haustönn
2005 sem eru metin til þriggja eininga á háskólastigi:
Aðferðafræði
Áhersla á aðferðafræði sem notuð er við heimildavinnu í
tengslum við gerð náms- og starfstengdra greinargerða.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Leifur Geir Hafsteinsson Ph.D.
lektor við Viðskiptadeild HR.
Fjármál fyrirtækja
Fjármálafræði og fjármálastjórnun verða kynnt fyrir nem-
endum auk þýðingar þeirra fyrir atvinnurekstur.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Sigurður Atli Jónsson, kennari
við Viðskiptadeild HR.
- Námskeiðin eru sniðin fyrir þá sem hafa hug á að
byrja í háskólanámi.
Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík við Ofanleiti 2:
Aðferðafræði: 10. október – 16. nóvember.
Fjármál fyrirtækja: 11. október – 24. nóvember.
Verð fyrir eitt námskeið: 65.000,-
Þátttökuskilyrði er stúdentspróf.
Umsóknarfrestur til 3. október 2005
Hagnýt námskeið á
háskólastigi
Frekari upplýsingar veitir:
Charlotta Karlsdóttir
Beinn sími: 599 6258
Skiptiborð: 599 6200
Charlotta@ru.is
www.ru.is/simennt
SÍMENNT HR
www.ru.is/simennt
BIRGIR TJÖRVI PÉTURSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI RSE „Þótt Íslendingar hafi í samanburði við aðra góðan skilning á mikilvægi
frelsis, lýðræðis og eignarrétti, hornsteinum réttarríkisins, er ekki þar með sagt að við séum alltaf á verði gagnvart þeim hættum sem
steðja að þessum grundvallaratriðum,“ segir Birgir Tjörvi.
10
„Hins vegar er fljó›félagi› á stö›ugri hreyfingu og ef vi› erum
ekki vakandi yfir flví hva› skapar gott samfélag, er hætta á a› vi›
glötum flví sem hefur áunnist.“
Ný Rannsóknarmiðstöð
um samfélags- og efna-
hagsmál ætlar að efla
skilnings fólks á mikil-
vægi eignarréttar og
frjálsra viðskipta fyrir
lýðræðislegt samfélag.
Stofnunin er óháð stjórn-
málaflokkum og treystir
á frjáls fjárframlög.
RSE Í HNOTSKURN
Á heimasíðu Rannsóknarmið-
stöðvar um samfélags- og efna-
hagsmál segir að RSE hafi það
skýra markmið aðÝefla skilning á
mikilvægi eignarréttar og frjálsra við-
skipta fyrir lýðræðislegt og framsækið
samfélag.ÝRSE muni leggja mikinn
metnað í að vinna að þessum mark-
miðum með faglegum hætti, þannig
að efni sem fráÝrannsóknarmiðstöð-
inni stafi sé málefnalegt og vandað
framlag til umræðu um samfélags- og
efnahagsmál.
„Réttur manns til eigna sinna og
frjálsra viðskipta með þær eru ekki
bara mikilvæg mannréttindi, heldur
líka hornsteinn hins frjálsa, lýðræðis-
lega samfélags. Ekki síður er vernd og
virðing fyrir hvorutveggja eignaréttin-
um og frjálsum samskiptum manna
grundvöllur efnahagslegrar veldældar
og framfara,“ segir á heimasíðunni
www.rse.is
ERLENDAR
HUGMYNDASMIÐJUR
Rannsóknarstofnun um samfélags- og
efnahagsmál á sér fyrirmyndir erlendis
þar sem sambærilegar stofnanir hafa
haft mikil áhrif á opinbera umræðu og
hugmyndir fólks. Áherslur og rann-
sóknastarf eru þó mismunandi.
CATO Institute – Bandaríkin
Cato-stofnunin var stofnuð 1977. Mark-
mið Cato er að halda uppi umræðu
sem stuðlar að auknu frelsi einstak-
lingsins, takmarkar ríkisvaldið og styð-
ur frjáls viðskipti. www.cato.org
IEA – Bretland
Institute of Economic Affairs var stofn-
uð 1955. IEA er hugmyndasmiðja sem
berst fyrir frjálsu markaðshagkerfi sem
er samtvinnað frelsi einstaklingsins.
www.iea.org.uk
Timbro – Svíþjóð
Timbro var stofnað árið 1978. Timbro
stendur fyrir útgáfu á efni sem fjallar
um frjálslynd þjóðfélagsmál og hug-
myndafræði markaðshagkerfisins.
www.timbro.se
Fraser Institute – Kanada
Fraser-stofnunin var stofnuð 1974.
Markmið Fraser er að hafa áhrif á op-
inbera stefnumótun svo frjálslynd sjón-
armið, eins og markaðslausnir í stað
ríkislausna, fái aukið vægi. www.fraser-
institute.ca