Fréttablaðið - 25.09.2005, Síða 16
Paul McCartney gaf nýverið út
sína fyrstu hljóðversplötu í sex ár,
Chaos and Creation in the Back-
yard, sem hefur fengið frábæra
dóma víðast hvar.
McCartney, sem er orðinn 63
ára, hefur verið afar afkasta-
mikill eftir að Bítlarnir hættu árið
1970. Hann var fljótt duglegastur
þeirra í að gefa út og fara í tón-
leikaferðir og hefur hann haldið
þeim dampi allar götur síðan.
McCartney hefur gefið út alls 38
plötur á þessum 35 árum, þar af
fjórtán hljóðversplötur. Plöturnar
hafa undantekningalítið selst
mjög vel og tónleikar hans verið
ákaflega vel sóttir, þó svo að
gagnrýnendum hafi stundum þótt
tónlist hans lítilfjörleg, sérstak-
lega þeim bresku.
Fyrsta sólóplatan kemur út
Fyrsta sólóplata Paul McCartney
hét einfaldlega McCartney og
kom út 1970, tveimur vikum áður
en síðasta plata Bítlanna, Let It
Be, átti að koma í búðir. Þegar
sólóplatan kom út tilkynnti
McCartney að Bítlarnir væru
hættir án þess að ráðfæra sig
fyrst við hina meðlimina. Í kjöl-
farið urðu samskipti hans og
hinna Bítlanna, sérstaklega John
Lennon og George Harrison, afar
stirð í mörg ár á eftir. Sökuðu þeir
hann um að hafa notfært sér enda-
lok Bítlanna til að kynna sína
fyrstu plötu.
1971 stofnaði McCartney
hljómsveitina Wings ásamt þáver-
andi eiginkonu sinni Lindu
McCartney. Á næstu árum var
sveitin dugleg við tónleikahald og
útgáfu. Á meðal þekktra laga frá
sveitinni voru Give Ireland Back
to the Irish, Mary Had a Little
Lamb og Hi Hi Hi. Nokkru áður
hafði McCartney gefið út smá-
skífulagið Another Day sem var
það fyrsta sem hann gerði vinsælt
á sólóferli sínum.
Árið 1973 samdi McCartney
lagið Live and Let Die fyrir sam-
nefnda James Bond-mynd og naut
það mikilla vinsælda. Sama ár
kom út platan Band on the Run
með Wings sem fékk mjög góðar
viðtökur.
Dúettar með Wonder og Jackson
Wings var ein vinsælasta popp-
hljómsveit áttunda áratugarins en
McCartney leysti sveitina upp
1980 skömmu eftir morðið á John
Lennon. Tveimur árum síðar gaf
McCartney út sólóplötuna Tug of
War þar sem meðal annars var að
finna lagið Ebony and Ivory sem
hann söng með Stevie Wonder. Sló
það umsvifalaust í gegn víða um
heim, líkt og The Girl Is Mine sem
hann söng með Michael Jackson á
metsöluplötu hans Thriller. Í
framhaldinu söng Jackson dúett
með McCartney í laginu Say Say
Say, sem er síðasta smáskífulag
McCartney til að ná efsta sæti
vinsældalistanna.
Tilraunamennskan tekur við
Á næstu árum prófaði McCartney
ýmislegt. Hann leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd, Give My Re-
gards to Broad Street, sem fékk
slæma útreið gagnrýnenda. Lagið
No More Lonely Nights úr mynd-
inni varð aftur á móti afar vin-
sælt. Einnig samdi hann titillag
gamanmyndarinnar Spies Like Us
við góðar undirtektir. 1989 gaf
McCartney út plötuna Flowers in
the Dirt, sem þótt besta plata hans
í langan tíma. Þar samdi hann
mörg lög með Elvis Costello en
þeir félagar sömdu einnig saman
lög á plötu Costello, Spike, þar á
meðal hið vinsæla Veronica.
Árið 1991 kom út platan Un-
plugged með McCartney sem var
sú fyrsta af mörgum í þeirri út-
gáfuröð. Síðar á því ári gaf
McCartney út sína fyrstu klass-
ísku plötu, Liverpool Oratorio.
McCartney gaf einnig út tvær
ambient-plötur undir dulnefninu
The Fireman auk þess sem önnur
klassísk plata, The Leaf, kom út
1995.
Safnboxið Anthology kom út
1996 þar sem eftirlifandi meðlim-
ir Bítlanna söfnuðu saman sjald-
gæfu efni frá árum sveitarinnar í
einn pakka. Árið eftir gaf McCart-
ney út plötuna Flaming Pie, sem
fékk góða dóma, og sama ár var
hann sæmdur riddaratign og fékk
þar með nafnbótina Sir Paul
McCartney.
Árið 1998 lést Linda McCartn-
ey eftir þriggja ára baráttu við
brjóstakrabbamein. Tveimur
árum síðar kvæntist Paul fyrir-
sætunni fyrrverandi Heather
Mills. Um svipað leyti samdi hann
titillag myndarinnar Vanilla Sky
og fékk Óskarstilnefningu fyrir
vikið, auk þess sem hann fór í sitt
fyrsta tónleikaferðalag í tíu ár.
Í samstarf með Nigel Godrich
Nigel Godrich er upptökustjóri
Chaos and Creation in the Back-
yard en hann er meðal annars
þekktur fyrir plöturnar OK
Computer með Radiohead og Sea
Change með Beck. „Ég vissi ekki
hver ætti að stjórna upptökum á
plötunni en vissi að ég vildi þann
allra besta,“ sagði McCartney.
„Ég hringdi í George Martin
(fyrrum upptökustjóra Bítlanna),
sagði honum að ég ætlaði að gera
nýja plötu og spurði hver væri
rétti maðurinn í starfið. Hann tal-
aði við mig viku síðar og sagði:
„Nafnið sem kemur aftur og aftur
upp er Nigel Godrich.“ Ég þekkti
Radiohead og líkaði mjög vel við
hljóminn á OK Computer. Ég vissi
líka að hann hefði tekið upp In-
visible Band með Travis og ég var
því ánægður með hans störf. Við
töluðum saman til að sjá hvort við
værum á sömu bylgjulengd og við
vorum það,“ sagði hann.
McCartney spilar á flest hljóð-
færi á plötunni, rétt eins og hann
gerði á sinni fyrstu plötu. Er hún
að sumu leyti afturhvarf til laga-
smíða McCartney er hann var í
Bítlunum og lýsir hann meðal
annars laginu Jenny Wren sem
dóttur lagsins Blackbird. Plötunni
hefur verið vel tekið víðast hvar
og McCartney sagður kominn í
sitt gamla form. Kappinn er ný-
byrjaður á tónleikaferð um
Bandaríkin og fyrir löngu er orðið
uppselt á alla tónleikana.
PAUL MCCARTNEY Bítillinn
fyrrverandi hefur vakið mikla
athygli fyrir nýjustu plötu sína.
16 25. september 2005 SUNNUDAGUR
Afkastamesti Bítillinn
Paul McCartney gaf n‡veri› út plötuna Chaos and
Creation in the Backyard, sem hefur fengi› pr‡›ileg-
ar vi›tökur. Freyr Bjarnason sko›a›i sólóferil Bítils-
ins fyrrverandi.
Menningarstarf
í Kópavogi
Lista- og menningarrá› Kópavogs
augl‡sir eftir umsóknum um styrki til verkefna /vi›bur›a
á svi›i menningar og lista í Kópavogi.
Einstaklingar, félagasamtök og stofnanir geta
sótt um styrki úr sjó›num.
Umsóknum skal skila› á flar til ger›um umsóknarey›ublö›um
fyrir 14. október nk., ásamt fylgiskjölum.
Ey›ublö›in fást á skrifstofu Tómstunda- og menningarsvi›s Fannborg 2,
2. hæ›. og á heimasí›u Kópavogs, www.kopavogur.is
Lista- og menningará› Kópavogs veitir styrki til menningarstarfs í
Kópavogi tvisvar á ári, í október og apríl .
Lista- og menningarrá› Kópavogs
15 ÞEKKT LÖG EFTIR
PAUL MCCARTNEY:
Hey Jude
Eleanor Rigby
Yesterday
Let It Be
Helter Skelter
Blackbird
The Long and Winding Road
Maybe I'm Amazed
Another Day
Live and Let Die
Band on the Run
Silly Love Songs
No More Lonely Nights
Ebony and Ivory
Say Say Say
ÁHRIFAVALDAR ALMA GEIRDAL SAMTÖKUNUM FORMA
„Ég verð fyrst að fá að nefna pabba minn,“ segir
Alma Geirdal aðspurð um hennar helstu áhrifa-
valda. Hún er ásamt Eddu Ýrr Einarsdóttur í farar-
broddi samtakanna Forma sem berjast gegn
átröskun á Íslandi.
„Pabbi kenndi mér að
standa á rétti mínum og að
vera sterk og sjálfstæð. Ég
hef alltaf kunnað að meta það
að hafa fengið slíkt uppeldi.
Hann hefur hjálpað mér mjög
mikið og er án efa einn af
mínum stærstu áhrifavöld-
um.“
Alma segir marga hafa náð
til hennar með góðum ráðum
og umhyggju. „Ég verð að fá
að nefna bróður minn, en
hann hefur líka hjálpað mér
mjög mikið. Hann hefur að
miklu leyti haft svipuð áhrif á
mig og pabbi minn. Hann
kenndi mér að nýta þá eigin-
leika sem ég hef og að vera sterk. Hann kenndi mér
einnig að horfa í eigin barm og að láta ekki aðra
komast upp með að traðka á rétti mínum.“ Fjöl-
skylda Ölmu er án efa hennar stærsta fyrirmynd
og hún segist líta upp til móður sinnar á marga
vegu. „Mamma er alveg ótrúleg kona. Hún er búin
að upplifa margt í lífinu og ganga í gegnum ýmis-
legt. Með árunum hef ég séð hve mikil áhrif hún
hefur haft á svo marga hluti hjá mér.“
Alma, sem er sjálf í móðurhlutverkinu, segir
börn sín það mikilvægasta sem hún eigi. „Litlu kríl-
in mín hafa kennt mér að meta lífið.“ Alma nefnir
einnig Eddu sem áhrifavald. En þær stöllur skipa
samtökin Forma sem stóðu að málþingi um átrösk-
un um síðustu helgi. „Edda kenndi mér að taka
skref í átt að bata og hún er gríðarlega mikill
áhrifavaldur í mínu lífi, sérstaklega í sambandi við
heilbrigðina og hamingjuna.“
EDDA ÝRR EINARS-
DÓTTIR „Hún kenndi
mér að taka skref í átt
að bata.“
Litlu krílin skipta mestu
ALMA GEIRDAL Segir fjölskylduna skipa stóran sess í lífi sínu.