Fréttablaðið - 25.09.2005, Side 56
Loksins titill hjá Val eftir 13 ára bið
25. september 2005 SUNNUDAGUR
EFTIRTALDIR HAFA TRYGGT
SÍNUM LIÐUM BIKARINN:
1966 KR-VALUR 1–0
ÁRSÆLL KJARTANSSON 21. MÍN
1969 ÍBA-ÍA 3–2 (FRAML.)
KÁRI ÁRNASON, ÍBA 95. MÍN.
1970 FARM–ÍBV 2–1
KRISTINN JÖRUNDSSON, FRAM 31. MÍN.
1971 VÍKINGUR-BREIÐABLIK 1–0
JÓN ÓLAFSSON, VÍKINGI 21. MÍN.
1973 FRAM–KEFLAVÍK 2–1 (FRAML.)
MARTEINN GEIRSSON, FRAM 103, MÍN
1975 KEFLAVÍK–ÍA 1–0
EINAR GUNNARSSON, KEFLAVÍK 34.MÍN
1978 ÍA-VALUR 1–0
PÉTUR PÉTURSSON, ÍA 43. MÍN.
1979 FRAM–VALUR 1–0
MARTEINN GEIRSSON, FRAM 90. MÍN
1980 FRAM–ÍBV 2–1 (FRAML.)
GUÐMUNDUR TORFAS., FRAM 119. MÍN
1982 ÍA-KEFLAVÍK 2-1
ÁRNI SVEINSSON, ÍA 46. MÍN
1983 ÍA-ÍBV 2–1 (FRAML.)
SVEINBJÖRN HÁKONARSON, ÍA 118. MÍN.
1984 ÍA-FRAM 2–1 (FRAML.)
ÁRNI SVEINSSON, ÍA 91. MÍN
1986 ÍA-FRAM 2–1
PÉTUR PÉTURSSON, ÍA 90. MÍN
1988 VALUR-KEFLAVÍK 1–0
GUÐLAUGUR BALDURSSON, VAL 67. MÍN.
1991 VALUR–FRAM 1–0
ÁGÚST ÞÓR GYLFASON, VAL 50. MÍN
1993 ÍA–KEFLAVÍK 2–1
MIHAJLO BIBERCIC, ÍA 58. MÍN
1995 KR-FRAM 2–1
MIHAJLO BIBERCIC, KR 84. MÍN
2000 ÍA–ÍBV 2–1
KÁRI STEINN REYNISSON, ÍA 89. MÍN.
2003 ÍA-FH 1–0
GARÐAR GUNNLAUGSSON, ÍA 78. MÍN
2005 VALUR–FRAM 1–0
BALDUR AÐALSTEINSSON, VAL 52.MÍN
Baldur A›alsteinsson trygg›i Val níunda bikarmeistaratitil félagsins flegar hann skora›i sigurmarki› gegn
Fram me› skoti langt utan af kanti. Framarar voru síst lakari a›ilinn í leiknum.
FÓTBOLTI Það var misheppnuð fyrir-
gjöf frá hægri frá Valsmanninum
Baldri Aðalsteinssyni sem rataði í
netið og skildi liðin tvö að þegar
upp var staðið. Fótbolti er
miskunnarlaus íþrótt en sigurinn
hefði hæglega getað dottið Fram
megin, því Safarmýrarpiltarnir
sköpuðu sér fleiri marktækifæri.
En lukkan var í liði með Valsmönn-
um á Laugardalsvellinum í gær og
þeir fögnuðu gríðarlega í lok leiks.
Þar með er þrettán ára bið Hlíðar-
endaliðsins eftir stórum titli í
karlaflokki lokið.
Það er óhætt að segja að fyrri
hálfleikur liðanna í gær hafi verið
bragðdaufur í meira lagi. Hvorugt
lið þorði að taka áhættu og engin
umtalsverð færi litu dagsins í ljós.
En það var annað uppi á teningn-
um í síðari hálfleik. Þegar aðeins
sjö mínútur voru liðnar af honum
skoruðu Valsmenn sigurmark
leiksins. Fyrirliðinn Sigurbjörn
Hreiðarsson gaf boltann út til
hægri á Baldur Aðalsteinsson sem
gaf misheppnaða fyrirgjöf sem fór
í boga yfir Gunnar Sigurðsson,
markvörð Fram, og í netið.
Nálægt því að jafna
Eftir markið færðist mikið líf í
leikinn og Framarar voru nálægt
því að jafna leikinn skömmu síðar
þegar Andri Fannar Ottósson átti
skot frá markteig sem Kjartan
Sturluson varði vel. Aftur varði
Kjartan vel þegar hann blakaði
skalla Kristjáns Haukssonar yfir
markið á 70. mínútu. Valsmenn
voru svo nálægt því að bæta við
marki á 73. mínutu, þegar Húsvík-
ingurinn Baldur Aðalsteinsson átti
skot utan vítateigs í stöng. En
besta færi leiksins átti enn eftir að
líta dagsins ljós. Þegar aðeins átta
mínútur voru eftir fékk Gunnar
Þór Gunnarsson, vinstri bakvörður
Fram, sannkallað dauðafæri en
skot hans fór hársbreidd framhjá
marki Hlíðarendaliðsins.
Lokamínúturnar voru lengi að
líða fyrir Valsmenn en þeir notuðu
öll tækifæri til að tefja leikinn.
Sumir kalla slík tilþrif klókindi á
meðan aðrir töluðu um óíþrótta-
mannslega framkomu. En fögnuð-
ur Valsmanna þegar Ólafur Ragn-
arsson, dómari leiksins, flautaði af
var innilegur og þeir rúmlega
fimm þúsund áhorfendur sem
lögðu leið sína í Laugardalinn hafa
eflaust skemmt sér vel. Rauða lið-
ið vann leikinn en það bláa var síst
lakari aðilinn.
Í liði nýkrýndu bikarmeistar-
anna stóðu þeir Kjartan Sturluson
og Baldur Aðalsteinsson upp úr.
Kjartan varði meistaralega í
tvígang og Baldur gerði sigurmark
Valsmanna og var óheppinn að
bæta ekki öðru við. Framarar léku
vel í gær en áttu í erfiðleikum með
þétt Valslið, í jöfnu liði þeirra voru
það ungu Framararnir Kristján
Hauksson og Gunnar Þór Gunnar-
son sem áttu hvað bestan dag og
ljóst að fjölmörg lið eiga eftir að
reyna fá Gunnar Þór til liðs við sig,
því góðir vinstri bakverðir vaxa
ekki á trjánum í íslenskri knatt-
spyrnu. hjorvar@frettabladid.is
> Við vorkennum ...
Frömurum sem spiluðu
sennilega sinn besta
leik í langan tíma í
bikarúrslitaleiknum í
gær en máttu samt þola
sárt tap í annað skiptið á
aðeins einni viku. Þetta
hafa verið afar erfiðir sjö
dagar í Safamýrinni.Fyrstu nýliðar sögunnar
... Valsmenn eru fyrstu nýliðar sögunnar
til þess að vinna gull og silfur á bæði
Íslandsmóti og í bikarkeppni á sínu
fyrsta ári í efstu deild. Skagamenn eru
einu nýliðarnir sem hafa orðið Íslands-
meistarar (1992) en þeir duttu það
sumar út úr undanúrslitum bikarsins.
Valsmenn urðu í 2. sæti á Íslands-
mótinu í ár og unnu bikarinn.
60
SEKÚNDUR
Körfubolti eða fótbolti? Fótbolti.
Hvítur eða appelsínugulur? Bleikur.
Hvern myndir þú vilja fá í Fylki?
Duncan Ferguson.
Ólafur Jóhannesson er? Einstakur.
Getur þú unnið Ólaf Jóhannesson í
sjómanni? Góð spurning... eða
kannski ekki svo góð.
Myndirðu vilja taka við íslenska
landsliðinu? Tja...
Rokk eða popp? Popp.
Dómari eða þjálfari? Þjálf-
ari... en eru þeir ekki líka
dómurum til aðstoðar?
Fyrirmynd í starfi? David
Moyes junior.
Erfiðasti andstæðingur? Keppnis-
skapið.
Besti samherjinn? Keppnisskapið.
Alvöru konur eru? Eiginkona mín og
dóttir.
Auðveldasti andstæðingur? Ólafur
Páll Snorrason í A-reit.
Everton er? Á uppleið.
Er glasið hálffullt eða hálftómt? Var
að klára.
Uppáhalds hljómsveit? Sálin hans
Jóns míns.
Besta bókin er? Dixie Dean – The
Legend.
Stór eða smár? Aðalatriðið að ná
niður.
MEÐ LEIFI
GARÐARSSYNI
sport@frettabladid.is
24
> Við óskum ...
.... Valsmönnum til hamingju með fyrsta
stóra titil félagsins í þrettán ár. Þetta er
búið að vera frábært sumar
á Hlíðarenda og Valsliðið
kórónaði það með því
að vinna bikarinn í
gær. Willum Þór
Þórsson er búinn að
koma þessu
fornfræga félagi á
toppinn á nýjan leik.
Baldur Aðalsteinsson skoraði eina mark bikarúrslitaleiksins í gær:
FÓTBOLTI Baldur Aðalsteinsson
tryggði Valsmönnum fyrsta stóra
félagsins í þrettán ár þegar hann
skoraði sigurmarkið gegn Fram í
gær. „Þetta var skot! Ég sá að
Gunnar stóð of framarlega þannig
að ég tók þá ákvörðun að skjóta,“
sagði Húsvíkingurinn Baldur
Aðalsteinsson strax eftir leik.
„Það er frábært að taka þátt í
þessum leik og ekki leiðinlegt að
ná að skora sigurmarkið. Stuðn-
ingsmennirnir hafa staðið 110%
við bakið á okkur og það var mjög
gaman að ná að vinna þennan
bikar fyrir þá. Framarar eru með
hörkulið og þeir sýndu það í dag,
eftir að við skoruðum féllum við
til baka og þeir voru á tíðum ansi
nálægt því að ná að jafna. Þetta
var hörkuleikur en við náðum að
skora eina markið og það skiptir
máli,“ sagði Baldur.
„Sumarið er búið að vera stór-
skemmtilegt. Ég hef verið að spila
vel á köflum en veit enn að ég get
spilað betur,“ sagði Baldur, sem
skoraði einnig fyrir Skagamenn í
2-1 sigri á ÍBV árið 2000 og varð
að verða bikarmeistari í þriðja
sinn í gær en hann varð einnig
meistari með Skagamönnum fyrir
tveimur árum.
- egm
fietta var skot sag›i Baldur um marki›
FÖGNUÐUR Steinþór Gíslason stekkur hér
upp í fang Garðars Gunnlaugssonar eftir
að sigurinn var í höfn. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
LANGÞRÁÐ STUND Á HLÍÐARENDA Valsmenn fjölmenntu á bikarúrslitaleikinn og uppskáru
langþráða stund þegar fyrsti stóri titilinn í þrettán ár kom í Valshús. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
HETJA DAGSINS Baldur Aðalsteinsson sést
hér með bikarinn eftir leikinn í gær en
hann skoraði einmitt sigurmark leiksins
með skoti lengst utan af kanti.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
FYRIRLIÐAKOSS Sigurbjörn Hreiðarsson
var sá eini í Valsliðinu sem vann síðasta
stóra titil félagsins fyrir 13 árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
ÞRÍR GÓÐIR Sigurbjörn Hreiðarssonm,
fyirrliði Valsmanna, sést hér með bikarinn
og Húsvíkingana Sigþór Júlíusson og
Baldur Aðalsteinsson sér við hlið.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
*MAÐUR LEIKSINS
FRAM 4–3–3
Gunnar 5
Karlefjard 6
Þórhallur Dan 4
Kristján 6
Gunnar Þór 7
Ingvar Þór 5
Mathiesen 6
Viðar 6
Ómar 4
(79. Eggert –)
Henriksen 6
Andri Fannar 5
(73. Þorbjörn Atli –)
VALUR 4–4–2
*Kjartan 8
Steinþór 5
Atli Sveinn 6
Grétar 6
Bjarni Ólafur 6
Baldur 7
(76. Matthías –)
Sigurbjörn 6
Stefán Helgi 5
Sigþór 4
Guðmundur B. 6
(88. Hálfdán –)
Garðar 6
(83. Sigurður –)
0-1
Laugard.v., áhorf: 5162 Ólafur Ragnarsson (x)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–11 (6–7)
Varin skot Gunnar 5 – Kjartan 5
Horn 6–1
Aukaspyrnur fengnar 23–15
Rangstöður 1–3
0–1 Baldur Aðalsteinsson (52.)
Fram Valur
FÓTBOLTI „Þetta er alveg meirihátt-
ar. Það var svo sannarlega kominn
tími til að lyfta alvöru bikar. Ég er
kominn með góða æfingu eftir að
hafa unnið 1. deildina, Reykjavík-
urmótið, Canella Cup, Íslandsmót-
ið innan hús og ég veit ekki hvað.
Það var því afar kærkomið að fá
loks að lyfta einum stórum,“ sagði
fyrirliði Valsmanna, Sigurbjörn
Hreiðarsson, sem hefur upplifað
súrt og sætt á þrettán ára ferli
sínum hjá meistaraflokki Vals.
„Við spiluðum ekkert sérstak-
an leik. En aðalmálið var auðvitað
að vinna bikarinn og rita þar með
nöfn okkar á spjöld sögunar,“
sagði Sigrurbjörn en nú hafa Vals-
menn orðið níu sinnum bikar-
meistarar, aðeins KR hefur unnið
titilinn oftar eða tíu sinnum. Sig-
urbjörn var eini leikmaður Vals
sem var í leikmannahóp síðast
þegar liðið varð bikarmeistari
árið 1992. En þá sat hann allan
tímann á varamannabekknum.
- hh
Sigurbjörn Hreiðarsson:
fia› var kominn
tími á fletta