Fréttablaðið - 25.09.2005, Blaðsíða 57
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
22 23 24 25 26 27 28
Sunnudagur
SEPTEMBER
■ ■ LEIKIR
14.00 Fram og Haukar mætast í
Framhúsinu í DHL-deild kvenna.
16.15 ÍR tekur á móti KA í
Austurbergi í DHL-deild karla.
16.15 Víkingur/Fjölnir og Valur
mætast í Íþróttamiðstöðinni í DHL-
deild karla.
18.00 HK og Grótta mætast í
Digranesi DHL-deild kvenna.
18.00 Haukar og FH eigast við á
Ásvöllum í DHL-deild kvenna.
19.15 FH og Fram eigast við í DHL-
deild karla.
19.15 Keflavík og Grindavík eigast
við í Reykjanesmótinu íþróttahúsi
Keflavíkur.
20.00 Haukar og Fylkir mætast á
Ásvöllum í DHL-deild karla.
■ ■ SJÓNVARP
08.00 Forsetabikarinn í Golfi á
Sýn.
10.10 A-1 Grand Prix á Sýn.
12.00 A-1 Grand Prix á Sýn.
14.50 Enska knattspyrnan á
Enska Boltanum. Beint frá leik
Middlesbrough og Sunderland.
15.30 Forsetabikarinn í golfi á
Sýn.
16.30 Formúla1 á RÚV. Beint frá
kappakstrinum í Brasilíu.
21.25 Helgarsportið á RÚV.
21.30 Enska knattspyrnan á
Enska boltanum. Uppgjör
helgarinnar með Valtý Birni.
22.00 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Beint frá leik Pittsburgh og New
England.
SUNNUDAGUR 25. september 2005 25
SVEKKELSI Framarar máttu í gær þola
annan sáran ósigur á einni viku. Hér sjást
viðbrögð þeirra í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
FÓTBOLTI Ólafur Kristjánsson,
þjálfari Fram, var mjög svekktur
eftir tap liðsins gegn Val í bikar-
úrslitunum.
„Við áttum mikið fleiri færi en
þeir og svo kemur ein helvítis
fyrirgjöf og hún endar í markinu.
Það er alveg ótrúlegt að við skyld-
um tapa þessum leik. Við spiluð-
um virkilega vel og ég er mjög
stolltur af framlagi strákanna í
leiknum. Mínir menn léku mjög
vel og voru miklu betri í leikn-
um,“ sagði Ólafur, sem ekki var
sáttur við störf dómarans í lok
leiksins en þá fengu Valsmenn að
tefja leikinn án þess að dómarinn
aðhefðist nokkuð.
Aðspurður um framtíð sína
sagði Ólafur: „Ég hef ekki hug-
mynd hvar ég verð á næsta ári“.
Ólafur H. Kristjánsson:
Ótrúlegt a› vi›
skyldum tapa
flessum leik
Willum fiór var í sk‡junum eftir leik
FÓTBOLTI Willum Þór Þórsson,
þjálfari Vals, var í skýjunum eftir
sigurinn á Fram. Kópavogsbúinn
geðþekki hefur nú unnið nánast
allt sem hægt er að vinna í ís-
lenskri knattspyrnu, allar deild-
irnar fjórar og nú bikarinn eftir-
sótta.
Þreyttasti maðurinn á vellinum
Það var greinilegt að hann hafði
lagt sig allan í verkefnið því að
leik loknum var hann líklega
þreyttasti maðurinn á vellinum.
„Ég upplifði að tapa bikarúr-
slitaleik sem leikmaður og það er
óhætt að segja að þetta sé mjög
ólík tilfinning. En stundum þarf
maður að upplifa taptilfinninguna
því sú tilfinning fær mig til að
leggja enn harðar að mér. Það
voru margir í hópnum sem aldrei
höfðu upplifað svona leik og ég
fann allan tímann að menn voru
tilbúinir í þennan leik,“ sagði Will-
um Þór.
„Þetta var hörkuleikur, þeir
pressuðu stíft á mark okkar í
seinni hálfleik og auðvitað var
lukkan með okkur. Við náðum að
brjóta ísinn og ég hafði það á til-
finningunni að leikurinn myndi
vinnast á einu marki.“
En er það ekki sérstaklega
skemmtilegt að verða fyrstur til
að vinna stóran titil fyrir þetta
gamla stórveldi eftir alla þessa
bið? Ég neita því ekki, en ég verð
hins vegar að fá að þakka fyrir
mig. Það er alveg frábært að
vinna með svona hópi og svona fé-
lagi. Hér eru allir tilbúnir að
leggja mikið á sig til að ná ár-
angri. Stuðningsmenn okkar voru
frábærir í dag, við unnum leikinn
í stúkunni og á vellinum,“ sagði
Willum Þór.
Setja pressu á sig sjálfur
Er nú ekki komin pressa á þig
núna að landa Íslandsmeist-
aratitlinum fyrir Val? Það er best
að setja pressu á sig sjálfur. Valur
er þannig félag að það á alltaf að
hugsa hátt,“ sagði hinn sigursæli
þjálfari Vals.
Willum fiór fiórsson hefur nú unni› nánast allt sem fljálfari getur unni› í íslenskri knattspyrnu, allar
deildirnar fjórar og nú sí›ast bikarmeistaratiilinn.
SVONA Á AÐ GERA ÞETTA Valsmaðurinn
Grétar Sigurðarson tekur hér utan um
þjálfara sinn Willum Þór Þórsson eftir að
bikarmeistaratitilinn var í höfn í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.