Fréttablaðið - 25.09.2005, Page 58
26 25. september 2005 SUNNUDAGUR
KRAKKARNIR VAXA OG DAFNA
UNDIR LEIÐSÖGN MENTORA VISA
SKÍÐAÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleik-
arnir í Torinó fara fram eftir að-
eins fimm mánuði og íslenska
íþróttafólkið er komið á fullt að
búa sig undir að taka þátt í há-
punkti íþróttafólks á fjögurra ára
fresti. Meðal þeirra eru Vonar-
stjörnur VISA þau Dagný Linda
Kristjánsdóttir, Kristján Uni Ósk-
arsson og Elsa Guðrún Jónsdóttir.
Krakkarnir voru mættir til Ítalíu á
dögunum þar sem þeir hittu fyrir
mentora VISA sem og aðra krakka
sem líkt og þau hafa verið valin til
að njóta góðs af styrk VISA-
Europe. Þar er um að ræða fjár-
hagslegan stuðning sem og að
krakkarnir njóta góðs af ráðgjöf
fyrrum Ólympíumeistara sem ein-
hvern tíma stóðu í sömu sporum
og þau en hafa síðan orðið að
mesta afreksfólki Ólympíuleik-
anna frá upphafi.
Mentorar VISA að þessu sinni
voru fimm kunnir afreksíþrótta-
menn. Fyrstan má telja einn sigur-
sælasta skíðagöngumann allra
tíma, Björn Dæhlie, en hann er
eini íþróttamaðurinn sem hefur
unnið átta gull á Vertrarólympíu-
leikum. Dæhlie heillar alla sem
hitta hann með lifandi framkomu
og léttri lundu og nær hann alveg
sérstaklega vel til krakkanna sem
voru dugleg að spyrja hann spjar-
anna úr.
Þarna voru líka Debrorah
Compagnoni, fyrsti alpagreina-
skíðamaðurinn til að vinna gull á
þremur Vetrarólympíuleikum,
Franz Klammer sem er einn
þekktasti skíðamaður allra tíma og
varð þjóðhetja í heimalandi sínu
þegar hann vann gull á heimavelli
í Innsbrück 1976 og líka þær Rosa
Mota og Sara Simeoni sem unnu
bæði gull á Sumarólympíuleikum
en þær voru báðar með þegar
VISA setti fyrst þetta verkefni af
stað fyrir Ólympíuleikanna í
Aþenu 2004. Öll ræddu þessir
miklu afreksíþróttamenn hvað
væri mikilvægast fyrir krakkanna
ril að þau geti náð fram sínu besta
í Torínó og sáu þau um mismun-
andi þætti sem koma að undirbún-
ingi fyrir keppni.
Alls voru samankomnir íþrótta-
menn frá níu löndum að þessu
sinni en þarna voru líka krakkar
frá Finnlandi, Sviss, Austurríki,
Ítalíu, Noregi, Svíþjóð, Tyrklandi
og Tékklandi auk þeirra þriggja
sem komu frá Íslandi.
Er búin að læra mikið af meiðslun-
um
„Þetta er mikil reynsla fyrir
mig,“ segir Dagný Linda Krist-
jánsdóttir, 25 ára skíðakona frá
Akureyri, en hún hefur verið kosin
skíðakona ársins fjórum sinnum.
„Þetta er rosastyrkur fyrir okkur
krakkanna því það er ekki nóg
með að við fáum peningana þá
fáum við líka þessa ráðgjöf og
kennslu sem er ekki síðra. Það er
frábært að fá að heyra þetta fólk
miðla af sinni reynslu og það er
líka mjög hvetjandi að fá að hitta
þetta fólk og tala við það í góðum
tómi því stuðningur þess er ekki
bundinn eingöngu við einhverja
fyrirlestra. Við getum alltaf haft
samband við þau og höfum aðgang
að þeim hvenær sem við viljum,
hvort sem það er andlegt eða eitt-
hvað tengt æfingunum sjálfum.“
Dagný er að stíga upp úr erfið-
um meiðslum sem hafa haldið
henni frá keppni í langan tíma.
„Mér finnst frábært að ég hafi
verið valin í þetta því ég er búin að
vera meidd í eitt og hálft ár og það
kom mér á óvart að þeir vildu
samt styrkja mig og gefa mér
tækifærið. Ég er búin að læra
mikið af að fara í gegnum svona
erfið meiðsli. Ég hef bæði verið að
gera öðruvísi æfingar og þá er ég
líka búin að breyta mikið mínum
venjum í tengslum við æfingarnar.
Ég er ekki enn farin að geta allt
sem ég gat áður og því hefur þolin-
mæðin verið ein af mikilvægustu
þáttunum. Það er ótrúlegt hvað
maður á af henni þegar á reynir,“
segir Dagný Linda en einn af
mentorunum, Debrorah Compagn-
oni, náði frábærum árangri þrátt
fyrir að hafa meiðst illa ung og
Dagný hefur rætt þessi mál við
hana.
„Það er erfitt að reyna að finna
jafnvægið á milli þess að gera
nógu mikið og gera of mikið. Ég
hef spurt mentorana út í reynslu
þeirra af erfiðum meiðslum og þá
sérstaklega Deborahu Compagn-
oni því það er auðveldast að bera
mig saman við hana því hún er
einnig á skíðum.“ Meiðslin hafa
spilt mikið fyrir undirbúningnum
fyrir leikana en Dagný er samt
ennþá inni á leikunum.
„Ég á að vera komin inn en
vandamálið eru að meiðslin hafa
spillt þarna fyrir mér því þar sem
að maður fær refsistig fyrir að
vera ekki búin að keppa vegna
meiðsla en ég held að ég sé ennþá
inni,“ segir Dagný, sem ljómar öll
af spenningi þegar talið berst að
leikunum. „Það er mikið ævintýri
að fara á Ólympíuleika og það er
mjög mikilvægt að undirbúa sig
andlega og vita hversu stórir leik-
arnir eru. Það að koma í mark
fyrir framan 40 þúsund áhorfend-
ur sem allir klappa fyrir manni er
eitthvað sem við erum ekki vön.
Ég ætla að gera mitt besta í
Tórínó. Áður en ég meiddist þá var
ég búin að setja mér markmið á
þessum Ólympíuleikum og þau
voru orðin frekar há miðað við
hvernig gekk þá. Ég er rétt komin
á skíði á ný, veit ekkert hvar ég
stend eða hvernig hnéð verður í
vetur og tel því vera óraunhæft í
dag að setja mér markmið fyrir
þessa Ólympíuleika. Það verður
bara að koma í ljós. Ég ætla að
reyna að vera með og njóta þess að
vera þarna.“
Ekki gengið vel að komast á skíði
á Ólafsfirði
„Þetta er mjög gaman að heyra
frá þessum gömlu íþróttamönnum
og hvað þeir hafa mikið af segja og
geta miðlað af mikllri reynslu,“
segir Kristján Uni Óskarsson, 21
árs skíðamaður frá Ólafsfirði sem
hefur æft skíði frá ungum aldri og
dvaldi meðal annars í þrjú ár í
skíðaskóla í Noregi.
„Það kom á óvart að VISA
skyldi vilja styrkja okkur svona
mikið og það er frábært að setja af
stað verkefni eins og þetta. Það er
rosalega tímafrekt og kostnaðar-
samt að standa í þessu og maður er
nánast bara yfir sumarið heima
hjá sér og þá er maður meira að
segja líka að fara út í styttri æf-
ingaferðir. Þegar kemur fram á
haustin er maður alltaf fljúgandi
fram og til baka. Þó að það sé bara
september þá er ég búinn að fara
þrisvar sinnum út og þetta er bara
rétt að byrja,“ segir Kristján Uni,
sem var nýkomin úr mikilli ævin-
týraferð með landsliðinu.
„Við í skíðalandsliðinu fórum
meðal annars til Ástralíu á dögun-
um. Það var dálítið skrítið að fara
til Ástralíu til þess að komast á
skíði en það nýttist ágætlega. Það
voru góðar aðstæður en maður
hafði ekki gert sér grein fyrir því
að það væru svona stór skíða-
svæði.“ Kristján er frá Ólafsfirði
hefur tvisvar sinnum verið kosinn
Íþróttamaður bæjarins.
„Það er mjög mikill stuðningur
við okkur Elsu frá Ólafsfirði þrátt
fyrir að þetta sé lítill bær og sá
stuðningur hefur hjálpað mikið til.
Það hefur samt ekki gengið mjög
vel að komast á skíði á Ólafsfirði
og það er langt síðan ég fór á skíði
þar enda hefur ekki verið mikill
snjór í Ólafsfirði undanfarin ár. Ef
maður ætlar eitthvað á skíði fyrir
norðan þá er það helst að fara á
Dalvík eða Akureyri. Við æfum
langmest erlendis,“ segir Kristján,
sem er kominn inn á leikana í Tor-
inó.
„Ég er búinn að ná lágmörkun-
um og það er nokkuð langt síðan.
Ég hef stefnt að þessu í langan
tíma og nú taka bara við venjuleg-
ar æfingar og keppni fram að leik-
unum. Maður á því að geta verið í
góðu formi í Torínó.“ Kristján er
ekkert búinn að setja sér markmið
fyrir leikanna. „Það er erfitt að
setja sér eitthvað markmið þegar
svona langt er í leikanna. Ég ætla
bara að sjá hvernig tímabilið
gengur fyrir sig og meta stöðuna
út frá því.“
Það yrði ótrúlega gaman að fá að
vera með
Elsa Guðrún Jónsdóttir hefur
verið yfirburðakona í skíðagöngu
hér á landi undanfarin ár og er nú
við nám við skíðaskóla í Noregi.
Elsa Guðrún er nítján ára gömul
og stefnir á að verða fyrsta ís-
lenska konan til þess að keppa í
skíðagöngu á Ólympíuleikunum.
„Það er mjög gaman að þessu og
stór upplifun fyrir mig að fá að
vera með í þessu. Þetta kom mér
mjög á óvart þegar það var hringt
í mig en þetta hefur opnað nýjar
dyr fyrir mig og hjálpað mér mjög
mikið,“ segir Elsa Guðrún, sem
hefur sérstaklega gaman af Norð-
manninum Birni Dæhlie enda
keppti hann í sömu grein og hún.
„Ég hef mjög gaman af því sem
Björn Dæhlie er að segja og hlusta
mikið á hann. Ég bý í Noregi núna
og er í skóla þar og get því talað
við hann á norsku,“ segir Elsa en
hún er þó ekki enn komin inn á
leikana.
„Ég þarf að komast undir 100
FIS-punkta og það var stefnan í
fyrra að reyna að ná þessu niður
en ég varð mikið veik og fékk að
auki járnskort sem eyðilagði fyrir
mér veturinn. Ég þarf því að
keppa mikið í haust til þess að ná
þessu en þetta getur verið mjög
erfitt því ég er bara 19 ára en þarf
að keppa við bestu konurnar í Nor-
egi. Ég veit því ekki alveg hvernig
þetta kemur til með að ganga og
hvort ég komist inn.“
Elsa Guðrún hefur sigrað í
göngu á Skíðamóti Íslands fimm ár
í röð og það var því nauðsynlegt
fyrir hana að komast í meiri
keppni erlendis. „Það er mjög gott
að komast út og þar er þetta allt
öðruvísi umhverfi. Heima snerist
þetta bara um að vinna, vinna,
vinna en úti get ég ekki strax
unnið þannig að maður þarf að
leggja þetta öðruvísi upp.“
Elsa Guðrún veit að það þarf
mikið til að hún komist inn á leik-
ana og því er mikið verk fram
undan. „Þjálfarnir mínir bæði á Ís-
landi og í Noregi ætla að reyna að
finna mót fyrir mig og núna er
bara að æfa og æfa og reyna að
gera eitthvað á þessum mótum. Ég
hef aldrei keppt svona stíft áður
þannig að þetta verður allt voða
nýtt fyrir mér. Ég ætla að reyna að
komast inn og það yrði ótrúlega
gaman að fá að vera með og upp-
lifa þetta. Ég er ekkert að hugsa
um sæti eða annað slíkt núna því
það sem skiptir öllu máli er að fá
að keppa á leikunum.“
ooj@frettabladid.is
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > ÍSLENSKAR VONARSTJÖRNUR VISA
VISA Europe sty›ur flrjá íslenska skí›amenn til keppni á vetrarólympíuleikunum og íslensku krakkarnir, Dagn‡ Linda Kristjánsdóttir,
Kristján Uni Óskarsson og Elsa Gu›rún Jónsdóttir, hittu a›ra ver›andi Ólympíufara sem og gamla Ólympíumeistara á Ítalíu í vikunni.
GÓÐUR HÓPUR Íslensku krakkarnir eru miklir félagar, þau eru öll að norðan og hafa kynnst vel í gegnum æfingar landsliðanna
undanfarin ár. Hér sjást þau bregða á leik og það er greinilegt að þau njóta sín vel sem Vonarstjörnur VISA. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR