Fréttablaðið - 25.09.2005, Síða 60
FÓTBOLTI Þýsku meistararnir í
Bayern München töpuðu loks sín-
um fyrsta leik í þýsku úrvals-
deildinni í gær þegar liðið sótti
sprækt lið Hamburger heim í upp-
gjöri toppliðana. Hamburger sigr-
aði leikinn 2-0 en áður en að leikn-
um kom hafði Bayern unnið 15
leiki í röð í deildarkeppninni. Hol-
lendingurinn Rafael van der
Vaart gerð fyrra mark heima-
manna og Piotr Trochowski það
síðaðar. Hamburger er nú aðeins
stigi á eftir Bayern sem trónir á
topp deildarinnar. Fyrir sigurinn
fengu stuðningsmenn Hamburger
10.000 lítra af bjór í gjöf frá
þýsku bjórrisanum Bitburger.
„Við vorum ekki nógu einbeitt-
ir í dag. Nú erum við búnir að slá
þetta met og nú er það úr sögunni,
Á vissan hátt er það ánægjulegt
því fólk talaði ekki um annað. Nú
erum við komnir aftur á byrjunar-
reit,“ sagði Oliver Kahn, mark-
vörðu og fyrirliði Bayern
München sem átti mjög góðan leik
og kom í veg fyrir stærra tap.
Werder Bremen sem er í þriðja
sæti vann góðan sigur á Bayer
Leverkusen 2–1. Ivan Klasnic og
Miroslav Klosen gerðu mörk
Bremen gegn lærisveinum Rudi
Völlers. Þá vann Schalke sinn
fyrsta sigur frá því um miðjan
ágústmánð þegar þeir lögðu
Hannover 2–0. - hh
28
Frank Lampard trygg›i Chelsea 2-1 sigur á Aston Villa me› tveimur mörkum eftir a› Luke Moore
haf›i or›i› fyrstur til fless a› skora gegn Chelsea á tímabilinu. Bæ›i Arsenal og Liverpool ger›u jafntefli.
Pedersen sá um United á Old Trafford
FÓTBOLTI Morten Gamst Pedersen
tryggði Blackburn 1-2 sigur á
Manchester United á Old Trafford
í gær með því að skora bæði mörk
síns liðs, það fyrra beint úr auka-
spyrnu á 33. mínútu og það seinna
á 81. mínútu eftir slæm varnar-
mistök Paul Scholes. Inni á milli
markanna hafði Ruud van Nistel-
rooy jafnað leikinn þegar hann
fylgdi á eftir skoti Wayne Rooney
en Rooney byrjaði á bekknum hjá
Manchester-liðinu í gær.
„Það er hrikalegt að tapa svona
leik hérna heima,“ sagði Sir Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United. „Undanfarin
ár hefur okkur gengið mjög vel á
heimavelli og ég vona að svona úr-
slit endurtaki sig ekki. Við fórum
illa með fjölmörg marktækifæri
og okkur var einfaldlega refsað,“
sagði Skotinn allt annað en sáttur
í leikslok.
Fyrsta markið á Chelsea
Luke Moore kom Aston Villa
yfir gegn Chelsea rétt fyrir hlé og
varð fyrsti leikmaðurinn til að
skora hjá Chelsea-vörninni á
tímabilinu en Chelsea hafði haldið
hreinu 642 fyrstu mínútur tíma-
bilsins. Þetta varð þó skammgóð-
ur vermir fyrir Aston Villa því
Frank Lampard sá til þess að
Chelsea hefur enn fullt hús.
Lampard jafnaði leikinn á
lokamínútu fyrri hálfleiks með
marki beint úr aukaspyrnu og
skoraði síðan sigurmarkið á 75.
mínútu með marki úr vítaspyrnu
eftir að Olaf Mellberg hafði fellt
Didier Drogba í teignum.
Eiður Smári Guðjohnsen kom
inn á sem varamaður fyrir Arjen
Robben í leiknum og spilaði síð-
ustu 28 mínúturnar. David
O’Leary knattspyrnustjóri Aston
Villa var ekki sáttur við dómara
leiksins því rétt áður en Chelsea
fékk dæmda vítaspyrnu handlék
Eiður Smári boltann að mati
O’Leary.
Tvö mörk frá Danny Murphy í
upphafi leiks voru nóg fyrir
Charlton í 2-1 sigri á West
Bromwich og Hermann Hreiðars-
son og félagar eru eina liðið sem
virðist ætla að halda eitthvað í við
Chelsea á upphafsmánuðum tíma-
bilsins.
Martröð Everton
Tímabil Everton heldur áfram
að versna. Í gær tapaði liðið fyrir
nýliðum Wigan 1-0 á heimavelli
sínum, Goodison Park. Mark
Wigan gerði Damien Francis á 47.
mínútu. Everton sem óvænt varð í
fjórða sæti úrvaldseildarinnar í
fyrra er nú í næst neðsta sæti
deildarinnar.
Bikarmeistarar Arsenal gerðu
markalaust jafntefli við nágranna
sína frá London, West Ham á
Upton Park. Hvorugt lið skapaði
sér afgerandi færi í leiknum.
West Ham heldur þvi áfram að
koma á óvart og er í fjórða sæti
deildarinnar. Bolton skaust upp í
þriðja sætið með sigri á
Portsmouth 1-0 á heimavelli sín-
um. Kevin Nolan gerði sigur-
markið með glæsilegri bakfalls-
spyrnu.
Nú var skorað í Liverpool-leik
Birmingham og Liverpool
skildu jöfn á St. Andrews heima-
velli Birmingham 2-2. Liverpool
jafnaði leikinn fimm mínútum
fyrir leikslok úr vítaspyrnu sem
Djibril Cisse framkvæmdi. Rafael
Benitez var ekki ánægður í leiks-
lok: „Í heildina vorum við betra
liðið. Við sköpuðum okkur færi til
að gera út um leikinn en því mið-
ur þá tókst það ekki. Þrátt fyrir að
hafa jafnað rétt fyrir lok leiksins
þá fannst mér við tapa tveimur
stigum en ekki fá eitt,“ - óój, hh
LEIKIR GÆRDAGSINS
Enska úrvalsdeildin:
BIRMINGHAM–LIVERPOOL 2–2
0–1 Luis Garcia (68.), 1–1 sjálfsmark
(72.), 2–1 Walter Pandiani (75.), 2–2
Djibril Cisse, víti (85.).
CHELSEA–ASTON VILLA 2–1
0–1 Luke Moore (44.), 1–1 Frank
Lampard (45.), 2–1 Frank Lampard, víti
(75.). Eiður Smári Guðjohnsen kom
inná sem varamaður á 62. mínútu.
EVERTON–WIGAN 0–1
0–1 Damien Francis (47.).
MAN. UTD–BLACKBURN 1–2
0–1 Morten Gamst Pedersen (33.), 1–1
Ruud Van Nistelrooy (67.), 1–2 Morten
Gamst Pedersen (81.).
NEWCASTLE–MAN. CITY 1–0
1–0 Michael Owen (18.).
WEST BROMWICH–CHARLTON 1–2
0–1 Danny Murphy, víti (9.), 0–2 Danny
Murphy (31.), 1–2 Curtis Davies (51.).
Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn.
WEST HAM–ARSENAL 0–0
BOLTON–PORTMOUTH 1–0
1–0 Kevin Nolan (25.).
STAÐAN:
CHELSEA 7 7 0 0 14–1 21
CHARLTON 6 5 0 1 10–4 15
BOLTON 7 4 2 1 8–4 14
WEST HAM 6 3 2 1 10–4 11
MAN. UTD 6 3 2 1 7–3 11
MAN. CITY 7 3 2 2 7–6 11
ARSENAL 6 3 1 2 9–4 10
WIGAN 6 3 1 2 5–4 10
TOTTENHAM 6 2 3 1 5–3 9
MIDDLESB. 6 2 2 2 6–7 8
NEWCASTLE 7 2 2 3 5–7 8
BLACKB. 7 2 2 3 5–9 8
LIVERPOOL 5 1 4 0 3–2 7
BIRMINGH. 7 1 3 3 7–11 6
ASTON VILLA 7 1 3 3 6–11 6
FULHAM 6 1 2 3 5–9 5
PORTSM. 7 1 2 4 5–9 5
WBA 7 1 2 4 7–13 5
EVERTON 6 1 0 5 1–7 3
SUNDERL. 6 0 1 5 3–10 1
Enska 1. deildin:
BURNLEY–BRIGHTON 1–1
COVENTRY–HULL 0–2
CREWE–WATFORD 0–0
CRSYTAL PALACE–PRESTON 1–1
LEEDS–IPSWICH 0–2
Gylfi Einarsson var í byrjunarliði Leeds
en var skipt útaf á 59. mínútu.
LEICESTER–QPR 1–2
Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan
leikinn með Leicester.
MILLWALL–CARDIFF 0–0
NORWICH–READING 0–1
Ívar Ingimarssson og Brynjar Björn
Gunnarsson voru báðir í byrjunaliði
Reading og spiluðu allan leikinn.
SHEFF. UTD–DERBY 2–1
SOUTHAMPTON–PLYMOUTH 0–0
Bjarni Guðjónsson var í byrjunarliði
Plymouth en var skipt útaf á 85. mínútu.
STOKE–WOLVES 1–3
STAÐA EFSTU LIÐA:
SHEFF. UTD 10 9 0 1 22–10 27
READING 10 7 2 1 19–6 23
WATFORD 10 5 3 2 19–12 18
LUTON 10 5 3 2 14–10 18
WOLVES 10 4 4 2 13–10 16
STOKE 10 5 1 4 11–14 16
SOUTHAMPT.10 3 6 1 12–9 15
QPR 10 4 3 3 9–11 15
LEEDS 9 4 2 3 10–9 14
Enska 3. deildin:
N. COUNTY–RUSHDEN & DIAMONDS 0–0
STAÐAN:
GRIMSBY 10 6 2 2 14–8 20
WYCOMBE 10 4 6 0 18–11 18
ROCHDALE 10 5 2 3 20–12 17
CHESTER 10 4 5 1 18–11 17
N. COUNTY 10 4 5 1 11–8 17
Spænska úrvalsdeildin:
ESPANYOL–VILLARREAL 1–2
0–1 Josico (44.), 1–1 Luis Garcia (60.),
1–2 Senna (66.).
VALENCIA–REAL SOCIEDAD 2–1
1–0 Aimar (34.), 2–0 Villa (48.), 2–1
Nihat (62.).
ATLETICO MADRID–GETAFE 0–1
0–1 Pernia (71.)
ZARAGOZA–DEPORTIVO 1–1
1–0 Milito (13.), 1–1 Tristan (45.).
Ítalska A-deildin:
REGGIANA–UDINESE 2–0
1–0 Cozza (43.), 2–0 Cavalli (77.).
PARMA–JUVENTUS x–x
1–0 Delvecchio (13.), 1–1 Camoranesi
(44.), 1–2 Vieira (82.).
Newcastle vann annan leikinn í röð í ensku úrvalsdeildinni í gær:
FÓTBOLTI Michael Owen gerði
sigurmark Newcastle sem sigr-
aði Manchester City 1-0 á heima-
velli í gær í ensku úrvalsdeild-
inni. Owen sem nýlega gekk til
liðs við Newcastle frá spænska
liðinu Real Madrid fyrir tvo
milljarða íslenskra króna. Hann
hefði hæglega getað skorað
þrennu í fyrri hálfleik en heppn-
in var ekki með honum.
„Michael er frábær leikmað-
ur. Ef hann helst heill mun hann
færa liðinu mikið af mörkum.
Ástæðan fyrir því að hann kost-
aði svona mikið er sú að hann
skorar mikið af mörkum. Við
keyptum ekki bara einhvern
framherja þegar við fengum
Michael Owen,“ sagði Graeme
Souness, knattspyrnustjóri New-
castle. Liðið er nú komið í tíunda
sætið eftir slæma byrjun á
tímabilinu. Eftir að Stuart
Pearce, stjóri City, tók við verð-
laununum sem knattspyrnustjóri
mánaðarins hefur hvorki gengið
né rekið hjá liðinu. Á einni viku
hefur það tapað þremur leikjum,
tveimur í deild og einum í deild-
arbikar. - hh
Owen skora›i sigurmark Newcastle
SIGURKARFAN Dirk Nowitzki var frábær.
MARKINU FAGNAÐ Michael Owen og
Lee Bowyer fagna hér sigurmarki
Newcastle gegn Man. City en liðið er nú
komið í 10. sæti deildarinnar eftir mjög
slæma byrjun. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
FYRSTA TAPAIÐ Á TÍMABILINU Oliver Kahn
og félagar hans í Bayern þurftu að sætta
sig við tap fyrir Hamburger eftir að hafa
unnið 15 leiki í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
KLÁRAÐI MANCHESTER Á OLD TRAFFORD Norðmaðurinn Morten Gamst Pedersen fagna
hér sigurmarki sínu fyrir Blackburn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Evrópukeppni í körfubolta:
fijó›verjar og
Grikkir í úrslit
KÖRFUBOLTI Þjóðverjar og Grikkir
mætast í úrslitaleik Evrópu-
keppni landsliða í körfubolta í dag
í Serbíu. Mikil dramatík var í und-
anúrslitaleikjunum þar sem sig-
urkörfurnar komu á lokasekúnd-
um leikjanna.
Þjóðverjar sigruðu Spánverja
74–73. Þar var NBA leikmaðurinn
Dirk Nowitzki hetja Þjóðverja,
hann skoraði sigurkörfuna með
fallegu stökkskoti þegar þrjár
sekúndur voru eftir af leiknum.
Novitzki sem leikur með Dallas
Mavericks gerði 29 stig í leiknum
og var stigahæstur Þjóðverja. Hjá
Spánverju var Javier Navarro
stigahæstur með 27 stig.
Í hinunm undanúrslitaleiknum
sigruðu Grikkir lið Frakka 77-76.
Grikkinn Dimitrios Diamantidis
gerði þriggja stiga körfu þegar
þrjár sekúndur voru eftir af leikn-
um. Papadopoulos var stigahæst-
ur Grikkja með 15 stig en hjá
Frökkum var Tony Parker, leik-
maður NBA meistara San Antonio
Spurs atkvæðamestur með 20
stig. - hh
Í GÓÐUM MÁLUM Spánverjinn Fernando
Alonso getur tryggt sér Heimsmeistara-
titlinn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Tímataka í formúlu eitt:
Alonso fyrstur
FORMÚLAN Spænski ökuþórinn
Fernando Alonso náði besta tím-
anum í tímatökum í gær fyrir
brasilíska kappaksturinn í for-
múlu eitt kappakstrinum sem
fram fer á dag.
Juan Pablo Montoya náði öðr-
um besta tímanum, en félagi
Alonso hjá Renault, Giancarlo
Fisichella, varð þriðji. Alonso get-
ur orðið yngsti heimsmeistarinn í
sögu Formúlu 1 á morgun ef hann
nær góðum úrslitum í dag, en
þessi 24 ára gamli ökumaður þarf
að hafna í þriðja sæti eða ofar til
að tryggja sér titil ökumanna.
Eini maðurinn sem getur náð
Alonso, Finninn Kimi Räikkönen,
náði aðeins fimmta besta tíman-
um. Heimsmeistarinn Michael
Schumacher byrjar sjöundi en
tímabilið hjá honum hefur valdið
miklum vonbrigðum. - hh
Belgíska knattspyrnan:
Rúnar skora›i
sigurmarki›
FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson gerði
sigurmark Lokeren sem sigraði
Club Brugge á útivelli 1–0 í
belgísku úrvalsdeildinni í fót-
bolta. Mark Rúnars kom á 30.
mínutu leiksins en sigur Lokeren
hefur vakið verðskuldaða athygli
því Club Brugge, sem er í Meist-
aradeildinni hefur verið besta lið
Belgíu ásamt Anderlecht á undan-
förnum árum. Rúnar skoraði
markið á laglegan hátt framhjá
Tomislav Butina, landsliðs-
markverði Króatíu en Rúnari var
síðan skipt útaf á 65. mínútu. Arn-
ar Þór Viðarsson lék allan leikinn
og Arnar Grétarsson spilaði
fyrstu 72. mínútur leiksins en
Marel Baldinsson er ennþá
meiddur. - hh
25. september 2005 SUNNUDAGUR
Þýska bundesligan í knattspyrnu í gær:
Loksins tapa›i Bayern München