Fréttablaðið - 25.09.2005, Side 64
32 25. september 2005 SUNNUDAGUR
Hár og förðunarmódel 18-25 ára óskast
á Sebastian sýningu sem verður haldin í
Borgarleikhúsinu sunnudaginn
09. Október kl.15.00.
Á þessari sýningu kynna
erlendir fagaðilar haust og
vetrarlínur 2005 -2006 frá
Sebastian í hári og förðun.
Skráning er í síma 563 63 00 (Anna eða
Rósa) fyrir miðvikudaginn 05. Október.
Paris Hilton er orðin einn mesti
höfuðverkur lögreglunnar í Mary-
land eftir að yfirvöld komust að
því að hún hafi boðið unglingum
að reykja gras til að fá þá til að
slaka á áður en einn af þáttum
hennar The Simple Life var
tekinn upp. Ef þetta reynast sann-
ar sögur gæti Paris Hilton þurft
að borga háa sekt og hugsanlega
þurft að fara í fangelsi. Talsmaður
Fox-sjónvarpsstöðvarinnar held-
ur því fram að sögurnar séu
ekkert annað en uppspuni. ■
Paris gó›kunningi löggunnar
Finnska hljómsveitin
Nightwish gerir það gott
Finnska hljómsveitin Nightwish
gefur nú út sína sjöttu plötu. Hún
ber nafnið Highest Hopes - The
best of Nightwish og kemur út á
mánudaginn. Þó hljómsveitin sé
lítið þekkt hér á landi, þá hefur
hún verið að gera það gott allt frá
árinu 1997 um alla Evrópu. Hún
hefur selt yfir 2,5 milljónir platna
á ferli sínum sem spannar nú heil
níu ár. Síðasta plata þeirra, Once,
sem kom út í október á síðasta ári,
hlaut mikið lof og náði meðal ann-
ars platínusölu í Finnlandi daginn
eftir útgáfudag. Once varð vin-
sælasta plata Evrópu í tvær vikur
á síðasta ári og sýnir það hversu
miklum árangri hljómsveitin
finnska hefur náð. Nightwish hef-
ur mjög sérstakan stíl, en hún
blandar saman melódísku þunga-
rokki og klassískri tónlist. Söng-
kona Nightwish, Tarja, er lærð
sópransöngkona og hún á stóran
þátt í því að skapa frumlegan
hljóm þeirra.
Tuomas sem er hljómborðs-
leikari Nightwish segir að tónlist
hljómsveitarinnar hafi þróast að
miklu leyti frá því að fyrsta plata
þeirra kom út árið 1997. „Þemað á
bakvið tónlistina er að vissu leyti
það sama, en að sjálfsögðu hefur
hún breyst örlítið. Við byrjuðum
sem þungarokksband en en höfum
þróast mikið með árunum og
erum orðnir mun fjölbreyttari en
áður.“ Tuomas skrifar bæði tónlist
og texta hljómsveitarinnar og
hann segir sinn helsta áhrifavald
á tónlistarsviðinu koma úr kvik-
myndatónlist. „Textarnir mínir
eru á mjög persónulegum nótum.
Ég skrifa mikið um tilfinningar og
líka bara um lífið og tilveruna.“
Hann segir hljómsveitarmeðlimi
Nightwish hlusta á allar tegundir
tónlistar sem gefur þeim vissan
fjölbreytileika. „Við hlustum á allt
frá poppi til þungarokks. Eigin-
lega allt nema rapp.“
Nightwish hefur haldið fjölda
tónleika út um allan heim og
Tuomas segist hafa mikinn áhuga
á því að leika á Íslandi. „Ég hef
aldrei hitt né talað við neinn frá
Íslandi og hef alltaf velt því fyrir
mér hvað sé eiginlega á seyði þar.
Ísland er svo framandi. Við höfum
haldið tónleika í Noregi, Svíþjóð
og Danmörku, en aldrei á Íslandi.
Ef það er áhugi fyrir því að fá
okkur, þá munum við gera allt
sem í okkar valdi stendur til að
koma þangað og spila.“
drifa@frettabladid.is
PARIS HILTON Hefur einstakt lag á að koma sér í klandur og er nú með lögguna í
Maryland á hælunum.
NIGHTWISH Það
hefur ekki farið
mikið fyrir þessari
vinsælu finnsku
hljomsveit á Ís-
landi en það gæti
farið að breytast.
Aðdáendur Belle and Sebastian
ættu að hafa eyrun opin fyrir
sveitinni The Boy Least Likely To.
Það ríkir sami vinalegi viðar andi
yfir sveitunum en hljómar eins og
hún hafi eytt lengri tíma á leik-
skólanum. Miðað við hversu ynd-
islega barnalega útsetningar eru
kæmi mér ekkert á óvart ef þessi
sveit væri full af leikskólakennur-
um. Hér er spilað á klukkuspil,
blokkflautur og alls kyns smádót
sem þið finnið eflaust í dótakass-
anum hjá börnunum ykkar.
Þetta er þó ekki tónlist fyrir
smákrakka, þó að það kæmi mér
ekkert á óvart ef litli átta ára
frændi minn og eins árs frænka
hefðu gaman af þessu. Þau myndu
tengja sig við hversu einfaldar og
upplífgandi lagasmíðarnar eru.
Svo þegar þau fara að færast nær
þrítugu eiga þau eftir að tengja við
textana, sem eru hreint út sagt af-
bragð. Söngvarinn setur sig oftast
í hlutverk þrítugs barns sem botn-
ar ekkert í heiminum. Hann veltir
sér upp úr einföldum hlutum eins
og af hverju hann hugsi of mikið,
og hvers vegna allir gömlu skóla-
félagarnir hans séu að breytast í
sömu skrímsli og hann fyrirleit
sem unglingur. Já, og það að sofa
með skammbyssu undir koddanum
af ótta við heiminn. Allt er þetta
sungið ofan á tónlist sem er svo
upplífgandi að hún gæti skorið
glufur á þykkustu og dökkustu
regnský fyrir sólina að sleppa í
gegn. Þau eru í stuði, þó svo að það
þau séu ein í teitinu og það sé
hvirfilbylur á leiðinni. Ef þú eruð
eitthvað örlítið dán þessa dagana,
þá er þetta rétta platan til þess að
tékka á.
Það skemmir ekki heldur fyrir
að þessi sveit hefur algjörlega
rennt sínum eigin bolta af stað.
Þau hljóðrituðu plötuna sjálf og
stofnuðu svo sitt eigið útgáfu-
fyrirtæki til þess að gefa út þessa
frumraun sína. Næst redduðu þau
sér dreifingu um Bretland og
komust þannig inn í tónlistar-
blöðin. Nýverið gerði sveitin svo
samning við stærri útgáfu sem
lofar að skila plötunni í búðir um
allan heim. Svona á að fara að
þessu krakkar mínir! Gera
afbragðs plötu, vera sjálfs síns
herra og hafa stærri útgáfurnar í
vasanum þegar þær koma bank-
andi upp á.
Birgir Örn Steinarsson
Leikskólapopp fyrir fullor›i› fólk
THE BOY LEAST LIKELY TO
The Best Party Ever
NIÐURSTAÐA: Breska sveitin The Boy Least
Likely To er með vinalegri sveitum sem þið
heyrið í. Spilagleðin lekur af plötunni eins og
sýróp af pönnukökum. Textarnir eru svo frá-
bærar vangaveltur um hversdagsleikann, sagð-
ar frá sjónarhorni manns sem neitar að
þroskast um of.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN