Fréttablaðið - 28.09.2005, Qupperneq 6
LEIKSKÓLAMÁL Foreldrar í Grafar-
vogi segja ófremdarástand ríkja í
leikskólamálum. Deildum á leik-
skólum er lokað dag og dag í senn,
og dæmi eru um að foreldrar sem
eiga fleiri en eitt barn á sama leik-
skóla missi tvo eða fleiri daga í
viku hverri úr vinnu.
„Okkur barst bréf undirritað af
Halldóru Pétursdóttur, leikskóla-
stjóra á Laufskálum í Grafarvogi,
þar sem því var lýst yfir að óhjá-
kvæmilegt væri að loka deildum á
leikskólanum á næstunni. Ekki
hefði tekist að ráða í stöður og við
það bættust starfs- og undirbún-
ingsdagar þeirra starfsmanna
sem fyrir eru,“ segir Ásta Marta
Róbertsdóttir, en dóttir Ástu er í
Laufskálum.
Ásta segir að foreldrar barna á
leikskólanum Laufskálum skipt-
ist nú á að vera heima með börn-
um hver annars. „Þetta er náttúr-
lega langsamlega erfiðast fyrir
einstæðar mæður,“ bætir Ásta
við. Ásta segist vita til þess að
sambærilegt ástand sé á leikskól-
unum Lyngheimum og Fífuborg í
Grafarvogi.
Í gærkvöld var haldinn fundur
í Laufskálum þar sem borgarfull-
trúarnir Stefán Jón Hafstein og
Guðlaugur Þór Þórðarson hittu
leikskólakennara og foreldra.
Ekki var laust við að nokkurra
vonbrigða gætti hjá foreldrum
sem rætt var við eftir fundinn.
Marteinn Þorkelsson foreldri
sagði að skilaboðin hefðu verið að
foreldrar þyrftu að standa sína
plikt, Laufskáli væri ekki eini
leikskólinn sem byggi við skort á
starfsfólki. Hvorki náðist í Stefán
Jón Hafstein né Guðlaug Þór
Þórðarson vegna málsins í gær-
kvöld.
Halldóra Pétursdóttir leik-
skólastjóri meinaði starfsmanni
Fréttablaðsins aðgangi að fund-
inum og sagðist enga umfjöllun
vilja um þessi mál. Hún sagði í
samtali að blaðið ætti frekar að
fjalla um börn að leik. „Það er
enginn ávinningur af því að
fjalla meira um þetta mál í fjöl-
miðlum en orðið er,“ segir Hall-
dóra.
saj@frettabladid.is
6 28. september 2005 MIÐVIKUDAGUR
Næstráðandi al-Kaída í Írak felldur um helgina:
Ekkert lát á uppreisninni
BAGDAD, AP Lík 22 manna fundust
sundurskotin í borginni Kut í Írak
í gær. Þá var skýrt frá því að
bandarískar og íraskar hersveitir
hefðu fellt næstráðanda al-Kaída í
Írak um helgina.
Líkin í Kut voru í borgaraleg-
um klæðum en þau eru talin vera
af sjíum. Ekki er vitað hvenær
þeir voru teknir af lífi en talið er
að margir dagar geti verið síðan.
Hendur þeirra höfðu verið bundn-
ar og bindi sett fyrir augun.
Yfirvöld skýrðu frá því í gær
að Abdullah Abu Azzam, háttsett-
ur félagi í al-Kaída í Írak, hefði
fallið í bardögum við íraska og
bandaríska hermenn á sunnu-
dagsmorguninn. Azzam er sagður
hafa stýrt ýmsum hryðjuverka-
árásum al-Kaída í landinu undan-
farin misseri, meðal annars lýsti
hann ábyrgð á tilræðinu við Izza-
dine Saleem, forseta ráðgjafaráðs
Íraka, í maí 2004. Hann er auk
þess sagður hafa fjármagnað
flutning á erlendum vígamönnum
sem streymt hafa inn til landsins
undanfarin misseri.
Ekki er víst hvaða áhrif drápið
á Azzam mun hafa. Bandaríkjaher
hefur margoft sagst hafa haft
hendur í hári háttsettra hryðju-
verkamanna en þrátt fyrir það
hefur ekkert lát orðið á uppreisn-
inni í landinu. - shg
KÓPAVOGUR „Það hefur verið mikil
umferð hjá okkur bæði í gær og í
dag. Raunverulega hefur verið
biðröð hér síðan hálf níu í morgun
og alveg þangað til fresturinn
rann út klukkan þrjú,“ segir
Birgir Sigurðsson, skipulagsstjóri
í Kópavogi. Frestur rann út í gær
til að sækja um 30 íbúðalóðir í
fjölbýli, fimmtán einbýlishúsalóð-
ir, sex parhús, eitt raðhús og eitt
fjórbýli.
Kópavogsbær gerði kröfu um
25 milljóna greiðslugetu fyrir
einbýlishúsalóð og tuttugu millj-
óna greiðslugetu fyrir raðhúsum
og parhúsum. Birgir segir næsta
skrefið vera að koma öllum gögn-
um fyrir í tölvukerfinu. „Um-
sóknirnar verða svo teknar fyrir
á bæjarráðsfundi. Bæjarráðið
vinnur úr þessu samkvæmt verk-
lagsreglum. Næsti bæjarráðs-
fundur verður á fimmtudag í
næstu viku. Það er mögulegt að
það náist að taka þetta fyrir þá,“
segir Birgir.
Birgir segir þessa miklu ásókn
í lóðir sýna hversu bærinn er vin-
sæll. „Það komast færri að en
vilja,“ segir Birgir. - saj
Foreldrar skiptast á
a› gæta barnanna
Foreldrar í Grafarvogi segja ófremdarástand ríkja í leikskólamálum. Deildum
er loka› og foreldrar skiptast á a› sinna börnunum. Leikskólastjórinn vill
ekki opinbera umfjöllun um máli›.
ABDULLAH ABU AZZAM Azzam er af
mörgum talinn hægri hönd Abu Musab al-
Zarqawi, leiðtoga al-Kaída í Írak.
LEIKSKÓLABÖRN Á fundi í leikskólanum Laufskálar í gærkvöld fengu foreldrar þau skilaboð að þeir þyrftu að standa sína plikt. Vandamál
í starfsmannahaldi leikskólanna væru víðar en í Grafarvogi.
Þjófur dæmdur:
Braut rú›ur
í átta bílum
DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur mað-
ur var dæmdur í fjögurra mán-
aða fangelsi, skilorðbundið í tvö
ár, í Héraðsdómi Reykjavíkur í
byrjun vikunnar.
Dóminn hlýtur maðurinn fyr-
ir margvísleg þjófnaðarbrot.
Auk þjófnaðar var hann í eitt
sinn gripinn með tæpt gramm af
marijúana á sér.
Í september í fyrra braust
maðurinn inn í átta bíla við
Freyjugötu í Reykjavík, en hann
braut í þeim öllum rúðu og stal
svo úr sumum.
Fjórir gerðu kröfu um bætur
fyrir rúðubrotin og þurfti mað-
urinn að greiða þremur þeirra
alls, rúmar 81 þúsund krónur
með vöxtum, en einni kröfunni
var vísað frá vegna misræmis
milli málsskjala og ákæru.
- óká
PERÚ
MANNSKÆÐUR JARÐSKJÁLFTI
Jarðskjálfti af stærðinni 7,5
reið yfir norðurhluta Perú í
gær. Að minnsta kosti fjórir
fórust í hamförunum og um
sextíu slösuðust. Tæplega fjög-
ur hundruð hús eru sögð hafa
hrunið á jarðskjálftasvæðinu og
rafmagns- og símalaust er á
stórum hluta svæðisins. Jarð-
skjálftar eru algengir á þessum
slóðum enda eru þar jarðfleka-
mót.
RÉTTAÐ YFIR UPPREISNARLEIÐ-
TOGA Réttarhöld eru aftur hafin
yfir Abimael Guzman, leiðtoga
hinnar róttæku kommúnista-
hreyfingar Skínandi stígs, í
Perú. Talið er að 70.000 manns
hafi látist í átökum hreyfingar-
innar og stjórnarhersins í gegn
um tíðina. Herréttur dæmdi
Guzman á sínum tíma í ævi-
langt fangelsi og var verjandi
hans svartsýnn á að niðurstað-
an yrði önnur nú.
Ætlarðu á skíði í vetur?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu sátt(ur) við að Davíð sé
hættur í ríkisstjórn?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
76%
24%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Tölvunám eldri borgara
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
Grunnur
30 kennslustunda byrjendanámskeið fyrir 60 ára og
eldri. Engin undirstaða nauðsynleg, hæg yfirferð með
þolinmóðum kennurum. Á námskeiðinu er markmiðið
að þátttakendur verði færir að nota tölvuna til að skrifa
texta, setja hann snyrtilega upp og prenta, fara á
internetið, taka á móti og senda tölvupóst.
Kennsla hefst 3. október
og lýkur 24. október.
Kennt er mánudaga
og miðvikudaga kl 13 - 16.
Verð kr. 19.500,-
Vegleg kennslubók innifalin.
Framhald I
30 kennslustunda námskeið, hentar þeim sem lokið hafa
byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu.
Byrjað er á upprifjun áður en haldið er lengra í Word.
Framhaldsæfingar í Internetinu og tölvupósti auk þess
sem stafrænar myndavélar verða kynntar.
Kennsla hefst 4. október og lýkur 25. október. Kennt er
þriðjudaga og fimmtudaga kl 13 - 16. Verð kr. 19.500,-
Framhald II
30 kennslustunda námskeið ætlað þeim sem lokið hafa
fyrra framhaldsnámskeiðinu eða hafa sambærilegan
grunn og vilja enn meiri þekkingu og þjálfun. Byrjað er
á upprifjun og svo er haldið áfram og kafað dýpra.
Kennsla hefst 4. október og lýkur 25. október. Kennt er
þriðjudaga og fimmtudaga kl 13 - 16.
Verð kr. 17.000,-
BÆJARSKIPULAG KÓPAVOGS Biðraðir mynduðust á skrifstofunum í gær.
Frestur rann út í gær til að sækja um lóðir í Kópavogi:
Bi›ra›ir hjá Bæjarskipulagi Kópavogs
Bandaríski herinn:
Yfirgefur
Úsbekistan
ÚSBEKISTAN, AP Bandaríski herinn
mun leggja herstöð sína í Úsbekist-
an niður fyrir lok þessa árs, að því
er erindreki Bandaríkjastjórnar
greindi frá í gær. Herstöðin hefur
þjónað hernaðarumsvifum Banda-
ríkjamanna í Afganistan.
Stjórnvöld í Úsbekistan fóru
fram á brottflutninginn en sam-
skipti þeirra við Bandaríkin og
önnur Vesturlönd hafa verið mjög
stirð eftir harkalegar aðgerðir
Úsbekistanstjórnar gegn stjórn-
arandstöðunni þar í landi. Búist er
við því að Bandaríkjamenn efli
herstöð sína í nágrannalýðveldinu
Kirgisistan eftir brottförina frá
Úsbekistan. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA