Fréttablaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 60
24 28. september 2005 ÞRIÐJUDAGUR Ég er ein af þeim sem hræðist lík- amsræktarstöðvar. Mér finnst þær of stórar, of ógnandi, of sveittar og inni- halda of mikið af tækjum sem ég kann ekki á. Ég hata að koma inn í líkamsræktar- stöð, setjast við eitthvað tæki og byrja á því að finna út hvernig það virkar. Ég skil eiginlega ekki þessa líkamsræktarstöðvaþörf hjá fólki. Þessar stóru og nýju stöðvar eru líka eins og geimstöðvar og svo fjarri öllu því umhverfi sem ég fíla mig í að mér líður alltaf eins og ég sé gestur. Eins og allir horfi á mig og hugsi: „Bíddu, hver er þetta eiginlega?“ Fór í Laugar í fyrsta sinn um daginn. Nei, auðvitað ekki til þess að fara í tækin heldur átti ég miða í baðstofuna. Afgreiðslustúlkan átti ekki orð yfir að ég hefði aldrei kom- ið þangað áður. Ég tilkynnti henni vingjarnlega að það væru nú bara ekki allir sem færu í líkamsræktar- stöðvar, hvað þá sömu stöðina. Svo þurfti ég að fara í gegnum heljar- innar aðgerð til að skanna á mér augað. Hvað ef ég vil ekkert að aug- að í mér sé skannað? Má ég þá bara ekki vera með? Næst fara þessar líkamsræktarstöðvar að græða ör- flögu í handarbakið á manni. Bað- stofan var reyndar yndisleg og til hamingju með hana Laugar, trallala. En það tók mig líka hálf- tíma að finna hana eftir að hafa ráf- að um gangana á sundfötunum eins og auli og spurt til vegar. Maður þarf að taka með sér staðsetningar- tæki í svona stöðvar. Ætli björgun- arsveitin fái mörg útköll frá stór- um líkamsræktarstöðvum? „Uu, já, ég er staddur einhvers staðar rétt hjá spa-inu, ég er hundvilltur- get- iði komið og sótt mig?“ Annars skil ég ekki af hverju fólk fer ekki bara út og hreyfir sig. Í staðinn fyrir að keyra í líkams- ræktarstöð, borga gífurlega pen- ingaupphæð fyrir það, fara svo á hlaupabretti og labba. Halló?! Far- iði út að labba, fólk! Eða hjóla, hlaupa, dansiði úr ykkur allan mátt á skemmtistöðunum eða farið í búðarrölt. STUÐ MILLI STRÍÐA BORGHILDI GUNNARSDÓTTUR LEIÐAST LÍKAMSRÆKTARSTÖÐVAR Ógn líkamsræktarstöðvanna M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Tónlistarskóli Árbæjar í Grafarholti! Hug á tónlistarnámi? Nú er tækifærið! Nýr tónlistarskóli í Grafarholtinu. Kennsla fer fram í Ingunnarskóla. Kennt á öll helstu hljóðfæri fyrir byrjendur sem lengra komna. Nokkur pláss laus á gítar og píanó! Umsóknir sendist á tölvupósti: tonarb@heimsnet.is Reyndir og menntaðir kennarar Tónlistarskóli Árbæjar, Ingunnarskóla Skoðið vefsíðu okkar: www.tonarb.net símar 587 1664 861 6497 Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli 2 8 9 4 5 6 8 1 4 5 2 7 7 3 5 4 6 8 1 7 9 2 6 3 3 9 8 6 1 1 7 2 5 4 8 9 ■ SUDOKU DAGSINS Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi. Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á www.sudoku.com. Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað- inu á morgun. 4 9 2 5 7 1 3 6 8 3 8 1 9 6 4 2 7 5 6 7 5 3 8 2 9 1 4 9 2 3 6 5 8 1 4 7 5 6 7 4 1 9 8 2 3 1 4 8 2 3 7 5 9 6 2 5 4 8 9 6 7 3 1 7 3 9 1 4 5 6 8 2 8 1 6 7 2 3 4 5 9 Lausn á gátu gærdagsins Íslandsvinirnir Smokie hafa nýgefið út nýja plötu! Sara Sara Sara Sara Sara Sara Sara Sara Hæ Palli Solla, viltu rétta mér pappírinn þarna? Ég tek svo umbúðirnar af frostpinnunum ykkar líka. Og þegar þið eruð búin, munið þá eftir að láta mig fá pinnana og servíetturnar líka. Af hverju ætli fullorðið fólk sé svona hrifið af rusli? Ég Ég Ég Ég Ég Ég Ég Ég Ég Ég Ég Ég Ég Af hverju geri ég svona lagað? Egóisti. „Íslandsvinir?“ Ekki láta þetta blekkja þig, sonur sæll! „Íslandsvinir“ þýðir að þeir hafa floppað í öllum hinum löndunum! Hundasnyrtistofa Berglindar ALLAR TEGUNDIR Hundasnyrtistofa Berglindar ALLAR TEGUNDIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.