Fréttablaðið - 28.09.2005, Blaðsíða 12
ER ALLT MEÐ FELLDU? Þingkosningar fóru
fram í Afganistan fyrir rúmri viku en taln-
ing atkvæða stendur ennþá yfir. Fulltrúi
eins framboðsins fylgdist með talningunni
í höfuðborginni Kabúl í gær.
12 28. september 2005 MIÐVIKUDAGUR
Sakborningar í máli tengdu skyrslettum á álráðstefnu:
Krefjast bæ›i s‡knu af húsbroti
DÓMSMÁL Arna Ösp Magnúsar-
dóttir sem ákærð er fyrir eigna-
spjöll og húsbrot á hótel Nor-
dica í sumar þar sem skvett var
grænu skyri á gesti álráðstefnu
breytti í gær afstöðu sinni til
ákærunnar um húsbrotið. Málið
var tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
„Hún mótmælir því að hafa
ruðst heimildarlaust inn í sal-
inn,“ sagði Guðmundur B. Ólafs-
son, lögmaður hennar, en í laga-
ákvæði um húsbrot er notað
orðalagið að ryðjast.
Hún hafði áður játað að hafa
farið inn í salinn í heimildar-
leysi.
Aðalmeðferð verður í máli
Örnu Aspar og Ólafs Páls Sig-
urðssonar, sem einnig neitar
sök, undir lok næsta mánaðar,
en þá verða teknar skýrslur af
þeim báðum fyrir dómi, auk
þess sem kölluð verða til vitni,
bæði af hálfu ákæruvalds og
verjenda.
Í sumarlok var þriðji maður-
inn sem ákærður var fyrir aðild
að slettunum dæmdur fyrir að-
ild sína, Paul Geoffrey Gill,
Breti sem þátt tók í mótmælum
hér, en hann fékk skilorðsbund-
inn fangelsisdóm og skaðabóta-
kröfum var vísað frá.
- óká
VÍETNAM, AP Fellibylurinn Damrey
gekk á land í Thanh Hoa héraði í
Víetnam í gærmorgun og slösuð-
ust nokkrir í óveðrinu. Áður hafði
stormurinn farið yfir Hainan-
eyju, sem tilheyrir Kína, og lágu
þar níu manns í valnum.
Tæplega 300.000 íbúar voru
fluttir af heimilum sínum í Thanh
Hoa og nálægum héruðum. Þegar
fellibylurinn gekk svo á land
fylgdu honum 4,5 m háar flóð-
bylgjur, rafmagn fór af stórum
hluta svæðisins og tré rifnuðu upp
með rótum. Hrísgrjónaakrar
liggja nú undir vatni og er búist
við að langan tíma taki að koma
lífi íbúanna í samt lag. ■
LANDHELGISGÆSLAN „Það gekk bara
mjög vel miðað við veður og að-
stæður að koma honum um borð,“
segir Magnús Örn Einarsson,
stýrimaður og sigmaður TF-LIF.
„Hann treysti sér til þess að setja
björgunarlykkjuna á sig sjálfur
og við vorum ekki nema í fjórar
mínútur yfir honum, þá var hann
kominn til okkar.“
Skútan Vamos lenti í vandræð-
um þegar mastur hennar brotnaði
í afleitu veðri um 90 sjómílur
norðvestur af Vestfjörðum, um
það bil mitt á milli Grænlands og
Íslands. Skömmu eftir miðnætti
fékk skútan á sig brotsjó, mastrið
brotnaði og hún lagðist á hliðina
með þeim afleiðingum að annar
skipverja, skoskur að uppruna,
féll fyrir borð. Hinn maðurinn,
sem er bandarískur, gat lítið ann-
að gert en að bíða eftir hjálp.
Fyrsta neyðarkallið barst
klukkan 2.17 aðfaranótt þriðju-
dags, en ekkert samband náðist
við skútuna. Landhelgisgæslan
kannaði skipaferðir á svæðinu og
hafði samband við björgunar-
stöðvar í nágrannalöndunum til að
fá upplýsingar um uppruna neyð-
arbaujunnar og skipaferðir.
Björgunarstjórnstöðin í Norfolk í
Bandaríkjunum gaf að lokum upp-
lýsingar um skútuna, sem og að
tveir menn væru um borð.
Þá var haft samband við
norskan línuveiðara sem var á
veiðum á svæðinu, en hann gat
ekkert aðhafst vegna aftaka-
veðurs. Vindhraði á svæðinu var
um það bil 30 metrar á sekúndu,
lélegt skyggni, haglél og 10 til 15
metra ölduhæð, að sögn norska
skipstjórans.
Fokker-vél Landhelgisgæsl-
unnar, TF-SYN, mætti á svæðið
ásamt þyrlunni þegar birti. Þær
fundu skútuna skömmu eftir
klukkan átta í gærmorgun, og leið
manninum bærilega miðað við að-
stæður, segir Magnús.
Þegar búið var að hífa manninn
um borð var leitað að félaga hans,
en sú leit bar engan árangur.
smk@frettabladid.is
ROK OG RIGNING Fellibylurinn Damrey er sá öflugasti sem geisað hefur á þessum slóðum
í hartnær þrjá áratugi.
M
YN
D
/A
P
Öflugur fellibylur í Víetnam og Kína:
Níu manns bi›u bana
MANNBJÖRG Einum manni var bjargað þegar skúta lenti í vandræðum í aftakaveðri mitt á
milli Grænlands og Íslands í fyrrinótt.
Skipsbrots-
manni bjarga›
Einum manni var bjarga› um bor› í flyrlu Land-
helgisgæslunnar en annar er talinn látinn, eftir a›
bandarísk skúta lenti í hafsnau› í gærnótt.
ARNA ÖSP MAGNÚSARDÓTTIR OG GUÐMUNDUR B. ÓLAFSSON Meðal þess sem tekist er
á um í skyrslettumálinu á Nordica hóteli frá því í sumar er hvort stórfelld eignaspjöll hafi
orðið af slettunum. Í ljós kom að sumir hlutir sem taldir voru ónýtir voru bara skemmdir.
Egyptalandsforseti:
Sór ei›inn í
fimmta sinn
KAÍRÓ, AP Hosni Mubarak, forseti
Egyptalands, sór í gærmorgun
embættiseið en hann sigraði ör-
ugglega í for-
setakosningum í
landinu fyrr í
m á n u ð i n u m ,
þeim fyrstu þar
sem frambjóð-
endum annarra
flokka var leyft
að bjóða sig
fram.
Mubarak, sem
er sjötíu og sjö
ára, hefur verið forseti síðan
1981 og verður forseti til ársins
2011 sitji hann út kjörtímabilið.
Kosningalögum var breytt
nýverið til að mæta kröfum um
aukið lýðræði. Fáum dylst þó að
aðrir frambjóðendur áttu litla
sem enga möguleika á sigri. ■
HOSNI HÆSTÁ-
NÆGÐUR
Mubarak tók við
völdum í Egypta-
landi árið 1981.
M
YN
D
/A
P
M
YN
D
/L
AN
D
H
EL
G
IS
G
Æ
SL
AN
SKIPULAGSMÁL Aðstandendur verk-
efnisins Akureyri í öndvegi, sem
lýtur að uppbyggingu miðbæjarins
á Akureyri, eru því mjög mótfalln-
ir að Samskip verði úthlutað lóð
undir vöruskemmu við hlið Eim-
skips á hafnarsvæðinu. Umsókn
Samskipa er nú til meðferðar hjá
bæjaryfirvöldum en Ragnar
Sverrisson, talsmaður Akureyrar í
öndvegi, segir að fái Samskip lóð-
ina sé það þvert á vilja bæjarbúa.
„Það er mjög alvarlegt mál ef
Samskip fá þessa lóð því fram kom
sterkur vilji á fjölmennu íbúaþingi
í fyrra að þarna verði í framtíðinni
íbúðabyggð og allar verðlaunatil-
lögurnar í hugmyndasamkeppni
um mótun miðbæjarins gera ráð
fyrir því,“ segir Ragnar.
Umsókn Samskipa verður tekin
fyrir hjá umhverfisráði Akureyr-
arbæjar í dag en endanleg ákvörð-
un er í höndum bæjarstjórnar
Akureyrar. „Ég trúi því ekki fyrr
en á reynir að bæjarfulltrúar á Ak-
ureyri hunsi vilja bæjarbúa,
hvernig sem málið verður afgreitt
í umhverfisráði,“ segir Ragnar. - kk
Samskip vilja lóð á hafnarsvæðinu á Akureyri:
fivert á vilja bæjarbúa
RAGNAR SVERRISSON Talsmaður Akureyrar
í öndvegi segist trúa því að að bæjarfull-
trúar komi til með að virða vilja bæjarbúa.