Fréttablaðið - 28.09.2005, Page 56

Fréttablaðið - 28.09.2005, Page 56
Sinfóníuhljómsveit áhuga- manna hefur starfað í fimmtán ár undir styrkri stjórn Ingvars Jónassonar. Ingvar ákvað í vor að hætta sem aðalstjórnandi og við honum tekur Oliver Kentish, sellóleikari, tón- skáld og stjórnandi. Oliver hefur búið á Íslandi síðan árið 1977. „Ég fékk starf í Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Þetta átti að vera til eins árs en eins og vill verða þá kynntist ég konu, stofnaði fjölskyldu og allt í einu er ég búinn að búa lengur hér en í heimaland- inu,“ segir Oliver sem fæddist í London og hóf að læra á selló tólf ára gam- all. „Þegar ég var búinn að læra og var að leita mér að vinnu í Bretlandi var hringt í mig og ég spurður hvort ég hefði áhuga á þessu starfi,“ segir Oliver sem hélt fyrst að verið væri að gera grín. Oliver hefur verið við- riðinn Sinfóníuhljómsveit áhugamanna frá upphafi. „Ég held ég hafi spilað á fyrstu tónleikum hljóm- sveitarinnar sem hljóð- færaleikari,“ segir Oliver sem stjórnað hefur hljóm- sveitinni nokkrum sinnum yfir árin auk þess sem hann hefur samið verk fyrir hana. „Þetta er það sem mér finnst mest gaman af öllu,“ segir Oliver um það að stjórna hljómsveit en hann stjórnar einnig kammer- hljómsveit í Tónlistarskól- anum í Hafnarfirði. „Mér finnst þetta mjög gefandi starf því mikið af þessum krökkum sem ég hef kennt er núna atvinnufólk í tónlist og spilar í Sinfóníuhljóm- sveit Íslands,“ segir Oliver sem er stoltur af gömlu nemendunum sínum. Oliver vill heldur stjórna nemendum og áhugamönnum en atvinnu- mönnum. „Ég held ég sé best geymdur þar sem ég er,“ segir Oliver og hlær hjartanlega. Oliver telur hljómsveitina góða enda spili þar bæði ungt fólk á leið í atvinnumennsku og annað fólk sem hefur lært talsvert í tónlist en valdi að lokum annan starfsferil. Oliver segir spennandi starfsár framundan og margt skemmtilegt í boði. Fyrstu tónleikarnir verða nú á sunnudag þar sem boð- ið verður upp á verk eftir Mozart, Schubert og Weber en ungur klarinettuleikari, Grímur Helgason, mun leika einleik með hljóm- sveitinni. Tónleikarnir verða í Seltjarnarneskirkju og hefjast klukkan 17. 20 28. september 2004 MIÐVIKUDAGUR BRIGITTE BARDOT (1934 -) á afmæli í dag. OLIVER KENTISH VERÐUR AÐALSTJÓRNANDI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÁHUGAMANNA „Það er leitt að eldast en gott að þroskast.“ Franska þokkagyðjan og kvikmyndastjarnan Brigitte Bardot hætti að leika árið 1974 en hefur síðan verið ötull talsmaður dýraverndunar. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Hannes Jónsson rafvirkjameist- ari, Austurbrún 4, Reykjavík, and- aðist fimmtudaginn 15. septem- ber. Bálför hefur farið fram í kyrr- þey. Ingibergur Bjarnason, Rauða- nesi III, Borgarnesi, andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi föstudaginn 23. sept- ember. Einar Kr. Pálsson, sjóntækja- fræðingur, Oddeyrargötu 14, Ak- ureyri, andaðist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri laugar- daginn 24. september. Áskell Einarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Norðlendinga, lést á heim- ili sínu, Vallholtsvegi 17, Húsavík, sunnudaginn 25. september. TÓNSKÁLD OG STJÓRNANDI Þegar Oliver var boðið starf í Sinfóníu- hljómsveit Íslands fyrir 28 árum hélt hann fyrst að verið væri að gera grín. Á þessum degi árið 1066 réðst Vilhjálmur, hertogi af Normandí, inn í England og gerði tilkall til ensku krúnunnar. Þótt óskilgetinn væri varð Vilhjálmur hertogi Norm- andí aðeins sjö ára gamall, þegar faðir hans féll frá árið 1035. Árið 1051 er talið að hann hafi heimsótt Játvarð Englandskonung sem var barnlaus. Normanskir sagnfræðingar segja Játvarð hafa lofað að gera Vil- hjálm að erfingja sínum en á banabeði snerist hon- um hugur og lofaði Haraldi Guðinarsyni, voldugasta manni Englands, krúnunni. Í janúar 1066 var hann krýndur Haraldur II Englandskonungur og mótmælti Vilhjálmur harðlega. Síðar um árið veitti Haraldur harðráði Noregskon- ungur Vilhjálmi liðsinni sitt. Hann réðst inn í Eng- land frá Skotlandi sem gerði að verkum að landið var óvarið frá Ermasundi. Vilhjálmur kom á land í Pevensey og skundaði þaðan til Hastings hvar hann mætti Haraldi II í orrustu í október. Vilhjálmur felldi Har- ald og sigraði her hans. Frá Hastings þusti Vilhjálmur til Lund- úna og vann borg- ina umsvifalaust á sitt vald. Á jóladag 1066 var Vilhjálmur sigursæli krýndur Englandskonungur, fyrstur Normanna og lauk þar með valda- tíð Engilsaxa á Englandi. Franska varð opinber tunga hirðarinnar en blandaðist smám saman engilsaxnesku og lagði grunninn að nútímaensku. Vilhjálmur lést árið 1087. VILHJÁLMUR SIGURSÆLI ÞETTA GERÐIST > 28. SEPTEMBER 1066 MERKISATBURÐIR 1542 Portúgalski landkönnuður- inn Juan Rodríguez Cabrillo kemur til Kaliforn- íu fyrstur Evrópumanna. 1914 Þorsteinn Erlingsson skáld deyr. 1928 Bandaríkin viðurkenna rík- isstjórn Shjang Kaí-shek í Kína. 1930 Hús elliheimilisins Grund- ar við Hringbraut er vígt. 1958 Frakkar samþykkja nýja stjórnarskrá. 1968 Lag Bítlanna Hey Jude fer á topp breska vinsælda- listans og trónir þar í níu vikur. 1988 Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar, sú önnur undir hans forsæti, tekur við völdum. 1989 Ferdinand Marcos, fyrrver- andi forseti Filippseyja, deyr í útlegð. Vilhjálmur gerir innrás í England Hjartans ættingjar, vinir, samstarfsfólk og nemendur nær og fjær. Innilegar þakkir fyrir nærveru ykkar, hlýju og samúð vegna veikinda og andláts elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa Ólafs Guðmundssonar. Kæra starfsfólk Krabbameinsdeildar LSH og Karitas. Þjóðin er gæfusöm að eiga mannauð sem ykkur innan handar. Megi minningin um Ólaf lifa í hjörtum okkar allra. Hlín Helga Pálsdóttir Andri Birkir Ólafsson María Guðbjartsdóttir Olga Björk Ólafsdóttir Roland Hartwell Helga Lára Ólafsdóttir Ásgeir Friðriksson Magnús Björn Ólafsson Jóhann Ólafur og Andri Hrafn Andrasynir. Elskuleg eiginkona, dóttir, móðir, tengdamóðir, systir, mágkona, amma og langamma, Kristín Hallsdóttir Kedjevägen 5, Örebro, Svíþjóð, sem lést miðvikudaginn 14. september, verður jarðsungin þann 30. september í Mäster Olofs kapell, Örebro, Svíþjóð. Kjell Söderberg Guðný Ólafía Stefánsdóttir Hallur Viggósson Linda Sigurðardóttir Kristrún Birna Viggósdóttir Jón Rafn Einarsson Dagný Viggósdóttir Óskar Rúnar Samúelsson Guðni Þór Viggósson Ylva Viggósson Vernharður Sveinn Vígsteinsson Maria Jannesson Þórunn Kristín Vígsteinsdóttir Martin Widö Björn Hallsson Jarþrúður Rafnsdóttir Edda Hallsdóttir Finnbogi Gústafsson barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Sigurbjörg Guðleif Guðjónsdóttir (Leifa) Hrafnistu, Reykjavík, lést mánudaginn 26. september. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju, föstudaginn 30. september kl. 15.00. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag krabbameinssjúkra barna. Ingibjörg S. Finnbogadóttir Ingólfur Kristjánsson Guðjón H. Finnbogason Jóhanna J. Hafsteinsdóttir Finnbogi R. Gunnarsson Halla H. Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Kristín Jónsdóttir Tjarnarbóli 10, Seltjarnarnesi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 20. september. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. september kl. 15.00. Reynir Jóhannesson Elísabet Reinhardsdóttir Sigvaldi H. Ægisson Reinhard Reinhardsson Karólína I. Guðlaugsdóttir Stefanía Reinhardsdóttir Khalifeh og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, Gísli Viðar Harðarson slökkviliðs- og sjúkraflutningsmaður, Óðinsvöllum 4, Keflavík, lést fimmtudaginn 22. september. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 30. september kl. 14.00. Vilborg Reynisdóttir Páll Ágúst Gíslason Reynir Örn Gíslason Kristín Ósk Gísladóttir Margrét Jakopsdóttir Páll Jónsson Ragnheiður Ragnarsdóttir Hörður Jóhannsson Kristín Hermannsdóttir Reynir Eiríksson og systkini hins látna. Ástkær bróðir okkar, Sigmundur Sigurgeirsson frá Ásgerðarstaðaseli í Hörgárdal, lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, 18. september. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Hlíð fyrir góða ummönnun og hlýhug. Bragi Sigurgeirsson Geirfríður Sigurgeirsdóttir Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson www.steinsmidjan.is JAR‹ARFARIR 11.00 Jón J. Waagfjörð, frá Garð- húsum, Vestmannaeyjum, Holtsbúð 16, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ. 11.00 Sigríður Jóhannesdóttir, Suðurmýri 8, Seltjarnar- nesi, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Jarðsett verður að Helga- felli í Helgafellssveit kl. 17.00. 14.00 Ingibjörg Ágústsdóttir, frá Borgarholti, síðast til heim- ilis á Suðurgötu 35, Akra- nesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju. 15.30 Minningarathöfn um Maj- Lis Stenelund, hjúkrunar- fræðing, verður haldin í Geisla, kapellu hjúkrunar- heimilisins Sólvangs. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A Skemmtilegast af öllu að stjórna

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.