Fréttablaðið - 28.09.2005, Page 58
Aðeins hefur verið sótt um leik-heimild fyrir sex evrópska leik-
menn í Intersportdeildinni í vetur,
samkvæmt upplýsingum frá skrif-
stofu Körfuboltasambands Íslands.
Reglum um útlenda leikmenn var
breytt á síðasta ársþingi KKÍ á þann
veg að í vetur er aðeins leyfilegt að
vera með einn bandarískan leik-
mann í hverju liði en áður gátu lið
verið með 2 til 3 undir launaþaki.
Var því búist við holskeflu evrópskra
leikmanna í Intersport-deildina í vet-
ur en annað hefur komið á daginn.
Einn mánuð tekur að fá keppnisleyfi
fyrir evrópska leikmenn eftir 1. sept-
ember. Keflavík, Hamar/Selfoss,
Skallagrímur, Snæfell, Grindavík og
Fjölnir hafa fengið sér evrópska leik-
menn og hugsanlegt að fleiri bætist
við þegar líða fer á veturinn.
Kristján Guðmundsson skrifaði ígær undir nýjan þriggja ára
samning við Keflavík en tók nokkuð
óvænt við Keflvíkur-
liðinu fyrir sumarið
eftir að Guðjón
Þórðarson hætti
störfum hjá félag-
inu. Keflavík endaði
í fjórða sæti í
Landsbankadeild-
inni og komst þar
að auki í aðra umferð í Evrópu-
keppni félagsliða. Kristinn Guð-
brandsson verður aðstoðarmaður
Kristjáns, líkt og hann hefur verið í
sumar.
Tveir leikmenn skrifuðu undir nýj-an samning við
félagið en það voru
Issa Abdul Kadír og
Davíð Örn Hall-
grímsson. Branislav
Milicevic skrifaði
einnig undir nýjan
samning við félagið
á dögunum og
verður í leikmannahópi félagins í
vetur.
Tveir leikir fóru fram hjá yngrilandsliðum Íslands í knattspyrnu í
gær. U-19 ára landslið kvenna
burstaði Georgíu, 7–0, og U-17 ára
landslið drengja steinlá hins vegar
fyrir Tékkum, 4–1. Stúlkurnar voru
að keppa í undankeppni HM en
drengirnir í undankeppni EM.
ÚR SPORTINU
> Við bíðum spenntir eftir ...
... að sjá hvort Eiður Smári Guðjohnsen fái
tækifæri hjá Jose Mourinho í
kvöld. Hann hefur átt við
veikindi að stríða en fékk að
spreyta sig um helgina
þar sem hann stóð sig
þokkalega. Nú er að
sjá hvort hann haldi
uppteknum hætti og
fái loksins að sýna
almennilega hvað í
honum býr.
Heyrst hefur ...
... að bakhjarlar handknattleiksdeildar FH
séu orðnir mjög órólegir vegna mjög
lélegs gengis hjá bæði karla- og
kvennaliði félagsins. Liðin hafa tapað
öllum sínum leikjum til þessa og það
þrátt fyrir að hafa verulega öflugan
mannskap innan sinna raða – leikmenn
og þjálfara sem sagan segir að hafi
kostað skildinginn.
sport@frettabladid.is
22
> Við furðum okkur ...
.... á HK-ingum sem ætla greinilega að
beita öllum ráðum til að koma liði sínu á
topp DHL-deildar karla. Tæknimenn liðsins
létu sigurleikinn gegn
ÍBV telja þrefalt og hafa
því afgerandi forystu í
deildinni samkvæmt
opinberri heimasíðu
deildarinnar.
Kvennali› FH hefur ekki sta›i› undir væntingum í upphafi Íslandsmótsins og í gær mátti li›i› sætta sig
vi› tap á heimavelli gegn Stjörnunni.
Risinn sefur enn værum svefni
HANDBOLTI Það er ljóst að risinn í
Hafnarfirði er ennþá í dvala í
handboltanum en FH tapaði í gær
fyrir Stjörnunni í Kaplakrika. Þar
með hefur liðið tapað fyrstu
tveimur leikjum sínum á mótinu,
en ljóst er að þeirra bíður mikið
verk ef liðið ætlar sér að vera í
toppbaráttunni í vetur. Jafnræði
var með liðunum í byrjun en um
miðjan fyrri hálfleik náðu gest-
irnir tökum á leiknum sem þeir
slepptu aldrei.
Kristján Halldórsson var ekki
upplitsdjarfur í leikslok: „Við vor-
um að elta allan tímann eftir
ágætis byrjun en gerðum mistök á
mikilvægum augnablikum í leikn-
um þegar við áttum þess kost að
komast inn í leikinn,“ sagði Krist-
ján. Það sem varð FH að falli í
þessum leik var dapur sóknarleik-
ur og Kristján tók undir það:
„Sóknarleikurinn var alls ekki
nægilega góður. Við fengum nýj-
an leikmann í gærmorgun og liðið
á eftir að slípast betur til. En það
er ljóst að okkar bíður mikið verk
og við getum gert mikið betur.“
Varnarleikur Stjörnunnar var
góður í gær og flotið á sóknar-
leiknum var gott og þá sérstak-
lega í fyrri hálfleik. Ljóst er að
liðið hefur alla burði til þess að
vera í baráttunni um Íslands-
meistaratitilinn í vetur. Jóna Mar-
grét Ragnarsdóttir skoraði 10
mörk í leiknum og átti góðan dag:
„Þetta var sigur liðsheildarinnar,
vörnin var góð og í kjölfarið feng-
um við hraðaupphlaup og það
skóp sigurinn í dag.“ - gjj
Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sig-
urðsson, leikmaður Gummersbach,
hefur farið á kostum í þýsku úr-
valsdeildinni í handbolta í vetur.
Hann er á meðal markahæstu
manna og Gummersbach með
fullt hús stiga eftir 5 umferðir.
Alfreð Gíslason, þjálfari Mag-
deburg, er ákaflega hrifinn af
frammistöðu Guðjóns Vals.
„Hann er besti vinstri horna-
maðurinn í deildinni og var
það líka í fyrra. Guðjón
Valur er öflugur alhliða
leikmaður og hefur spil-
að feikilega vel í haust,“
sagði Alfreð við Frétta-
blaðið.
Guðjón Valur segir rosalega gaman
að fá svona ummæli frá fagmanni
eins og Alfreð sem er á meðal
fremstu handboltaþjálfara í heimin-
um.
„Ég get ekki sagt að ég skari fram
úr öðrum hornamönnum í minni
stöðu. Mér og mínu liði hefur
gengið vel í haust en mér finnst
þetta rökrétt framhald af síðasta
vetri þegar ég lék með Essen,î segir
Guðjón Valur sem varð Evrópu-
meistari með liðinu í vor.
Guðjón Valur lét ekki deigan síga í
sumarfríinu og leitaði til Jóns
Arnars Magnússonar tugþrauta-
kappa til að koma sér í enn
betra form.
„Ég fékk Jón Arnar til að
pína mig í sumar. Hann samdi æfinga-
prógamm fyrir mig og ég mætti í rækt-
ina til hans þegar hann var að æfa. Það
var frábært að æfa með svona afburða
íþróttamanni eins og Jóni Arnari. Í sam-
anburði við hann var ég eins og byrj-
andi.“
Þjálfari Gummersbach, Króatinn Velimir
Kljaic, sagði í samtali við Fréttablaðið
að Guðjón Valur væri vissulega bestur í
sinni stöðu og þegar kemur að marka-
skorun komi hraðinn að góðum notum.
„Lars Christiansen og Stefan
Kretzschmar eru öðruvísi týpur.
Kretzschmar fer fljótlega að hætta og
Christiansen er góður þegar það er ekki
mikið undir. Guðjón Valur er mjög fjöl-
hæfur leikmaður, alltaf duglegur og hef-
ur góð áhrif á liðsandann.“
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON: SÁ BESTI Í SINNI STÖÐU Í ÞÝSKALANDI AÐ MATI ALFREÐS GÍSLASONAR
Æf›i me› Jóni Arnari tugflrautarkappa
FH-stúlkur fá liðsstyrk:
Ólympíumeist-
ari í Krikann
HANDBOLTI. „Ég geri fastlega ráð
fyrir því að þetta sé einn besti
leikmaður sem komið hefur hing-
að til lands sem atvinnumaður í
kvennaboltanum, án þess að ég
vilji vera að kasta rýrð á þá leik-
menn sem fyrir eru,“ sagði Örn
Magnússon, formaður handknatt-
leiksdeildar FH, þegar Frétta-
blaðið spurði hann út í nýja leik-
mann liðsins, dönsku skyttuna
Maju Grönbek, sem lék sinn
fyrsta leik fyrir liðið í gærkvöld.
„Hún hefur gríðarlega reynslu
og við sáum það strax á fyrstu æf-
ingunni hennar að hún er klassa-
leikmaður. Hún sagði skilið við lið
sitt á Spáni á dögunum og Krist-
ján Halldórsson þjálfaði hana á
sínum tíma í Danmörku, þannig
að hann þekkir hana vel,“ sagði
Örn. - bb
28. september 2005 MIÐVIKUDAGUR
JÓNA Í STUÐI Stjörnustúlkan Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoraði tíu mörk í Krikanum í
gær og FH-stúlkur réðu ekkert við hana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Chelsea og Liverpool
mættust alls fimm sinnum á síð-
ustu leiktíð, Chelsea sigraði þrjá
leiki, einum lyktaði með jafntefli
og Liverpool vann einn. Enginn
leikurinn endaði með meira en
eins marks sigri og því má búast
við því að það lið sem skorar á
undan í kvöld vinni leikinn.
Rafael Benitez, knattspyrnu-
stjóri Evrópumeistara Liverpool,
er sannfærður um að bilið á millli
Liverpool og Chelesa í deildinni
endurspegli ekki gæðamuninn á
liðunum í alvöru. „ Það er mikið
talað um öll þessi jafntefli sem við
höfum gert að undanförnu. Í fyrra
töpuðum við yfirleitt svona jöfn-
um leikjum. Chelsea hefur unnið
alla sína leiki í deildinni hingað til
en stigin segja ekki alla söguna
um gæðamuninn á liðunum. Þeir
hafa spilað fleiri leiki,“ sagði
Benitez.
Ég hef ekkert hugsað um leik-
ina í fyrra til að undirbúa mig fyr-
ir þennan leik. Þessi viðureign er
svo allt öðruvísi, nú erum við að
keppa í riðlakeppni og tap þarf
alls ekki að þýða að liðið sé úr
leik,“ sagði Benitez.
Leikurinn á Stamford Bridge
verður í beinni útsendingu á sjón-
varpsstöðinni Sýn klukkan 18.45.
Þá verður leikur Schalke og AC
Milan í beinni útsendingu á Sýn
plús og hefst á sama tíma.
- hjö
Chelsea mætir Liverpool í meistaradeildinni í kvöld:
„Munurinn ekki jafn mik-
ill og deildin segir til um“
Gömul knattspyrnuhetja leggur skóna á hilluna:
FÓTBOLTI Hlynur Birgisson, sem
leikið hefur knattspyrnu með
Þór á Akureyri undanfarin ár, er
hættur að leika knattspyrnu eftir
langan feril. Hlynur var um tíma
atvinnumaður hjá Örebro í Sví-
þjóð og spilaði tólf landsleiki fyr-
ir Íslands hönd, auk fjölda leikja
fyrir yngri landsliðin. „Mér
fannst þetta vera ágæt tímasetn-
ing núna. Ég er að stunda nám í
fjölmiðlafræði og ætla að ein-
beita mér að því. En eflaust
verður erfitt að slíta sig alveg
frá fótboltanum,“ sagði Hlynur.
- mh
Hlynur hættur í boltanum
JOSE MOURINHO Á blaðamannafundi fyrir leik Chelsea og Liverpool í kvöld. GETTY