Fréttablaðið - 02.10.2005, Blaðsíða 12
Sonja Noregsdrottning af-
henti í vikunni Eggerti Pét-
urssyni listmálara önnur
verðlaun Carnegie Art
Award sem eru ein þau
stærstu í heiminum. „Þetta
var heilmikil athöfn og
mjög hátíðleg,“ upplýsir
Eggert en afhendingin var í
listamiðstöð í útjaðri Ósló.
Sissel Kirkebo söng
ásamt kór og fjölmargar
ræður voru haldnar þegar
drottningin steig í salinn.
„Þetta var mjög skemmti-
legt og hún var ósköp al-
þýðleg,“ segir Eggert um
kynni sín af drottningunni.
„Síðan gekk hún um sýn-
inguna og skoðaði verkin
hjá hverjum og einum og
rabbaði við listamennina,“
segir Eggert sem sjálfur
átti stutt spjall við drottn-
inguna.
Síðustu fimmtán ár hef-
ur Eggert málað olíumál-
verk þar sem hann sækir
innblástur í íslenskar
plöntur en hann hefur haft
áhuga á þeim frá unga
aldri. „Sem krakki fór ég á
sumrin í sumarbústað með
foreldrum mínum og fór að
spyrja því þetta vakti at-
hygli mína,“ segir Eggert
sem kom ekki að tómum
kofanum hjá móður sinni
sem fræddi hann um hin
ýmsu plöntunöfn. „Svo
eignaðist ég Flóru Íslands
sem afi minn gaf mér þeg-
ar ég var sex ára, nýbúinn
að læra að lesa,“ upplýsir
Eggert.
Tvö verka Eggerts eru á
sýningunni sem fara mun
um öll Norðurlöndin og að
auki til London og Nice í
Frakklandi. Önnur myndin
er stór og
hvít mynd
af fjöru-
blómu. „Það
er minning
frá bernsku
þegar ég sá
fjöruna við
Stokkseyri
um fimm
ára aldur,“
segir Egg-
ert en hin
myndin á
sýningunni
er eins og
brekka með
brönugrös-
um um
Jónsmessu-
leytið.
E g g e r t
fékk peningaupphæð að
andvirði 600 þúsund
sænskar krónur í verð-
laun. Hann segir líklegt
að hún verði notuð til að
greiða niður skuldir og
koma sér betur fyrir. „Við
keyptum okkur hús fyrir
ári og ég á loksins al-
mennilega vinnustofu,“
segir Eggert sem finnur
fyrir aukinni athygli á
verkum sínum eftir að til-
kynnt var um að hann
fengi þessi verðlaun.
Eggert getur sameinað
annað áhugamál vinnu
sinni því hann hlustar á
tónlist allan daginn með-
an hann vinnur. „Ég
hlusta mikið á japanska
tilraunatónlist, klassíska
tónlist, rokktónlist og
hvað sem er,“ segir Egg-
ert sem setur yfirleitt
langt verk á fóninn ef
hann er að vinna vanda-
samt verk svo hann þurfi
ekki að skipta um disk í
miðjum klíðum. ■
12 3. september 2005 MÁNUDAGUR
HARRIET NELSON (1909-1994)
lést þennan dag.
Drottningin var alþýðleg
EGGERT PÉTURSSON LISTMÁLARI TÓK VIÐ ÖÐRUM VERÐLAUNUM CARNEGIE ART AWARD
„Fyrirgefðu öllum sem hafa móðgað þig,
ekki þeirra vegna, heldur þín vegna.“
- Harriet Nelson varð frægust fyrir leik sinn sem mamman í
bandarísku sjónvarpsþáttunum um Ozzie og Harriet.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Sigurður Sigurðarson
dýralæknir er 66 ára
Pálmi Gestsson leikari
er 48 ára
Árni M. Mathiesen fjár-
málaráðherra er 47 ára
Björk Vilhelmsdóttir
borgarfulltrúi er 42 ára
Birgir Baldursson tón-
listarmaður er 42 ára
Björn Hermannsson er
fimmtugur í dag.
Á þessum degi árið 1967 var fyrsti blökkumaðurinn svarinn í embætti
hæstaréttardómara í Bandaríkjunum. Þetta var Thurgood Marshall sem
barðist hart fyrir réttindum blökkumanna alla sína tíð. Marshall fæddist í
Baltimore árið 1908 og var barnabarn þræls. Hann nam lög við í há-
skóla í Washington sem eingöngu var ætlaður blökkumönnum þar sem
honum var neitað um inngöngu í lagadeild háskólans í Maryland vegna
húðlitar síns. Hann útskrifaðist efstur í sínum bekk árið 1933.
Hann tók að sér mál er vörðuðu jafnrétti blökkumanna sér í lagi þau
sem snéru að menntun og vann þau nær öll.
Árið 1961 tilnefndi John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, Marshall sem
dómara í áfrýjunardómstólnum. Margir voru þessu andsnúnir og einkum
þingmenn frá Suðurríkjunum. Tilnefningin var því ekki staðfest fyrr en ári
síðar. Árið 1967 tilnefndi Lyndon Johnson forseti Marshall í embætti
hæstaréttardómara. Johnson sagði við þetta tilefni: „Þetta er hið eina
rétta að gera, þetta er rétti tíminn, rétti maðurinn og rétti staðurinn.“
Eftir töluvert málþóf var Marshall samþykktur í embættið og 2. október
sór hann embættiseið. Hann gegndi stöðu hæstaréttardómara í 24 ár,
en lét af störfum árið 1991 vegna hrakandi heilsu. Hann lést tveimur
árum síðar. THURGOOD MARSHALL
ÞETTA GERÐIST > 2. OKTÓBER 1967 MERKISATBURÐIR
1801 Biskupsstóll á Hólum er
lagður niður og landið allt
gert að einu biskups-
dæmi.
1836 Charles Darwin snýr aftur
til Englands eftir fimm ára
ferðalag með HMS
Beagle.
1847 Prestaskólinn tekur til
starfa.
1937 Fyrsta mynd Ronalds Reag-
an, Love is in the air, er
frumsýnd.
1940 Skömmtun á áfengi er tek-
in upp og stendur í fimm
ár.
1964 Tækniskóli Íslands er settur
í fyrsta sinn.
1995 O. J. Simson er sýknaður af
ákæru um að hafa banað
konu sinni.
Blökkuma›ur í Hæstarétti Bandaríkjanna
Tilkynningar um merkis-
atbur›i, stórafmæli, andlát
og jar›arfarir í smáleturs-
dálkinn hér a› ofan má
senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Friðrik Th. Ingþórsson
Blásölum 24, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 16. september sl.
Útförin hefur farið fram.
Lára Vilhelmsdóttir
Hallbera Friðriksdóttir Ágúst Þórhallsson
Ingþór Friðriksson Margrét Tryggvadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Earnest Hensley
Þverholti 1, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn
29. september.
Útförin verður auglýst síðar.
María Hensley
Helga Jónsdóttir
Erla Björk Jónsdóttir
Jón Þorri Jónsson
Doróthea Jónsdóttir
Hjördís Jónsdóttir.
!
! "##$
%
&
! www.steinsmidjan.is
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Kristinssonar
málarameistara, Hringbraut 9, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við Hjúkrunarþjónustunni
Karitas. Guð blessi ykkur öll.
Anna Dagmar Daníelsdóttir
María K. Sigurðardóttir Kristinn G. Garðarsson
Dagný B. Sigurðardóttir Guðmundur Þórarinsson
Kolbrún J. Sigurðardóttir Elías Rúnar Elíasson
Albert J. Sigurðsson
Daníel Sigurðsson Ethel Sigurvinsdóttir
Hafdís Sigurðardóttir Pálmi Helgason
Hjördís A. Sigurðardóttir Vilhelm P. Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum innilega öllum þeim sem
heiðruðu minningu sonar míns, bróður
okkar og mágs,
Steingríms Kristjónssonar
Laugavegi 143, Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru færðar þeim trúfélögum sem hann
stundaði samkomur hjá, svo og vinum hans í Sjálfs-
björg, Rauða Krossi Íslands, Geðhjálp og Félagsstarfi
Vitatorgi, einnig öllum sem veittu honum athvarf og
umhyggju á lífsgöngu hans.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Jóhannsdóttir
Guðrún Kristjónsdóttir Gylfi Knudsen
Laufey Kristjónsdóttir Sverrir Þórólfsson
Linda Rós Kristjónsdóttir Sigurður Gunnarsson
Jóhann Kristjónsson Kristín Egilsdóttir
Arnrún Kristinsdóttir Einar Þorvarðarson
Finnbogi E. Kristinsson Sólveig Birgisdóttir
Hjörtur Kristinsson Dagný Emma Magnúsdóttir
Anna Kristinsdóttir Gunnar Örn Harðarson
Árni Kristinsson Ingibjörg Jónsdóttir
og fjölskyldur.
ANDLÁT
Ástþór Guðmundsson lést á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi
fimmtudaginn 22. september.
Halldóra Elíasdóttir Bólstaðar-
hlíð 34, Reykjavík, andaðist föstu-
daginn 30. september.
Kristjana Steingrímsdóttir Dal-
braut 14, Reykjavík, lést á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi 29.
september.
Jón Earnest Hensley Þverholti
1, Akureyri lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 29. sept-
ember.
Karvel Ögmundsson Bjargi, Ytri-
Njarðvík, andaðist föstudaginn
30. september.
FJÖRUBLÓM Önnur mynda Eggerts á sýningunni er af
fjörublómum. „Þetta er minning frá bernsku þegar ég sá
fjöruna við Stokkseyri um fimm ára aldur,“ segir Eggert.
LISTAMAÐUR Eggert hlustar á japanska tilraunatónlist meðan hann vinnur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI