Fréttablaðið - 19.10.2005, Page 42
6 ■■■ { Liðsheild } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
St
af
ræ
na
p
re
nt
sm
ið
jan
e
hf
Sími 565-1213 - www.fjorukrain.is
Gisting og jólahlaðborð
Gisting og morgunverður með jólahlaðborði í veitingastaðnum
Fjörugarðinum. Gisting í tveggja manna herbergi kr. 7.000 á mann.
Gildir frá 18. nóvember 2005.
Glæsilegt
jólahlaðborð
Hlaðborðið svignar undan góðgætinu og rammíslensk jólastemmningin svíkur engan.
Verð með Grýluglöggi og dansleik kr. 4.400. Á undan borðhaldi býðst gestum að heimsækja Grýlu
í Hellinn. Hún býður gestum upp á Grýlumjöð, auk þess að vera veislustjóri. Söngvísir víkingar og
valkyrjur syngja íslensku jólalögin með á borðhaldi stendur. Dansleikir um helgar.
Fyrirtækið Hópbílar veitir afbragðs
þjónustu fyrir ráðstefnu- hvata-
ferðahópa. Allir bílar fyrirtækisins
eru vel búnir og henta sérstaklega
vel fyrir skipulagðar hópaferðir.
Fyrirtækið er með um 30 bíla á sín-
um snærum og tekur hópa af öllum
stærðum og gerðum. Þorvaldur
Daníelsson, almannatengslafulltrúi
hjá Hópbílum segir fyrirtækið sífellt
vera að leita nýrra leiða til að auka
þjónustu við viðskiptavini sína.
„Við erum til að mynda með sam-
tengjanleg hljóðkerfi í bílunum,
þannig að ef það er einn leiðsögu-
maður með í för þá getur hann tal-
að við alla gestina úr einum bíl,“
segir Þorvaldur, „við erum einnig
með bíla þar sem hægt er að tengja
fartölvur við skjái til að styrkja fyr-
irlestrana, sem hentar vel þegar far-
ið er í vinnuferðir út úr bænum. Þá
er hægt að spara tíma, koma fyrir-
lestrinum af stað og byrja vinn-
una.“
Ráðstefnuferðir snúast ekki
alltaf eingöngu um hið alvarlega
heldur er markmið þeirra oftar en
ekki það að hrista fólk saman og
skapa skemmtilegan anda. Hópbílar
hafa karókítæki í nokkrum bíla
sinna sem veita skemmtun og gleði
hjá rútugestum. „Karókítækin hafa
mikið verið notuð í hvataferðum og
eru líka kjörin fyrir Íslendingana
sem vilja skemmta sér. Þá er ferða-
lagið heim ekki þetta þurra ferðalag
þar sem starað er út í myrkrið,
heldur geta menn tekið lagið. Þá er
það yfirleitt gert þannig að sá sem
er í forsvari fyrir hópnum, greið-
andi, skipuleggjandi eða forstjóri er
látinn byrja,“ segir Þorvaldur.
Hópbílar leggja einnig mikið
upp úr umferðaröryggi og var
fyrst fyrirtækja til að hafa öryggis-
belti í bílum sínum. „Við höfum
einnig látið útbúa fyrir okkur ör-
yggismyndband sem við spilum
fyrir rútugesti í upphafi ferðar og
bílstjórarnir eru svo duglegir við að
minna fólk á að gæta öryggis.“
Hópbílar leigja einnig út ýmsan
aukabúnað gegn vægu gjaldi,
„kannski eru gestirnir að fara prúð-
búnir á Þingvöll í íslensku veðri og
þá lánum við regnhlífar og annan
búnað og við hjá Hópbílum
leggjum mikið upp úr því að koma
til móts við viðskiptavini okkar.“
Bílstjórar Hópbíla tilbúnir í langferð með hópsöng og fróðleik
Ráðstefna á þjóðvegi 1
Hópbílar bjóða upp á margvíslega þjónustu fyrir ráðstefnu- eða hvatahópa. Fyrirtækið stendur
framarlega hvað varðar tæknibúnað í rútum sínum, öryggi og skemmtanagildi.