Fréttablaðið - 06.11.2005, Side 1

Fréttablaðið - 06.11.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI VEÐRIÐ Í DAG Sími: 550 5000 SUNNUDAGUR 6. nóvember 2005 — 300. tölublað — 5. árgangur SIGURÐUR MARGEIR MAGNÚSSON Fagnar mikilli vinnu atvinna Í MIÐJU BLAÐSINS GERÐUR KRISTNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR Annað upplag af Mynd- inni af pabba uppselt Bókin hefur snortið þjóðina FÓLK 46 3. til 12. nóvember í FBL 1x9 forsíðukubbur Spennandi dagskrá 3.-7. nóvember Frábær krakkatilbo› Alltaf sautján í huganum Ólafur Hannibalsson blaðamaður er sjötugur í dag. TÍMAMÓT 12 w w w . r o k l a n d . b l o g s p o t . c o m Kynlíf er Hitler. Það byrjar með innrás og endar í dimmum bönker. ÞAÐ VERÐUR FREMUR hæg austlæg átt í fyrstu en bætir í vind eftir því sem líður á daginn. Strekkingur víða með kvöldinu og slydda nokkuð víða. FRAKKLAND, AP Kveikt var í nærri 900 bílum, barnaheimili brennt til grunna og sjúkraliðar grýttir í óeirðum í innflytjenda-úthverfum Parísar og fleiri franskra stórborga í fyrrinótt, en þetta var níunda slíka óaldarnóttin í röð. Lögregla handtók yfir 250 manns, fleiri en næturnar átta þar á undan. Nicolas Sarkozy innanríkisráð- herra sagði að íkveikjur myndu kosta brennuvarga „þunga dóma“. Hann sagði ríkisstjórnina einhuga um að hvika hvergi fyrir ofbeldi óeirðaseggja. 897 ónýtir bílar og strætisvagn- ar voru taldir í dögun í gærmorg- un, en það er langmesta tjónið sem orðið hefur frá því óöldin hófst hinn 27. október í kjölfar þess að tveir unglingar úr innflytjendafjölskyld- um létu lífið í Parísarútverfinu Clichy-sous-Bois er þeir reyndu að fela sig í spennistöð. Ofbeldið þótti komast á nýtt stig í fyrrinótt er sjúkraliðar voru grýttir sem hugðust koma sjúkum manni til aðstoðar í blokk í Meaux austur af París. Sjúkrabíllinn var brenndur. Mikið brunatjón varð á barnaheimili í Acheres, vestur af höfuðborginni. Til óeirða kom líka í Lille í Norður-Frakklandi, Toul- ouse í suðvesturhluta landsins og Rúðuborg í Normandí. Í öllum til- vikum voru ungir múslimar taldir hafa verið að verki. Í frönskum fjölmiðlum voru í gær kenningar uppi um að ómælt skipulag lægi að baki vargöldinni, hér væri ekki lengur um neina stundarreiði jaðarhópa að ræða. Lögreglutalsmaðurinn Hamon sagði þó litlar haldbærar vísbend- ingar um slíkt. - aa Vargöldin í innflytjendahverfum franskra borga: Átökin stigmagnast enn Stóri bróðir horfðu á mig! Bækur þar sem mörk skáldskapar og veru- leika hafa verið nánast máð út eru áberandi um þessar mundir. FÓLK 18 Bandamenn okkar í Íran Bandaríkin og Evrópusambandið eiga að gera hvað þau geta til að styrkja millistéttina í Íran segir Afshin Molvai. Í DAG 8 ENGLAND, AP Þúsundir dyggra stuðn- ingsmanna refaveiða í Englandi og Wales mættu í gær í fullum skrúða til að taka þátt í fyrstu refalausu refaveiðunum, en bann við þeim var sett í fyrra. Þess í stað eru hundarn- ir látnir elta lyktarslóð í þjálfunar- skyni. Talsmenn Sveitabandalagsins (The Countryside Alliance), hags- munasamtaka stuðningsmanna hefðbundinna refaveiða sem vonast til að fá banninu hnekkt, sögðu um 200 veiðiútreiðar hafa farið fram í gær. ■ Veiðimenn þrjóskast við: Refalausar refaveiðar ÚTIVIST Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar var opnað klukkan tíu í gærmorgun en svo snemma vetrar hefur svæðið ekki verið opnað í hartnær aldrafjórðung eða frá árinu 1981. Á annað þúsund manns mættu í fjallið þennan fyrsta opnunardag vetrarins og var skíða- færi með besta móti fram eftir degi. Nægur snjór er í fjallinu en jafn- vel þó hann taki upp á næstu vikum þurfa skíðaunnendur norðan heiða ekki að örvænta því eftir hálfan mánuð verður búnaður til snjó- framleiðslu í Hlíðarfjalli tilbúinn til notkunar. - kk Skíðavertíðin á Akureyri: Fjölmenni í Hlíðarfjalli SNJÓBRETTADAMA Færist þreytan yfir má nota brettið sem þotu. FRÉTTABLAÐIÐ/KK Þórður Guðjónsson ætlar sér stóra hluti Þórður Guðjónsson, sem ný- lega gekk frá samningi við uppeldisfélag sitt ÍA, segist eiga nóg inni. Johan Bos- kamp, knattspyrnu- stjóri Stoke City, segir hann ekki sama leikmann og á árum áður. ÍÞRÓTTIR 38 PRÓFKJÖR „Næsta skrefið er sigur í vor. Þarna er saman komið sigurlið sem mun verða til þess í samvinnu við fólkið í borginni að við vinnum kosningarnar í vor,“ segir Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson, sem leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík til borgarstjórnarkosninga. Metþáttaka var í prófkjörinu, sem hófst á föstudag og lauk klukk- an 18 í gærkvöldi. Rúmlega tólf þúsund manns greiddu atkvæði og að sögn Ágústs A. Ragnarssonar, starfsmanns í Valhöll, er talið að um átta þúsund manns hafi kosið í gær. „Þetta er mikill ánægjudagur fyrir sjálfstæðismenn í Reykjavík, þessi síðari dagur prófkjörsins. Það er greinilegt að sjálfstæðismenn meta mín störf,“ segir Vilhjálmur og kveðst þakklátur öllum þeim stuðningsmönnum og kjósendum sem hafi stutt hann til sigurs. „Ég ákvað að fara fram gegn þessum reynda stjórnmálaskör- ungi til þess að koma hugmyndum yngri kynslóðarinnar á framfæri,“ segir Gísli Marteinn Baldursson. Gísli bauð fram gegn Vilhjálmi en hreppti að lokum þriðja sæti list- ans. „Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er ákaflega rótgróinn og virðist hafa mjög sterk tengsl innan flokksins,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálaprófessor við Háskóla Íslands. Gunnar telur Hönnu Birnu Kristjánsdóttur vera sigurvegara prófkjörsins. „Hönnu Birnu hefur tekist að koma sér í þetta sæti á eigin forsendum en ekki út af ein- hverjum kvóta. Þetta er jafnframt mjög sterkt fyrir flokkinn,“ segir Gunnar Helgi. Hann kveður góða kjörsókn og fjölgun félagsmanna ekki koma sér á óvart. „Sjálfstæð- ismenn trúa því að þeir séu að kjósa næsta borgarstjóra,“ segir Gunnar Helgi og bætir jafnframt við að erf- itt sé fyrir flokk sem hefur verið lengi í ríkisstjórn að standa sig vel í sveitastjórnarkosningum. - saj/ sjá síðu 2. Vilhjálmur leiðir lista Sjálfstæðisflokksins Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson varð efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík. Gísli Marteinn Baldursson hafnaði í þriðja sæti og kveðst sáttur. Gunnar Helgi Kristinsson segir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur vera sigurvegarann. TILBÚINN TIL VERKA Vilhjálmur sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann mun leiða lista flokksins til næstu borgarstjórnar- kosninga. Hann telur listann vera sigurstranglegan og telur að flokkurinn muni hljóta umboð kjósenda til þess að stjórna borginni í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.