Fréttablaðið - 06.11.2005, Side 20

Fréttablaðið - 06.11.2005, Side 20
 6. nóvember 2005 SUNNUDAGUR20 Guðný sat í íbúð sinni í Chennai í suðurhluta Ind-lands og skoðaði kennslu- efni sem fyrrum samnemendur hennar úr Kennaraháskólanum höfðu sent henni um netið þegar haft var samband við hana. Hún hafði þá lokið vinnudegi sínum í þriggja ára gömlum einkaskóla sem rekinn er fyrir börn með þroskahömlun. „Nánast helmingurinn af börn- unum sem ég annast er mállaus og hér er ekkert gert fyrir þau. Það er hrikalegt. Fyrsta áfallið sem ég fékk var þegar ég komst að því að börnunum er ekki kennt táknmál eða að tjá sig með mynd- um. Það kenndi ég heima og því ákvað ég að mitt fyrsta verk hér yrði að koma á samskiptum,“ segir Guðný, sem kom til Chenn- ai, höfuðborgar Tamil Nadu-hér- aðsins, í byrjun september. Hún ætlar að vera þar í sex mánuði og kemur heim í mars. „Sem þroska- þjálfi á Íslandi er ég alltaf að slá í borðið því mér finnst ekki nógu mikið gert fyrir fatlaða en Ísland er draumur miðað við það sem hér er.“ Enginn stuðningur við fatlaða Guðný segir ríkisstuðning við fjöl- skyldur fatlaðra á Indlandi engan. Fáeinir fari í skóla til fimmtán eða sextán ára aldurs. „Þegar mennt- uninni lýkur tekur ekkert við. Hér er ekkert sem heitir sambýli eða verndaður vinnustaður. Það er ekki neitt. Heima á Íslandi röflum við yfir biðlistum á sambýli. Við höfum þó í það minnsta sambýli og við sjáum fatlaða í samfélaginu okkar. Þeir taka þátt. En hér á Ind- landi sjáum við þá ekki, rétt eins og var á sínum tíma heima.“ Guðný hefur unnið með fötluð- um í fimm ár. „Þegar ég kom hing- að sá ég að allar þessar aðferðir sem ég kann og veit að virka eru ekki notaðar. Það er ólýsanleg til- finning að fá tækifæri til að leið- beina kennurunum og sjá þá nota þessar aðferðir með börnunum. Hjartað stækkar um helming.“ Einn af fjörutíu sjálfboðaliðum Guðný er á Indlandi á vegum stúd- entasamtakanna AIESEC. Hún segir að tilviljun hafi ráðið því að hún fór til Indlands. „Ég kláraði námið mitt í þroskaþjálfun í júní og vissi raunverulega ekki hvað mig langaði að gera. Mig hafði dreymt um að sinna hjálparstörfum og var búin að kynna mér málin, hafði skoðað Rauða krossinn en sá að það var heldur dýrt. Svo fékk ég tölvupóst frá stúdentasamtök- unum og fór á kynningarfund og þá fór boltinn að rúlla.“ Þetta var í apríl. Guðný fyllti út umsókn sem var send um allan heim og margir biðluðu til hennar. Tilboðið frá skólanum í Chennai var sem klæðskerasaumað fyrir hana. „Í þessum skóla eru ein- hverfir, mállausir og aðrir með fatlanir sem ég hef unnið með. Ég krosslagði fingur og sótti um.“ Fimm mánuðir liðu frá því að Guðný tók ákvörðun um að fara til borgarinnar Chennai og þar til stóra stundin rann upp. „Ég þurfti af fara í fjölmargar sprautur og fá landvistarleyfi og atvinnuleyfi. Undirbúningurinn var mjög mik- ill.“ Guðný segir að fjörutíu nem- endur séu á vegum samtakanna í Chennai. Þeir komi alls staðar að úr heiminum. „Við hittumst um helgar og margir búa saman. Þannig var það í fyrstu hjá mér en ég var svo heppin að indversk stelpa sem kennir með mér í skól- anum býr við hliðina á skólanum og hana vantaði herbergisfélaga. Núna bý ég með henni. Hún fer með mig í styttri ferðir og heim til foreldra sinna og frændfólks. Þá sér maður svo margt sem aðrir missa af.“ Kennir börnunum að tjá sig Skólinn sem Guðný vinnur hjá er rekinn af indverskri konu sem lærði í Bandaríkjunum. Hann var stofnaður fyrir þremur árum. Þá voru nemendurnir fimm og kenn- ararnir tveir. Nemendunum hefur nú fjölgað í um eitt hundrað. Guðný segir skólann nokkuð vel búinn og steinsteyptan. „Skólinn lekur þó núna á rigningartímabil- inu og maurar skríða um gólfin.“ Hún segir kennarana á ágætis- launum. Sjálf fái hún um fimm þúsund krónur í mánaðarlaun, sem sé heldur hærra en meðleigjand- inn fái. Skólinn sé ríkisstyrktur en börnin greiði einhver skólagjöld. „En aðbúnaðurinn er ekki mik- ill. Til eru stílabækur og pennar en annað ekki. En þar sem allt er svo ódýrt fyrir mig hér úti hef ég verið að kaupa efni og annað sem ég er vön að vinna með heima.“ Erfitt að breyta heiminum Skólinn er á tveimur hæðum og Guðný vinnur á þeirri neðri. Þar eru um tuttugu barnanna einhverf og nánast öll þeirra mállaus. „Ég kenni sumum börnunum tákn með tali eins og kennt er á flestum leik- skólunum heima. Svo gef ég þeim spjald með myndum og þá geta þau til dæmis bent á mynd af bað- herbergi ef þau vilja fara á klós- ettið,“ segir Guðný. Hennar helsta hlutverk er að greina hvaða tjáskipti henta hverju barni, hvort sem það eru stórar litríkar myndir eða svart- hvítar, táknmál eða skrifað mál. Guðný segir að það hafi komið henni í opna skjöldu að foreldr- arnir voru ekki allir sáttir við að börnum þeirra væri kennt táknmál. „Ég hélt að þetta yrði ekkert mál en af þeim börnum sem þyrftu að læra táknmál hafa aðeins foreldrar eins þeirra leyft mér að kenna barninu þeirra.“ Guðný segir foreldrana hræð- ast að læri börnin táknmál muni þau aldrei tala. „Sum barnanna geta myndað hljóð en ég veit sem þroskaþjálfi að þau eiga aldrei eftir að tala.“ Guðný segir foreldrana sýna meira umburðarlyndi gagnvart myndunum sem hjálpi börnunum að tjá sig. „Þegar ég kom hingað hugsaði ég: Ekkert mál, ég kenni þeim táknmál, ég kenni þeim myndmál og ég á eftir að breyta heiminum, en það er aðeins erfið- ara en ég hélt,“ segir Guðný. Klæðist á indverskan máta Guðný segir að það hafi verið áfall að lenda á flugvellinum í Chennai og keyra að íbúðinni þar sem hún bjó fyrst. „Sjokk, sjokk, sjokk. Ég lenti fimm um morguninn og hélt að fólk væri enn sofandi en þá þegar voru allar götur fullar af fólki, fólk með ávexti á höfðinu og beljur labbandi á götunni.“ Í skólanum var Guðnýju gert að ganga í indverskum klæðnaði. Hún komst fljótt að því að það var betra og gengur því í fötunum dags dag- lega því hún segir að athyglin frá heimamönnum minnki verulega við það. „Ég er með punktinn á enninu, armböndin og annað sem tilheyrir indverskum kvenfatn- aði, því þá fæ ég meiri virðingu og viðhorf fólks breytist,“ segir Guðný og bætir við að klæðist fólk á vestrænan máta telji heimamenn það nýkomið til landsins. Betlar- ar sæki þá að fólkinu og verðið á mörkuðum hækki. „En stundum þegar ég hitti hina sjálfboðaliðana skelli ég mér í gallabuxur og striga- skó. Passa bara að það sé ekki bert á milli.“ Býr sjálf til námsefnið Guðný hefur sjálf búið til allar myndirnar sem hún notar við kennsluna. Hún segir það tíma- frekt þar sem engin tæki séu til við gerð þeirra. Hún klippi þær út úr tímaritum eða teikni þær sjálf. Myndirnar frá samnemendunum heima koma sér því vel. En hún vill kaupa tæki sem hún getur nýtt við gerð þeirra og hefur einnig pantað forrit sem kallast Boardmaker og hægt er að setja upp í tölvunum tveimur sem eru í skólunum. „Ég er að vona að ég geti kennt kenn- urum skólans á forritið þannig að þessi mállausu börn hafi ekki aðeins samskipti í þá sex mánuði sem ég er hér.“ Guðný hefur nýtt þá peninga sem hún á til að bæta aðbúnaðinn í skólanum en hún segir margt vanta. Nokkrir Keldhverfingar hafi sýnt áhuga að hjálpa henni að bæta úr aðstöðunni og hvet- ur hún aðra sem hafa áhuga að senda sér tölvupóst á netfangið gudnyj@visir.is. Þeir sem vilja kynnast skólanum betur geta skoðað heimasíðuna v-excel.org UNNIÐ AÐ BETRA LÍFI Guðnýju dreymdi um að fara í hjálparstarf og lét drauminn rætast. Hér situr Guðný með nemanda sinn, Nittes, í fanginu. Hún vildi fara sem lengst að námi loknu og dreymdi um að sinna hjálp- arstarfi. Nú hefur draumurinn ræst og stúlkan sem ólst upp í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu er komin til Indlands. Guðný Jónsdóttir kennir þroskahömluðum börnum mynd- og táknmál. Þó ekki baráttulaust, því eins og hún segir í viðtali við Gunnhildi Gunnarsdóttur er aðeins erfiðara að breyta heiminum en hún hélt. Stúdentasamtökin AIESEC eru sjálfstæð, alþjóðleg, ópólit-ísk samtök sem rekin eru án hagnaðar af stúdentum,“ segir Tómas Kristjánsson, almanna- tengslastjóri samtakanna. „Sam- tökin senda stúdenta í starfsþjálfun milli landa og þjálfa leiðtogahæfi- leika þeirra. Á síðustu fimm árum höfum við sent íslenska nemendur til þróunarlanda.“ Tómas segir að fjórir Íslend- ingar hafi haldið utan til hjálpar- starfsa nú á þriðja ársfjórðungi. En árlega hafi nemendurnir verið frá fimm til átta. „Þeir sem vilja halda út í heim með samtökunum þurfa að ganga í þau, sem er ókeypis. Þeir þurfa að vera háskólanemendur með tveggja ára nám að baki,“ segir Tómas. Ekki mega líða meira en tvö ár frá námslokum sé farið með samtökunum. Tómas segir AIESEC styðja stúdenta sem kjósi að fara með þeim út. Meðal annar sjái sam- tökin um að útvega húsnæði og að aðstoða við að fá öll leyfi sem þurfi. Einnig fari stúdentarnir á námskeið áður en farið sé á vit ævintýranna. Þar sem samtökin séu ekki rekin í hagnaðarskyni sé öllum kostnaði haldið í lágmarki. Á fjórða tug í hjálpar- starf á vegum AIESEC Hjartað stækkaði um helming TÓMAS KRISTJÁNSSON Almannatengslastjóri AIESEC FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM UNGUR NEMUR Markmið skólans er að kenna lífsleikni. HÚSNÆÐIÐ VIÐUNANDI Guðný segir skólahúsnæðið í lagi þótt það leki. BEKKJARBRÆÐUR Nær tuttugu börn í skólanum eru einhverf og mállaus. SAMVINNA Á aðeins þremur árum hefur nemendunum fjölgað úr fimm í hundrað. VIÐ KENNSLUSTÖRF Guðný ræðir við sam- starfskonu sína í skólanum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.