Fréttablaðið - 06.11.2005, Side 34
10
ATVINNA
6. nóvember 2005 SUNNUDAGUR
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borgin-
ni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykja-
vik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar
upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn
sem þú þarft að ná í.
UMHVERFISSVIÐ
HEILBRIGÐISFULLTRÚI
-matvælaeftirlit
Umhverfissvið Reyjavíkurborgar auglýsir laust til um-
sóknar starf heilbrigðisfulltrúa hjá Matvælaeftirliti, Heil-
brigðiseftirliti og vöktun. Næsti yfirmaður er deildar-
stjóri Matvælaeftirlits.
Starfið felst m.a. í þjónustu við íbúa og fyrirtæki
borgarinnar og ábyrgð á:
• Reglubundnu eftirliti með matvælum og neysluvatni.
Skráningum og skýrslugerð, sinna kvörtunum og
annast fræðslu.
• Sinna öðrum verkefnum samkvæmt gildandi starfs
lýsingu fyrir heilbrigðisfulltrúa og samkvæmt fyrir
mælum deildarstjóra.
• Samstarf og samvinna við aðrar deildir Heilbrigðis-
eftirlits og vöktunar.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda, raunvís-
inda, eða sambærilega menntun, s.s. matvælafræði
eða dýralækningar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum er afar mikilvæg
sem og geta til að leiða og taka þátt í uppbyggilegu
hópastarfi.
• Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt og
krefjandi verkefni.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagningu í starfi
• Réttindi til að mega starfa sem heilbrigðisfulltrúi
æskileg.
Launakjör fara að kjarasamningum viðkomandi stéttar-
félaga og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veita Óskar Í. Sigurðsson, deildarstjóri
Matvælaeftirlits, og Árný Sigurðardóttir, forstöðumaður
Heilbrigðiseftirlits og vöktunar, hjá Umhverfissviði Reykja-
víkurborgar, Skúlagötu 19, frá kl. 9-16 í síma 411 8500.
Umsóknir skulu berast til Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar
eigi síðar en 21. nóvember nk. merktar
„Heilbrigðisfulltrúi“.
Reykjavík 3. nóvember 2005.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar fer með heilbrigðis- og mengunarvarnareftir-
lit, náttúruvernd og garðyrkju, sorphirðu frá heimilum, dýraeftirlit, Vinnuskóla
Reykjavíkur, Staðardagskrá 21 og stefnumótun og þróunarverkefni á sviði um-
hverfis og samgöngumála.
Framkvæmdastjóri félags- og
útbreiðslusviðs SÁÁ
SÁÁ óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra félags- og út-
breiðslusviðs.
Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann eru
landssamtök sem vinna að áfengis- og vímuefnavörnum
um allt land og veita öllum landsmönnum þjónustu.
Framkvæmdastjórinn vinnur í umboði framkvæmdastjórn-
ar og ber fjárhagslega ábyrgð á þeim rekstrarþáttum er til-
heyra sviðinu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af félagsstarfi.
Helstu verkefni:
• Vinna að fjáröflunum félagsins
• Umsjón með félagaskrá
• Skiplagning félagsstarfs
• Útbreiðslu-, kynningar- og útgáfumál
• Rekstur sambýla
Hæfniskröfur:
• Frumkvæði, metnaður og framúrskarandi samskipta
hæfni
• Hæfni til að vinna í krefjandi og breytilegu umhverfi
• Geta unnið sjálfstætt sem og í hópi
• Skilningur á rekstri og áætlanagerð
• Hugmyndaauðgi og áhugi á starfsemi SÁÁ
Skriflegum umsóknum ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast sendar á skrifstofu samtakanna Síðu-
múla 3-5 108 Reykjavík, merkt; Framkvæmdastjóri félags-
og útbreiðslusviðs, fyrir 1. desember 2005.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trún-
aðarmál.
Upplýsingar veitir formaður SÁÁ, Þórarinn Tyrfingsson í
síma 530 7600.
SMIÐIR
Byggingafélag Gylfa og Gunnars óskar eftir
trésmiðum í uppsteypu og frágang á skrif-
stofu og þjónustuhúsnæði að Bíldshöfða 9.
Góður aðbúnaður og virkt starfsmannafélag.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón í síma 562-2991
Hjá okkur er virkt starfsmannafélag
og góður aðbúnaður. Við leitum
eftir fólki á öllum aldri.
25-36 og 45-42 (01-20) Rað-augl 5.11.2005 14:17 Page 10