Fréttablaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 16
 6. nóvember 2005 SUNNUDAGUR16 Telma L. Tómasson er lands-mönnum kunn af sjónvarps-skjánum en hún var lengi áberandi andlit fréttastofu Stöðv- ar 2, þar sem hún starfaði síðast sem aðstoðarfréttastjóri. Þótt stjörnuljómi sjónvarpsskjásins hafi umvafið Telmu í kvöldfrétt- unum gat hún ekki beðið eftir því að komast í hesthúsið og fara úr sparidressinu í drullugallann, eins og hún kallar þann klæðnað sem henni líður best í. „Mér líður best í hestagallan- um og á hestbaki,“ segir Telma, sem eignaðist sinn fyrsta hest þegar hún var kaupakona í sveit á táningsaldri. „Sem barn hafði ég búið í Bandaríkjunum og Hollandi, þar sem ég heimtaði stöðugt að kom- ast á hestbak, þótt enginn væri í hestamennsku í fjölskyldunni. Eftir að við fluttum til Íslands rellaði ég mikið í foreldrum mínum að komast á reiðnámskeið en eignaðist svo þessa hryssu í sveitinni. Hana átti ég til tvítugs, að ég seldi hana og var hestlaus hestakona í mörg ár, en mikið á lánshrossum. Í nokkur ár var ég búsett í Brussel þar sem ég stund- aði útreiðar á stórum hrossum, en þegar ég flutti aftur heim keypti ég mér mín eigin hross og hef verið á kafi í hestamennskunni síðan,“ segir Telma, sem lét gaml- an draum rætast í fyrra þegar hún keypti sér keppnishestinn Kol frá Kjarnholtum. „Ég hef þá trú að maður eigi að fylgja draumum sínum eftir og langaði að prófa. Því er ég nú á gamals aldri farin að spreyta mig á keppni í smáum stíl, þótt ég ætli mér ekki í atvinnumennsk- una héðan af,“ segir Telma hlát- urmild og vill síður en svo gorta af afbragðsárangri á innanfélags- mótum sem hún hefur tekið þátt í. „Ég tók fyrst þátt í kvennatölti á ís í lægsta byrjendaflokki og gekk býsna vel; lenti í öðru sæti og var afar stolt af mínum hesti. Síðan hef ég unnið mót og einnig náð að klúðra keppni alveg stór- kostlega, en maður lærir af þessu öllu saman og bara gaman að vera með. Hesturinn var slæmur í baki Best á fáki fráum Telma L. Tómasson var ekki nema tveggja ára þegar hún strauk að heiman á fyrsta hestinum sínum og hélt út á hraðbrautina þar sem hún bjó í Bandaríkjunum. Fákurinn sá var reyndar úr plasti og á hjólum, en hestabakterían er Telmu í blóð borin. Þórdís Lilja Gunnars- dóttir hitti Telmu, sem nýlega tók við stöðu útgáfu- og markaðsstjóra hestatímaritsins Eiðfaxa. F í t o n / S Í A Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00 Micra Ver› 1.490.000.- Me› nagladekkjum. Sjálfskiptur, 6 diska geislaspilari, lyklalaus, sjálfvirkar rú›uflurrkur. MICRA NISSAN SÆTUST! SKIPT_um væntingar HESTUR ER EKKI BARA HESTUR Telma er hestakona af lífi og sál, nýlega búin að fá sér keppnishest og sigrar nú og tapar til skiptis á innanfélagsmótum, sér til skemmtunar. Hún ætlar sér stóra hluti með elsta starfandi tímariti hestamanna; Eiðfaxa, eins og sjá má á nýjasta tölublaðinu, en Eiðfaxi á sér þúsundir lesenda um allan heim. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN þegar leið á síðasta vetur og þurfti því að hvíla hann. Ég hygg að hann sé búinn að ná sér og hlakka til vetrarins.“ Hestur er ekki bara hestur Hestamennskan á hug Telmu allan og þótt hún njóti stundum aðstoð- ar eiginmanns síns, Karls Óskars- sonar kvikmyndagerðarmanns, er hún að mestu ein í hestunum þar sem atvinnan dregur húsbóndann oft til útlanda. „Börnin mín fara sjaldan á bak en maðurinn minn hefur hins vegar fylgt mér ótrúlega vel eftir miðað við að þetta er mitt áhuga- mál. Ekki er sjálfgefið að allir í fjölskyldunni hafi sama áhugamál en skemmtilegt þegar svo er því sportið er tímafrekt og því fylgir mikil og ánægjuleg útivist,“ segir Telma, sem hefur í nógu að snúast að hreyfa þriggja hesta stóð, allt að fimm sinnum í viku. „Hestamönnum þykir nú ekki merkilegt að eiga þrjá hesta en fyrir mig er þetta dágott því hrossin þarf að hreyfa reglulega, eigi þau að vera í góðu formi, ekki síst keppnishestar. Í keppni er ég rétt að fikra mig áfram en ég á góða að og umgengst hestamenn sem hafa áratugareynslu og eru örlátir á visku sína,“ segir Telma glöð í bragði. „Samband milli hesta og manna er bæði sérstakt og fagurt. Það verður að ástríðu og þótt ég sé forfallin hestaáhugamanneskja er ég alls ekki verst. Margt hestafólk lifir varla daginn af nema tala um hesta, sinna þeim og vera í kring- um þá. Margir alast upp við hesta- mennsku og það á við um marga af okkar fremstu knöpum. Ég held að manneskjunni sé nauðsynlegt eitthvert samneyti við dýr. Hest- ar eru næmar skepnum og maður þarf að vera næmur í kringum þá; læra að lesa þá, tengjast þeim og vita hvernig maður nær fram því besta. Hestar vilja þjóna og knapinn þarf að vera leiðtogi. Þá fyrst fara hlutirnir að gerast, þegar hestur og maður skilja hvor annan,“ segir Telma, sem eins og margir hestamenn, hefur tengst hestum sínum tilfinningaböndum. „Hestar verða vinir manns, en þeir tengjast einnig vináttubönd- um sín á milli og hafa mikil sam- skipti hvor við annan sem gaman er að stúdera. Hestur er heldur ekki bara hestur, heldur hefur hver þeirra sinn einstaka karakt- er, skap, hæfileika og líkamsbygg- ingu, og því alltaf eins og að kynn- ast nýrri manneskju að setjast bak nýjum hesti.“ Leikið sér í vinnunni Á haustdögum tók Telma við sta- rfi útgáfu- og markaðsstjóra Eið- faxa. Í nýútkomnu tölublaði þess gamalgróna tímarits má strax sjá að tekið hefur verið til hendinni. „Ég hafði lengi velt því fyrir mér hvernig ég gæti sameinað áhugamál og atvinnu. Eiðfaxi var kjörinn vettvangur,“ segir Telma en Eiðfaxi var stofnaður árið 1977 af hugsjónamönnum í hesta- mennsku. „Hér hefur öflugt starf verið unnið í gegnum tíðina og hér hitti ég fyrir mjög hæft starfsfólk sem hefur yfirburðaþekkingu á öllu sem tengist íslenska hestinum. Það sem ég hef einkum fram að færa er reynsla mín af fjölmiðlastarfi, sem svo blandast áhuga á hestum. Ég er því ein af þeim heppnu sem geta verið að leika sér í vinnunni,“ segir Telma hláturmild. „Við höfum nú þegar gert spennandi útlitsbreytingar á blað- „Hestar verða vinir manns en þeir tengjast einnig vináttuböndum sín á milli og hafa mikil samskipti hver við annan sem gaman er að stúdera.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.