Fréttablaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 2
2 6. nóvember 2005 SUNNUDAGUR
VERALDAR“
Ó
lafur G
unnarsson, rithöfundur
„BESTA BÓKVERALDAR“
www.jpv.is
SPURNING DAGSINS
Logi Bergmann, geturðu betur
á Stöð 2?
„Já, er ekki alltaf hægt að geta betur?“
Logi Bergmann Eiðsson mun í desember
byrja með nýjan spurningaþátt á Stöð 2 en
hann var lengi spyrill í Gettu betur.
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
ARGENTÍNA, AP Leiðtogar Ameríku-
ríkja luku tveggja daga fundi sínum
í argentínska sumardvalarstaðnum
Mar del Plata í gær án þess að lausn
fyndist á deilu um stofnun frí-
verslunarsvæðis sem næði til alls
heimshlutans, frá norðri til suðurs.
Ófriðsamleg fjöldamótmæli settu
mark sitt á fundinn.
Brasilíski forsetinn Luiz Inacio
Lula da Silva sagði að frekari við-
ræður um að aflétta viðskiptahöml-
um frá Alaska til Eldlands frest-
uðust fram til næstu viðræðulotu
um frjálsari heimsviðskipti, en hún
fer fram á vegum Heimsviðskipta-
stofnunarinnar (WTO) í Hong Kong
í desember.
Fjöldamótmæli eru orðin fastur
fylgifiskur Ameríkuleiðtogafunda,
sérstaklega þegar aukið viðskipta-
frelsi og stefna Bandaríkjanna er á
dagskrá. Síðasti fundur, sem fram
fór í Monterrey í Mexíkó fyrir
tveimur árum, kafnaði næstum í
götumótmælum gegn Bush Banda-
ríkjaforseta.
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
lýsti hinn áformaða Ameríkufrí-
verslunaramning FTAA dauðan á
fjölmennum útifundi á föstudag.
Vicente Fox Mexíkóforseti var
ósáttur við framgöngu Chavez.
Ekkert land yrði neytt til þátttöku í
frjálsari milliríkjaviðskiptum.
- aa
Leiðtogafundi Ameríkuríkja lauk í gær:
Engin sátt um fríverslun
GEGN BUSH Mótmælandi íklæddur vesti með áletruninni „stöðvum Bush“ brýtur rúðu á
leiðtogafundarstaðnum í Argentínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PRÓFKJÖR Júlíus Vífill Ingvarsson
stefndi á annað sætið í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hann lenti í fimmta sæti í kjör-
inu. Hann viður-
kenndi að vissu-
lega hefði verið
stefnt hærra en
sagðist una sáttur
við sitt. „Það er
nýlunda að borg-
arfulltrúi segi sig
úr borgarstjórn
en bjóði sig aftur
fram þannig að
þar hefur ákveð-
ið blað verið brotið,“ sagði hann og
var þess fullviss að sá listi sem nú
væri að mótast yrði sigurstrangleg-
ur. „Niðurstaðan veldur mér engum
sérstökum vonbrigðum. Það sem
mestu máli skiptir er að Sjálfstæð-
isflokkurinn bjóði fram sterkan
lista með góðu fólki.“ ■
Júlíus Vífill í fimmta sæti:
Engin sérstök
vonbrigði
JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
1. sæti Hermann Jón Tómasson
278 atkvæði í 1. sæti
2. sæti Sigrún Stefánsdóttir
168 atkvæði í 1.-2. sæti
3. sæti Helena Þuríður Karlsdóttir
141 atkvæði í 1.-3 sæti
4. sæti Ásgeir Magnússon
151 atkvæði í 1.-4. sæti
NIÐURSTAÐA PRÓFKJÖRS SAMFYLKING-
ARINNAR Á AKUREYRI
411 atkvæði voru greidd í prófkjörinu. Þar
af voru 396 gild, en 17 ógild.
SAMFYLKING
PRÓFKJÖR Sif Sigfúsdóttir var sam-
kvæmt síðustu tölum í áttunda
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík fyrir
sveitastjórnar-
kosningarnar í
vor.
Hún sagði
úrslitin koma
sér á óvart. „Ég
er mjög stolt af
því að fá að vera
hluti af þessari
liðsheild,“ sagði
hún. „Þetta kemur mér á óvart. Ég
var ekki með kosningaskrifstofu
en vinir og vandamenn unnu gott
starf,“ útskýrði Sif en sagðist þó
vera með báða fæturna á jörðinni.
„Mig langar til að vinna við þetta
og þess vegna bauð ég mig fram.“
- fgg
Sif Sigfúsdóttir í áttunda sæti:
Úrslitin koma
á óvart
SIF SIGFÚSDÓTTIR
AUGLÝSINGAR Auglýsingar verslana
um að þær felli niður virðisauka-
skatt af vörum sínum eru blekkj-
andi fyrir viðskiptavini segir Ind-
riði H. Þorláksson ríkisskattstjóri.
Verslanir hafa undanfarin
misseri gert meira af því að aug-
lýsa tilboðsdaga sína með þeim
hætti að virðisaukaskattur sé
felldur niður af vörum. Þrátt fyrir
að oft sé tilgreint með minna letri
að virðisaukaskattur sé eftir sem
áður greiddur af vörum telur Ind-
riði um blekkingu að ræða þar
sem auglýsingar telji fólki trú um
að hægt sé að sleppa því að borga
skattinn. ■
Auglýsingar verslana:
Viðskiptavinir
blekktir
PRÓFKJÖR „Mér þykir þessi útkoma
vera glæsileg því ég er að stíga
mín fyrstu skref í borgarpólitík-
inni og á margt eftir ólært,“ segir
Gísli Marteinn Baldursson. Gísli
hafnaði í þriðja sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hann sóttist eftir fyrsta sæti á
listanum en beið lægri hlut fyrir
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni.
„Ég óska Vilhjálmi hjartan-
lega til hamingju með glæsileg-
an sigur í prófkjörinu. Það sýnir
auðvitað styrk hans að hafa feng-
ið þennan fjölda atkvæða,“ segir
Gísli Marteinn. Hann segir að á
bak við framboð sitt sé grasrót-
arhreyfing fólks á öllum aldri
sem vinna vilji fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn. Hann telur að setja
verði fram nýjar hugmyndir og
tefla fram krafti nýrrar kynslóð-
ar. „Ég akvað að fara fram gegn
þessum reynda stjórnmálaskör-
ungi til þess að koma þessum
hugmyndum á framfæri,“ segir
Gísli Marteinn.
„Ég held að þetta sé upphaf
þeirrar leiðar sem við erum á og
mun vonandi leiða okkur til sig-
urs í kosningunum í vor,“ segir
Hanna Birna Kristjánsdóttir en
hún mun sitja í öðru sæti listans
á milli þeirra Vilhjálms og Gísla.
Gunnar Helgi Kristinsson stjórn-
málafræðiprófessor segir Hönnu
Birnu vera hinn raunverulega
sigurvegara í prófkjörinu því
henni hafi tekist að komast að á
sínum eigin forsendum.
„Það er alveg greinilegt að það
er mikill hugur í sjálfstæðisfólki,
ég hef fundið það allan tímann,“
segir Hanna Birna. „Ég óska
Vilhjálmi sérstaklega með þessi
úrslit og Gísla Marteini einnig en
hann hefur með þessu skipað sér
í forystusveit sjálfstæðismanna í
borginni.“
saj@frettabladid.is
Hanna Birna sigur-
vegari prófkjörsins
Hanna Birna Kristjánsdóttir er í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins til borgar-
stjórnarkosninga. Gísli Marteinn Baldursson beið lægri hlut fyrir Vilhjálmi Þ.
Vilhjálmssyni. Hann telur þörf á að tefla fram krafti yngri kynslóðanna.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í REYKJAVÍK*
1. sæti Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 2.373 atkvæði í 1. sæti 56,4%
2. sæti Hanna Birna Kristjánsdóttir 2.281 atkvæði í 1.-2. sæti 54,2%
3. sæti Gísli Marteinn Baldursson 2.125 atkvæði í 1.-3. sæti 50,5%
4. sæti Kjartan Magnússon 2.278 atkvæði í 1.-4. sæti 54,2%
5. sæti Júlíus Vífill Ingvarsson 2.127 atkvæði í 1.-5. sæti 50,6%
6. sæti Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 2.413 atkvæði í 1.-6 sæti 57,4%
7. sæti Jórunn Frímannsdóttir 2.334 atkvæði í 1.-9. sæti 55,5%
8. sæti Sif Sigfúsdóttir 1.948 atkvæði í 1.-9. sæti 46,3%
9. sæti Bolli Thoroddsen 2.047 atkvæði í 1.-9. sæti 48,7%
10. sæti Marta Guðjónsdóttir 1.752 atkvæði í 1.-9. sæti 41,7%
11. sæti Kristján Guðmundsson 1.398 atkvæði í 1.-9. sæti 33,2%
12. sæti Ragnar Sær Ragnarsson 1.325 atkvæði í 1.-9. sæti 31,5%
13. sæti Björn Gíslason 1.033 atkvæði í 1.-9. sæti 24,6%
14. sæti Jóhann Páll Símonarson 849 atkvæði í 1.-9. sæti 20,2%
15. sæti Örn Sigurðsson 734 atkvæði í 1.-9. sæti 17,5%
*Þegar talin höfðu verið 4.206 atkvæði
Keyrt á hross Lögreglunni á Egilsstöð-
um barst tilkynning um að keyrt hefði
verið á hross á Þjóðvegi 1 við Skriðdal
rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Höfðu
nokkrir hestar sloppið út fyrir girðingu
og var verið að setja þá aftur inn þegar
slysið átti sér stað. Þurfti að aflífa hrossið
en ökumaðurinn slapp ómeiddur. Var
bíllinn óökufær eftir atvikið.
LÖGREGLA
PRÓFKJÖR Hermann Jón Tómasson,
áfangastjóri Verkmenntaskólans
á Akureyri og varabæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar á Akureyri,
vann afgerandi sigur í prófkjöri
flokksins í gær vegna sveitar-
stjórnarkosninganna á næsta ári.
Hlaut hann alls 278 atkvæði í
fyrsta sæti en Hermann Óskars-
son, sem einnig sóttist eftir efsta
sætinu, fékk 70 atkvæði í það sæti.
Sigrún Stefánsdóttir varð í
öðru sæti í prófkjörinu með 168
atkvæði í fyrsta og annað sæti og
Helena Þ. Karlsdóttir varð í þriðja
sæti með 141 atkvæði í fyrsta til
þriðja sæti.
Margrét Kristín Helgadóttir
hlaut 200 atkvæði í fyrsta til fjórða
sæti en reglur prófkjörsins kváðu
á um að tvær konur og tveir karl-
ar skyldu skipa fyrstu fjögur sæti
listans og því mun Ásgeir Magn-
ússon skipa fjórða sætið en hann
fékk 151 atkvæði í fyrsta til fjórða
sæti.
Alls voru 843 á kjörskrá og
fjölgaði flokksfélögum um 17,5
prósent í aðdraganda prófkjörsins.
Lára Stefánsdóttir, formaður kjör-
nefndar, var mjög ánægð með kjör-
sóknina en hún var um 48 prósent.
„Í Hrísey kusu allir félagsmenn
nema einn en þar var mikill áhugi
á prófkjörinu og eru félagsmenn
þar yfir 30 talsins,“ segir Lára. - kk
Konur náðu góðum árangri í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri:
Hermann Jón í fyrsta sæti
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON OG VALA ÁGÚSTA KÁRADÓTTIR Gísli Marteinn og eiginkona
hans Vala Ágústa sjást hér í kosningamiðstöð Gísla Marteins í Aðalstræti í gærkvöldi. Úrslit
voru ekki endanleg en ljóst var hvert stefndi. Gísli hlakkar til að vinna með listanum í
komandi kosningabaráttu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HERMANN TÓMASSON Leiðir lista Samfylk-
ingarinnar á Akureyri í næstu sveitarstjórn-
arkosningum.