Fréttablaðið - 06.11.2005, Page 12

Fréttablaðið - 06.11.2005, Page 12
 6. nóvember 2005 SUNNUDAGUR12 timamot@frettabladid.is ���� ������������ ��������� ����������� ������������������������������ ����������������� ���� ����������������������������� Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Ólöf Baldvins fyrrum bóndi á Brún, Akureyri sem lést á dvalarheimilinu Hlíð, laugardaginn 29. október verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 7. nóvember kl. 13.30. Ingibjörg H. Valgarðsdóttir Jóhann Ólafsson Vordís B. Valgarðsdóttir Steingrímur Svavarsson Sylvía S. Valgarðsdóttir Uni Pétursson Dóróthea K. Valgarðsdóttir Hermína Ó. Valgarðsdóttir Matthías Eiðsson Hjálmfríður Ó. Valgarðsdóttir Ívar Jónsson Friðrika S. Valgarðsdóttir Magnþór Jóhannsson Guðrún P. Valgarðsdóttir Frímann Jóhannsson Hersteinn K. Valgarðsson Ólöf Árnadóttir Benjamín B. Valgarðsson Rósa Kristín Níelsdóttir Hanna B. Valgarðsdóttir Baldur Jónsson Rafn Valgarðsson Halldóra Árnadóttir barnabörn, langömmubörn og fjölskyldur þeirra. Elsku mamma okkar, tengdamamma og amma, Margrét G. Margeirsdóttir áður til heimilis í Stífluseli 9, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 7. nóv. kl. 15.00 Helga Ingibjörg Sigurðardóttir Magnús E. Baldursson Helena Drífa Þorleifsdóttir Atli H. Sæbjörnsson Þórarinn F. Þorleifsson Hugrún Hrönn Þórisdóttir og barnabörn Sími 460 1760 johann@isi.is Skógræktarfélag Íslands gefur út jólakort fyrir þessa jólahátíð sem gefur lands- mönnum kost á að taka þátt í að gera landið skógi vaxið. Á kortinu kemur fram að fyrir hvert selt jólakort gróðursetji félagið eitt tré. Kortið prýðir mynd eftir listakonuna Kjuregej Alex- öndru Argunovu og ber heit- ið Ævintýranótt hjá lífsins tré. Alexandra er fædd í Jakútíu í Síberíu og hefur haldið fjölda sýninga á Íslandi, Rússlandi, Spáni og Svíþjóð. Hægt er að panta kortin á skrifstofu Skóg- ræktarfélags Íslands. Eitt tré á kort ÆVINTÝRANÓTT HJÁ LÍFSINS TRÉ Kortið prýðir mynd eftir síberísku listakonuna Kjure- gej Alexöndru Argunovu. AFMÆLI Einar Bollason hestamaður er 62 ára. Katrín Fjeldsted læknir er 59 ára. FÆDDUST ÞENNAN DAG 1814 Adolphe Sax, fann upp saxófóninn. 1861 James Naismith, fann upp körfuknatt- leik. MERKISATBURÐIR 1860 Abraham Lincoln er kosinn forseti Bandaríkjanna. 1893 Tónskáldið Pjotr Tsjaíkovskí andast í Rússlandi. 1962 Sameinuðu þjóðirnar for- dæma aðskilnaðarstefnuna í Suður-Afríku. 1970 Tunglsteinn sem geim- fararnir í Apollo 11 komu með til jarðar er til sýnis í Þjóðminjasafninu. 1976 Tveir piltar brjótast inn í sportvöruverslun við Hlemm og skjóta nær fimmtíu skotum úr byssum sem þeir finna þar að fólki og bifreiðum. 1983 Þorsteinn Pálsson er kosinn formaður Sjálfstæðisflokks- ins í stað Geirs Hallgríms- sonar sem gefur ekki kost ár sér. CHARLES MUNCH (1891-1968) LÉST ÞENNAN DAG. „Tónlist er list sem lýsir hinu ólýs- anlega.“ CHARLES MUNCH VAR FRANSKUR HLJÓMSVEITARSTJÓRI. „Því er fljótsvarað, ég ætla að bjóða nokkrum vinum og kunningjum heim til mín í einhverjar góðgerðir,“ segir Ólafur Hannibalsson blaðamaður og rithöfund- ur um það hvað hann ætlar að gera í tilefni af sjötugs- afmæli sínu í dag. „Mér finnst gaman að bjóða völdu fólki til mín og eiga með því kvöldstund,“ segir Ólafur, sem síðast hélt upp á stór- afmæli fyrir fjörutíu árum. „Þegar ég var þrítugur bauð ég til mín tíu, tólf manns. Núna verða eitthvað fleiri því ég er búinn að kynnast einhverjum kunningjum síðan,“ segir hann kíminn. Ólafur segist ekki muna mikið eftir afmælisdög- um sínum í gegnum tíðina en minnist þess þó að hafa slátrað tveimur hrossum á fimmtugsafmæli sínu. „Þetta voru ung hross og þau voru étin og húðirnar voru seldar,“ segir Ólaf- ur, sem var á þessum tíma bóndi í Selárdal við Arnar- fjörð. Þá man hann einnig eftir því að hafa boðið krökkum úr götunni sinni í kakó og smákökur á tíu ára afmæli sínu en Ólafur ólst upp á Ísafirði þar sem aldrei var dauð stund að hans mati. Tvær afmælisgjafir eru honum einnig minnisstæð- ar. „Þegar ég var tveggja ára var mér gefin tromma. Hún var nú látin hverfa fljótlega og ég hef ekki séð hana síðan,“ segir Ólafur og hlær að þeirri staðreynd að sumar afmælisgjafir séu heldur í óþökk foreldra. „Þegar ég var fimm ára gáfu Baldvin Halldórs- son leikari og Ólafur nafni minn Helgason mér forláta brunabíl,“ segir Ólafur en hann þótti ákaflega spenn- andi enda fengust yfirleitt ekki leikföng á stríðsárun- um. „Ég minnist þess alltaf við Baldvin þegar fundum okkar ber saman,“ segir Ólafur kíminn. Ólafur segist ekki enn vera búinn að átta sig á því hvort honum finnist það stór tímamót að fylla sjö tugi. „Í mínum huga er ég alltaf sautján og á það til að reyna að haga mér þannig en tekst það kannski ekki alltaf núorðið,“ segir Ólafur, sem skrifar fastan dálk í Frétta- blaðið og vinnur að samn- ingu tveggja bóka. Önnur er ævisaga Bjarna frá Vogi sem var einn af leiðtogum frelsisbaráttunnar á síð- ustu árum hennar og hin er ferðafélagsbók um Ísafjarð- ardjúp sem Ólafur er með í smíðum. Hann vill þó sem minnst segja hvenær megi sjá þær á prenti. Ólafur er einn af stofn- endum Þjóðarhreyfingar- innar. „Hún lifir góðu lífi og er nýbúin að senda frá sér yfirlýsingar um stjórnar- skrármál og fylgist grannt með Íraksmálum,“ segir Ólafur og lofar því að hreyf- ingin láti heyra meira frá sér fljótlega. ÓLAFUR HANNIBALSSON BLAÐAMAÐUR ER SJÖTUGUR Alltaf sautján í huganum FÉKK FORLÁTA BRUNABÍL Það er Ólafi minnisstætt þegar hann fékk brunabíl að gjöf þegar hann varð fimm ára. Þetta þótti flott gjöf enda leikföng ekki á hverju strái á stríðsárunum á Ísafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Á þessum degi árið 1999 neituðu Ástralir í þjóðar- atkvæðagreiðslu að slíta tengsl landsins við breska konungsveldið. Um 55 prósent allra kjósenda vildu ekki skipta Elísabetu Englandsdrottningu út fyrir forseta. Sama útkoma var í öllum fylkjum landsins. Niðurstöðunum var ákaft fagnað af konungssinn- um í Darling-höfn í Sydney þar sem tvö hundruð manns létu tappa fljúga úr kampavínsflöskum. Forsætisráðherrann John Howard sagði að vilji fólksins væri ljós og tillögu um lýðveldi hefði verið hafnað. Leiðtogi minnihlutans, Kim Beazley, lofaði þó að baráttunni fyrir lýðveldi yrði haldið áfram um ókomna tíð. Drottningin heimsótti Ástralíu í mars árið 2000 og gaf þá í skyn í ræðu sinni að henni þætti ekki ólíklegt að henni yrði skipt út fyrir forseta áður en liði á löngu. ÞETTA GERÐIST> 6. NÓVEMBER 1999 Ástralir vilja ekki lýðveldi SYDNEY Í ÁSTRALÍU www.steinsmidjan.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI ANDLÁT Benedikt Þ. Hjarðar lést þriðjudag- inn 25. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Jón Jónsson jarðfræðingur, Smára- flöt 42, Garðabæ, lést laugardag- inn 29. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Óli Sveinbjörn Júlíusson lést mið- vikudaginn 2. nóvember. Sverrir Steindórsson, Grundartjörn 14, Selfossi, lést föstudaginn 4. nóvember. Þorkell Steinsson, Hafnarstræti 16, Akureyri, lést sunnudaginn 30. október.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.