Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.11.2005, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 06.11.2005, Qupperneq 35
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. ÞJÓNUSTU- OG REKSTRARSVIÐ Iðjuþjálfi Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis óskar eftir iðjuþjálfa. Hæfniskröfur: • Starfsréttindi í iðjuþjálfun. • Lipurð í mannlegum samskiptum. • Skipulagshæfileikar. • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu. Helstu verkefni: • Þjónustumat vegna umsókna um félagslega heima- þjónustu. • Þjónustumat vegna umsókna um stuðnings- þjónustu. • Þátttaka í teymisvinnu og samstarf við hagsmuna- félög og íbúa. • Þátttaka í teymisvinnu í tengslum við þekkingar- stöðvaverkefni um málefni aldraðra og fatlaðra. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og Iðjuþjálfafélagi Íslands. Nánari upplýsingar veitir Kristjana Gunnarsdóttir í síma 411 1500, netfang: kristjana.gunnarsdottir@reykjavik.is Umsóknun skal skilað á Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleits, Síðumúla 39 fyrir 22. nóvember næstkomandi. Félagsráðgjafar Lausar eru tvær stöður félagsráðgjafa á Þjónustumiðstöð Breiðholts. Um hlutastörf getur verið að ræða. Önnur staðan er afleysingastaða til 1. nóvember 2006. Hæfniskröfur: • Starfsréttindi í félagsráðgjöf. • Þekking og reynsla í vinnslu meðferðarmála með einstaklinga og fjölskyldur æskileg. • Lipurð í mannlegum samskiptum. • Skipulagshæfileikar. • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu. Helstu verkefni eru: • Almenn félagsráðgjöf í einstaklings- og fjölskyldu- málum. • Vinna með starfsfólki í leik- og grunnskólum. • Þverfaglegt starf í Þjónustumiðstöð Breiðholts. • Samvinna við samstarfsaðila og hagsmunasamtök. Þjónustumiðstöðin er þekkingarstöð í fjölskylduráðgjöf. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa. Nánari upplýsingar veitir Þóra Kemp í síma 411 1300, netfang: thora.kemp@reykjavik.is Umsóknum skal skilað á Þjónustumiðstöð Breiðholts, Álfabakka 12, 109 Reykjavík fyrir 22. nóvember næstkomandi. Eldhús Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða óskar eftir starfsmanni í móttökueldhús Félags- og þjónustu- miðstöðvarinnar að Vesturgötu 7. Starfið felur meðal annars í sér aðstoð í borðsal og móttöku og sölu á aðsendum mat. Óskað er eftir áreiðanlegum starfsmanni með færni í mannlegum samskiptum og ríka þjónustulund. Um er að ræða 50% stöðu. Umsækjandi þyrfti að geta hafið störf 1. desember næstkomandi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og Eflingar - stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Halldóra Guðmundsdóttir í síma 535 2740, netfang: halldora.gudmundsdottir@reykjavik.is Umsóknum skal skilað á Félags- og þjónustu- miðstöðina Vesturgötu 7 fyrir 22. nóvember næstkomandi. Stuðningsfjölskyldur Miðgarður, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness óskar eftir stuðningsfjölskyldum. Stuðningsfjölskyldur vinna öflugt forvarnarstarf til að tryggja og viðhalda festu og öryggi í lífi þeirra barna sem hjá þeim dvelja. Við óskum því eftir liðsinni fólks sem getur annast börn í eina til tvær helgar í mánuði eða eftir nánara samkomulagi. Hafir þú áhuga á mannlegum samskiptum og afar gefandi verkefnum þá er hlutverk stuðningsfjölskyldu áhugavert tækifæri. Greitt er samkvæmt verktakasamningi. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg S. Sæmundsdóttir í síma 411 1400, netfang: ingibjorg.s.saemundsdottir@reykjavik.is Umsóknum skal skilað til Miðgarðs, Þjónustumiðstöðvar Grafarvogs og Kjalarness, Langarima 21, 112 Reykjavík fyrir 22. nóvember næstkomandi. Danskennari/leiðbeinandi Vesturgarður, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar og Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða óska eftir danskennara eða leiðbeinanda í Félags- og þjónustu- miðstöðvarnar að Aflagranda 40 og Vesturgötu 7. Um hlutastarf er að ræða einu sinni til tvisvar í viku á hvorum stað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veita Droplaug Guðnadóttir í síma 562 2571, netfang: droplaug.gudnadottir@reykjavik.is og Halldóra Guðmundsdóttir í síma 535 2740, netfang: halldora.gudmundsdottir@reykjavik.is Umsóknum skal skilað á Félags- og þjónustumiðstöðina Aflagranda 40 eða Félags- og þjónustumiðstöðina Vesturgötu 7 fyrir 22. nóvember næstkomandi. Heimaþjónusta og liðveisla Vesturgarður, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar óskar eftir starfsmönnum til að sinna fjölbreyttum störfum í heimaþjónustu, liðveislu við fólk með fötlun og stuðningi við börn, unglinga og fjölskyldur þeirra. Margvísleg reynsla kemur að notum og njóta starfs- menn leiðsagnar og stuðnings í starfi frá reyndum fag- mönnum. Þjónustumiðstöðin er góður vinnustaður með jákvæðum starfsanda sem býður upp á sveigjanlegan vinnutíma. Hvort sem þú ert að leita að framtíðarstarfi eða vantar vinnu með skóla, hafðu samband og við munum taka vel á móti þér og finna starfshlutfall sem hentar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veita: Droplaug Guðnadóttir, net- fang: droplaug.gudnadottir@reykjavik.is, Helga Eyjólfsdóttir netfang: helga.kristjana.eyjolfsdott- ir@reykjavik.is og Unnur Karlsdóttir, netfang: unnur.karlsdottir@reykjavik.is Síminn hjá okkur er 562 2571. Umsóknum skal skilað á Félags- og þjónustu- miðstöðina Aflagranda 40, 107 Reykjavík fyrir 22. nóvember næstkomandi. Sjúkraliði Vesturgarður, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar óskar eftir sjúkraliða eða starfsmanni vönum umönnun í Félags- og þjónustumiðstöðina að Aflagranda 40. Starfið felur í sér aðstoð við böðun og önnur til- fallandi aðstoð við notendur miðstöðvarinnar. Góð vinnuaðstaða í fallegu húsnæði þar sem rekin er fjölbreytt og lifandi starfsemi. Um er að ræða 50%-70% starf eftir samkomulagi. Vinnutími er fyrir hádegi virka daga nema miðvikudaga. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Droplaug Guðnadóttir í síma 562 2571 netfang: droplaug.gudnadottir@reykjavik.is . Umsóknum skal skilað á Félags- og þjónustumiðstöðina Aflagranda 40, 107 Reykjavík fyrir 22. nóvember næstkomandi. Stuðningsfjölskyldur Vesturgarður, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar óskar eftir stuðningsfjölskyldum. Stuðningsfjölskyldur vinna öflugt forvarnarstarf til að tryggja og viðhalda festu og öryggi í lífi þeirra barna sem hjá þeim dvelja. Við óskum því eftir liðsinni fólks sem getur annast börn í eina til tvær helgar í mánuði eða eftir nánara samkomulagi. Hafir þú áhuga á mannlegum samskiptum og afar gefandi verkefnum þá er hlutverk stuðningsfjölskyldu áhugavert tækifæri. Æskileg búseta á höfuðborgarsvæðinu. Greitt er samkvæmt verktaka- samningi. Nánari upplýsingar veitir Droplaug Guðnadóttir í síma 562-2571 netfang: droplaug.gudnadottir@reykjavik.is Umsóknum skal skilað á Félags- og þjónustumiðstöðina Aflagranda 40, 107 Reykjavík fyrir 22. nóvember næstkomandi. Þjónustu- og rekstrarsvið fer með þjónustu, innkaupamál, upplýsingatækni og rekstur. Nýstofnaðar þjónustumiðstöðvar í hverfum heyra undir sviðið, innkaupa- og rekstrarskrifstofa, skrifstofa þjónustu- og upplýsingatækni, upplýsingatæknimiðstöð og símaver. Áhugaverð störf í boði 25-36 og 45-42 (01-20) Rað-augl 5.11.2005 14:23 Page 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.