Fréttablaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 58
 6. nóvember 2005 SUNNUDAGUR26 Nýjasta plata Skítamórals, Má ég sjá, inniheldur tíu ný lög, þar á meðal Ástin dugir, Hvers vegna?, Má ég sjá og Hún. Þetta er fyrsta platan sem gefin er út undir merkjum Plan B - plötufyr- irtækis Einars Bárðarsonar, guð- föðurs Skítamórals og höfundar slagarans Ertu þá farin? „Þetta er mjög vönduð plata,“ segir Addi Fannar um nýju plöt- una. „Við tókum eins mikinn tíma og við þurftum í gerð hennar. Við vorum að melta þetta fram og til baka og ákváðum að vinna með mörgum upptökumönnum. Ferlið var í heildina eitt og hálft ár miðað við að fyrri [plöturnar] voru unnar á þremur mánuðum. Þessi var öðruvísi fyrir okkur því við tókum allan þann tíma sem okkur sýndist,“ segir Addi og bætir því við að upphaflega hafi platan átt að koma út fyrir síðustu jól. Bakterían komin til að vera Skítamórall hefur í þó nokkurn tíma verið starfandi án fyrrum söngvara síns, Einars Ágústs Víðissonar. Addi segir það vissu- lega hafa verið viðbrigði að missa hann en það hafi samt ekkert verið erfitt án hans. „Við erum núna fjórir upp- runalegir meðlimir í sveitinni og fimmti maðurinn hefur allt- af komið og farið því það hafa nokkrir aðrir verið á undan Ein- ari,“ segir hann. Hljómsveitin Skítamórall var stofnuð á Selfossi árið 1989. Sveitina skipa núna þeir Jóhann Bachman trommur, Arngrímur Fannar Haraldsson gítar, Her- bert Viðarsson bassi og Gunnar Ólason söngvari og gítarleikari. „Við höfum verið til í ein sextán ár og vorum þrettán ára þegar við byrjuðum,“ segir Addi um uppruna Skítamórals. Hann minnist þess ekki að sveitin hafi sett sér sérstök markmið til að byrja með. „Sem unglingar hugs- uðum við dag frá degi eins og krakkarnir gera en við gátum allir séð fyrir okkur að vera tengdir tónlist. Ég efast samt um að við gætum ímyndað okkur að gefa út fimm breiðskífur og vera alltaf sami hópurinn. Það er samt þannig með tónlistarbakteríuna, að ef hún kemur þá er hún til að vera.“ Ekki undanþegnir gagnrýni Addi játar að ýmislegt hafi geng- ið á þessi sextán ár. „Það hefur gengið á öllu sem hægt er að ganga á en það hefur bara styrkt hópinn. Við höfum alltaf náð að halda dampi, til dæmis með mik- illi spilagleði og með því í seinni tíð að spila ekki eins stíft og við gerðum á árum áður. Núna spil- um við þegar okkur sýnist.“ Langt í land að ná Stuðmönnum Hljómsveitin Skítamórall hefur verið á meðal vinsælustu hljómsveita landsins í gegnum árin. Nýverið kom út fimmta plata sveitarinnar og sú fyrsta í sex ár. Freyr Bjarnason ræddi við gítarleikarann Adda Fannar um fyrirbærið Skí- mó. Opið lau.: 11:00 - 16:00 Opið sun.: 13:00 - 16:00 SKÍTAMÓRALL Nýjasta plata Skítamórals heitir Má ég sjá. Addi Fannar er lengst til hægri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.