Tíminn - 25.01.1976, Síða 6
6
TÍMINN
Sunnudagur. 25. janúar 1976.
A Veöramóti i Göngusköröum.
- 111,111 *
Byggt og búið
í gamla daga ,0>
i „Fjörunni” á Akureyri viö konungskomuna.
Eizti hluti Akureyrar um 1910
Auökúlukirkja
Myndirnar t'imm, sem hér
koma fyrir sjónir, eru fengnar
að láni i Minjasafni Akureyrar.
Tvær eru teknar i innbænum á
Akureyri, sem kallaður hefur
verið „Fjaran”. Onnur þeirra
sýnir hús skrýdd vegna komu
Friðriks konungs áttunda árið
1907. Til hægri blasir við hús
Hallgrims Einarssonar ljós-
myndara. E.t.v.hefur hann tek-
ið þessar myndir.
A hinni Akureyrarmyndinni,
sem tekin mun hafa verið um
1910, sér yfir „Fjöruna”, Poll-
inn og út á Oddeyri. Margar
skútur og bátar eru á Pollinum,
Gamla kirkjan sést fyrir miðri
mynd, og yzt til hægri stendur
gamall torfbær. Mikið hefur
breytzt siðan!
Myndin af ferðalagi á hestum
gæti verið tekin fyrir hálfri öld
eða meir, eftir búningi fólksins
að dæma, Getur einhver frætt
um hana? Landslagið i baksýn
er sérkennilegt.
Litum á hina áttstrendu, ein-
kennilegu Auðkúlukirkju i
Húnavatnssýslu. Hún er falleg
og auðkennileg með súlur sinar
og turnskraut. Hún mun hafa
verið reist árið 1895, og er þvi
um áttrætt. Hún var farin að
láta allmikið á sjá, en hlaut við-
gerð og var endurvigð 1974.
Snúum aftur ögn austur á
böginn og virðum fyrir okkur
heyskaparfólkið og gamla
bæinn á Veðramóti i Göngu-
skörðum f Skagafirði. Myndin
tekin um 1892. Fólkið skipar sér
framan við myndarlegt, torf-
þakið timburhús. Samkvæmt
upplýsingum frá Minjasafninu
eru nöfn fólksins sem hér segir
— talið frá vinstri: Jón Sigurðs-
son og Jón Eiriksson vinnu-
menn, með orfin á lofti. bá
Benedikt Böðvarsson (?) og
Gisíi Guðmundsson, einnig
vinnumenn —styðjast fram á
orfin. Siðan fimm vinnukonur
með hrifurnar sinar, þær
Engilráð Guðmundsdóttir, Ingi-
björg Sigurðardóttir, Margrét
Friðgeirsdóttir, Jóhanna (Jóa)
og Ingibjörg. Við bæjardyr:
Guörún Þ. Björnsdóttir, heima-
sæta, giftist siðan Sveinbirni
Jónssyni byggingarmeistara.
Næst húsfreyjan borbjörg
Stefánsdóttir, er heldur á
Björgu Björnsdóttur, sem giftist
Bjarna i Vigur. Við hlið þeirra
stendur húsbóndinn, Björn
Jónsson hreppstjóri, og utar til
hægri Björnsynirnir: Stefán
(dó ungur), Jón, siðar skóla-
stjóri á Sauðárkróki, Sigurður,
siðar bóndi á Veðramóti og Þor-
björn, si"ðarbóndi á Geitaskarði
i Langadal, Húnavatnssýslu.
Þau voru fólksmörg heimilin i
gamla daga, mörg hver. Nú er
óviða þvi að heilsa. Vinnumenn
og vinnukonur úr sögunni og
kaupafólk fátt. Vélar komnar i
staðinn, en heldur eru það
„kuldaleg” skipti!
Fólk á feröalagi