Tíminn - 25.01.1976, Qupperneq 7
TIMINN
7
HELCARSPJALL
Tómas Árnason, alþingismaður:
Byggðasjóður — byggðastefna
Eitt mikilvægasta ákvæöið i
máicfnasamningi núverandi
rikisstjórnar er að verja skuli
2% af útgjöldum á fjárlaga-
frumvarpi til Byggðasjóös.
Stjórnarandstæðingar hafa haft
mikia tilhneigingu til þess að
gera iitið úr þessu ákvæði. En
hvaða áhrif hefur þetta á mögu-
leika Byggðasjóðs til útlána.
Effyist er litið á árið 1975 og
borin saman framlög til
Byggðasjóðs samkvæmt lögum
um Framkvæmdastofnunina
eins og þau voru og siðan sam-
kvæmt ákvæðum stjórnarsamn-
ings núverandi stjórnarflokka
verður útkoman þessi. 1 fyrra
tilfeliinu hefðu framlögin úr
rikissjóði orðið 100 millj. kr. og
skattgjald af álbræðslu i
Straumsvik til Byggðasjóðs 95
millj. kr. eða samtais 195 millj.
kr. Samkvæmt stjórnarsamn-
ingi núverandi stjórnarflokka
voru framlög rikisins til sjóðs-
ins á árinu 1975 860 millj. kr. Lit-
um svo á árið 1976 og gerum
sambæriiegan samanburð. Ef
engin breyting hefði verið gerð
á um framlag úr rikissjóði hefði
það verið áfram 100 miilj. kr.
eins og ákveðið var i lögum um
Framkvæmdastofnun rikisins á
sinum tima. Algjaldið til
Byggðasjóðs myndi nema á
þessu ári um 100 millj. kr. svo
samtais hefði þetta numið 200
millj. kr. A fjárlögum er hins
vegar ákveðið framlag til
Byggðasjóðs á árinu 1976 að
upphæð 1.123 millj. kr.
Það liggur þvi ljóst fyrir, að
árin 1975 og 1976 hefðu framlög
til Byggðasjóðs numið sam-
kvæmt hinnieidriskipan um 400
millj. kr. en samkvæmt ákvæð-
um stjórnarsamningsins um
2000 millj. kr. Þessar tölur eru
algjörlega sambærilegar hvort
tveggja I krónum og sýna
fullkomlega samanburð á þvi
hvernig framiögum var háttaö
til Byggðasjóðsins samkvæmt
lögunum um Framkvæmda-
stofnunina og hvernig þeim er
nú háttað:
Það þarf ekki að eyða mörg-
um orðum að þvi hversu öflugur
Byggðasjóðurinn verður, þegar
hann hefur starfað undir þess-
um kringumstæðum I nokkur
ár. Sjóðurinn þarf ekki að starfa
ákaflega mörg ár til þess að efl-
asl svo mikið, að hann geti i
vaxandi mæii tekið að sér
fjármögnun enn stærri verkefna
heldur en hann hefur þegar
unnið að.
Þá er rétt að vikja að þvi i
stuttu máli, hvernig Byggða-
sjóður hefur varið fjármagni
sinu i stórum dráttum.
Byggðasjóður hefur tekið
verulegan þátt i uppbyggingu
fiskiskipaflotans á undanförn-
um árum, þótt Fiskveiðasjóður
hafi þar forystu. Varið hefir
verið fjármagni til nýsmiði
fiskiskipa, bæði innaniands og
utan, einnig til kaupa á notuðum
fiskiskipum, svo og til endur-
bóta. Þá hefur sjóðurinn lánað
til uppbyggingar fiskvinnslu.
Frystihúsaáætlunin hefur með-
al annars verið fjármögnuð með
verulegu fjármagni úr Byggða-
sjóði, til viðbótar við ián Fisk-
Tómas Arnason.
veiðasjóðs. Þá hefur Byggða-
sjóður einnig lánað til uppbygg-
ingar annarrar fiskvinnsiu, svo
sem saltfiskverkunar, rækju-
vinnslu, skelfisks og fl.
Byggðasjóður hóf á seinasta
ári, talsverðar lánveitingar til
landbúnaðarins, eða samtals
184 millj. kr. Ber þar hæst lán-
veitingar til uppbyggingar
vinnslustöðva landbúnaðarins.
Þá hefur Byggðasjóður alltaf
iánað talsvert til iðnaðar bæði
framleiðsluiðnaðar og þjónustu-
iðnaðar. A siðastliðnu ári mun
sjóðurinn hafa lánaö nær 200
millj. kr. i þessu skyni. Oft hefir
verið um viðbót að ræða við lán
Iðniánasjóðs og Iðnþróunar-
sjóðs.
Þá hafa lánveitingar til
sveitarfélaganna verið veruleg-
ar. Már þar nefna þátttöku
Byggðasjóðs i lánveitingum til
gatnagerðarframkvæmda i
kaupstöðum og kauptúnum,
lánveitingum til uppbyggingar
atvinnulifs á ýmsum stöðum, til
vélvæðingar og fl. mætti nefna.
Svo hefir sjóðurinn lánað til
hitaveituframkvæmda.
Tilgangurinn með stofnun
Byggðasjóðs er fyrst og fremst
sá að spyrna gegn byggðarrösk-
un i landinu, stuðla að endur-
uppbyggingu og eðlilegri þróun
atvinnulifsins á landsbyggðinni.
Hér er um að ræða hreina varn-
arstyrjöld gegn byggðaröskun-
inni, sem er eitt alvarlegasta
þjóðfélagsvandamál sem þjóðin
hefir átt við að striða. Verið er
að rehna að nálgast vandamálið
á jákvæðan hátt meö því meðal
annars að bæta viö fjármögnun
hinna almennu lánasjóða með
viðbótarlánum úr Byggðasjóði,
til þess að cfla og breikka at-
vinnuiifið úti á landi og styrkja
byggðina til sjálfsbjargar. Sið-
ustu ár hefur náðst mjög veiga-
mikill árangur i baráttunni við
byggðaröskunina, hvort sem
metið er á mælikvarða mann-
fjöldaþróunar eða meðaltekna.
Arið 1974 mun vera fyrsta árið
sem fólksfjölgun hefur orðið
meiri úti á landsbyggðinni en i
höfuðstaðnum og á Reykja-
vikursvæðinu. Aðeins á Vest-
fjörðum hefur oröið stöðnun. Ég
er I engum vafa um, að starf-
semi Byggðasjóðs á rikan þátt i
þeirri breytingu til batnaðar,
sm orðiö hefur viða um landið
og hefur stórum aukið á bjart-
sýni fólks um framtið byggðar
sinnar. Ég trúi þvi, að því aðeins
geti þjóðin hagnýtt auðlindir
iandsins, að byggð eflist og
blómgist, ekki aðeins á Stór-
Reykjavikursvæðinu, heldur
einnig sem viðast um landið.
Við skulum muna, að við búum i
harðbýiu landi, þar sem eldgos,
jarðskjálftar, snjóflóö, óveður
og ýmsar fleiri hættur leynast.
Þess vegna er það þýðingar-
mikið að dreifa byggðinni um
landið. Það eykur á öryggi og
sjálfstraust þjóðarinnar i bráð
og lengd.
Fyrir áramótin lýsti forsætis-
ráðherra þvi yfir, að ríkis-
stjórnin myndi leggja fram
frumvarp til laga um breyting-
ar á Framkvæmdastofnun rik-
isins. Með slikri lagasetningu
þarf að lögfesta það ákvæði
stjórnarsamnings núverandi
stjórnarflokka, að 2% af út-
gjöldum á fjárlagafrumvarpi
skuli renna til Byggöasjóðs.
Stefna núverandi ríkisstjórnar
er einmitt m.a. að tryggja
framtið Byggðasjóðs, að efla
Byggðasjóðinn svo að hann geti
i vaxandi mæli tekist á við af-
leiðingarnar af hinni stórkost-
iegu byggðaröskun, ssem orðið
hefir i iandinu á undanförnum
áratugum. Þó margt fleira komi
til er sterkur Byggðasjóður snar
þáttur í öflugri byggðastefnu.
Skipbrotslíf
UM EFTIRÞANKA JÓHÖNNU
Enda þótt dagblöðin flest hafi
birt ritdóma um Eftirþanka Jó-
hönnu eftir Véstein Lúðviksson
og bókarinnar hafi verið getið
auk þess, er þó ýmislegt fleira
hægt um söguna að segja.
Þetta hefur verið kallað
skemmtisaga. Það þykir mér
skritið.
„Eitt skipbrotslif starir i
sorgarsæinn,
sökkvir augum i hjarta sins
eymd,
þess auður er týndur, þess
ákvörðun gleymd.
Getum' við kallað þetta
gamankvæði?
Skemmtun er auðvitað það
sem styttir manni stundir enda
er langsemi gamalt nafn á
leiðindum. Menn eiga sér margs
konar dægradvöl i sambandi við
áhugamál sin og verjast leiðind-
um með mörgu öðru en beinum
gamanmálum eða skemmti-
atriðum.
En þó við gleymum timanum
við að lesa hæstaréttardóma
eða læra Pundið og Einræður
Starkaðar eftir Einar Bene-
diktsson veljum við sliku frem-
ur önnur nöfn en kalla það
skemmtilestur.
Eftirþankar Jóhönnu er
harmsaga úr islenzku þjóðlifi
þessara tima. Sagan er ljót enda
fjallar um nauðganir, mann-
dráp og sjálfsmorð. Ungar dæt-
ur gera uppreisn gegn mæðrum
sinum, hlaupa að heiman og
fullkomna sjálfstæðisbaráttuna
með þvi að láta kerlinguna vita
að þær sofi hjá hverjum sem
þeim sýnist. Þetta eru fyrirbæri
liðandi daga og það er enginn
hlutur eðlilegri en að söguskáld
velji sér þau að viðfangsefni.
Meiriháttar ógæfuspor sem
örlögum valda i þessari sögu
eru stigin i sambandi við
drykkjuskap. Áfengið er sá
mikli ógæfuvaldur sem leggur
lif manna i rústir.
Bæði segir frá stjórnlausum
sidrykkjumönnum og örlaga-
hvörfum við tækifærisdrykkju
þeirra, sem áfengisnautn er
ekki orðin að ástriðu.
Þó er ekki allt sem að er
áfenginu einu um að kenna.
Höfundur er raunsær og veit að
veilurnar búa i eðli okkar hvort
sem atvikin mikla þær eða
hemla. Ræturnar að ógæfu Jó-
hönnu liggja i hégómaskap
móðurinnar. Henni finnst eigin-
maðurinn ekki nógu finn. Hana
langar til að eiga sér finan
heldrimann og Jóhönnu finnst
að hún sé si og æ að minna á
hvaðá það bresti. En henni þyk-
ir vænt um föður sinn og stendur
með honum. Þannig snýzt hún
gegn móður sinni. Föðurmissir-
inn og söknuður eftir hann
breikkar þetta bii. Svo er Jó-
hanna i hópi þeirra sem oft nota
greind sina til að leita að brodd-
um i þvi sem aðrir segja. Það er
mikill vandi að haga orðum sin-
um við þá sem viíja finna móðg-
un i þvi sem sagt er.
Jóhanna á hjálpfýsi i rikum
mæli. Seinni mann sinn finnur
hún I drykkjudái á dyraþrepun-
um og hirðir hann þar. Þetta eru
meðfram almenn brjóstgæði en
þó einkum löngun til að annast
eitthvað ósjálfbjarga sem þarf
verndar og umhyggju við. Sú
löngun býr i mannlegu eðli, —
bæði karla og kvenna — en e.t.v.
almennt rikari hjá konum. En
Jóhanna hefur erft hégómaskap
móður sinnar. Og þegar hún
hefur i meira en 10 ár vakað yfir
þessum aumingja til að verja
hann fyrir ástriðu sinni með
næsta takmörkuðum árangri
reyndar, og hann hættir að
drekka i félagsskap Hvita-
sunnumanna þolir hún það ekki.
Segi hann að trúin hafi frelsað
sig finnst henni það afneitun alls
sem hún hafði á sig lagt og blátt
áfram sagt til að gera litið úr
sér. Og hún má ekki til þess
hugsa að sækja samkomur trú-
bræðranna með manninum þvi
að þá hætti hún að vera það litla
sem hún væri.
Hégómaskapurinn, krafan
um eigin stærð og metnað, lætur
ekki að sér hæða.
Maðurinn vildi vera henni
góður en nú fann hún sig ekki
lengur ábyrga fyrir velferð
hans. Aður var það sæla að sjá
hann koma ódrukkinn heim að
kvöldi. Nú var það jafnvel raun
þvi það var öðrum að þakka og
minnti á þýðingarleysi hennar.
Og hjónabandið varð óþolandi.
Hörður er vesalingur. Það er
hans æviólán að faðir han var
þjösnalegur harðstjóri, sem ætl-
aði að berja i hann hörku. Hann
var sjómaður sem löngum var
að heiman og þegar hann var
heima virðist hann oft hafa ver-
ið undir áhrifum áfengis svo að
þjösnaskapurinn nyti sin. Kynni
Harðar við óþokkann Bubbu i
Tripolibió voru áfall, sem
hrottaskapur föðurins gerðu
verra og varanlegra.
Mágur Harðar stal úr sjálfs
hendi. Hann var dugandi fram-
kvæmdastjóri byggingasam-
vinnufélags og siðan starfsmað-
ur bæjarins og dró sér fé. Hann
flýði land.
Hörður áskaði sig um þrennt:
Dauða bróðursins, fall mágsins
og að hafa barið tengdamóður
sina. Allt gerðist þetta i ölæði.
Og allt er þetta langt að baki.
En þó að Hörður sé drykkju-
maður er hann enn vel verki
farinn og virðist eftirsóttur
starfsmaður. Hann getur valið
um konur til að búa með. Og
hann vinnur hylli barna þeirra
svo að heldur er of en van. En
þetta er ekki nóg. Honum finnst
engin leið til önnur en binda endi
á þetta lif.
Jóhanna veit að hún getur ekki
treyst Herði. Það getur enginn.
Hún finnur að hann langar
meira til að fá lausn frá lifinu en
halda þvi áfram. Henni finnst
það mikill sigur að hann leitar
til hennar um traust og styrk til
að taka inn svefnmeðalið. Og
hún veit að þaðan i frá missir
hún hann ekki til hinna. Hé-
gómaskapurinn gamli er enn að
verki.
Þetta er saga um mikla
ógæfu, — saga um skipbrotslif.
En frásögnin er mannleg og
notaleg — raunar hlýleg. Og hér
er i rauninni verið að kveikja
vita til að sýna og vara við sum-
um þeim blindskerjum sem
mörgum verða til ásteytingar.
H.Kr.