Tíminn - 25.01.1976, Síða 32
METSÖLUBÆKXm
Á ENSKU í
VASABROTI
SÍS-FÓDUR
SUNDAHÖFN
fyrir góéan niai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
-
NÁMSSKRÁRGERÐ FYRIR IÐNFRÆÐSLU:
Búast má við miklum breytingum
— segir Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra
gebé Rvik — Það má búast við
miklum breytingum, sagði Vil-
hjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra, þegar Timinn
innti hann eftir þvi hvað liði
námsskrárgerð fyrir iðn-
fræðslugreinar. — Þessi vinna
hófst s.l. sumar og er nú I fullum
gangi, sagði hann. Eins og
kunnugt er, er námsskrárgerðin
skipulögð af menntamálaráðu-
neytinu og unnin af iðnfræðslu-
ráöi, nema almennar bóknáms-
greinar, sem skólarannsókna-
deild menntamáiaráðuneytisins
sér um. — Þetta er bæði tlma-
frekt og fjárfrekt starf, sagði
menntamálaráðherra, og mörg
ár tekur að Ijúka þvi, en i land-
inu eru fimmtiu til sextiu lög-
giltar iðngreinar. Nauðsyn er að
endurskoöun á námsefni sé allt-
af I gangi og munu niöurstöður
koma smám saman. Auk þessa,
kom menntamálaráðherra inn á
skiptingu landsins I skólahverfi.
Verk- og tæknimenntunar-
nefnd var skipuð af mennta-
málaráðuneytinu I febrúar 1971
til að kanna stöðu tæknimennt-
unar innan skólakerfisins og
eðlileg tengsl hinna ýmsu
fræðslustiga og gera tillögur um
endurbætur I þessum efnum.
Var nefnd þessi óvenju fljót að
ljúka störfum og lá álitsgerð
hennar fyrir I júní 1971. í febrú-
ar 1973, var iðnfræðslulaga-
nefnd skipuð af menntamála-
ráðuneyti og skilaði hún áliti
sinu til ráðuneytisins I desem-
ber 1975. Álitsgerðir þessara
nefnda, hafa slðan verið til úr-
vinnslu hjá menntamálaráðu-
neytinu.
— Á undanförnum árum hefur
ýmsilegt gerzt i framfaraátt á
verkmenntasviðinu, sagði
menntamálaráðherra, og er þar
fyrst að nefna stofnun Tækni-
skólans, sem nú er nýfluttur I
nýtt og rúmgott húsnæði, svo
sem kunnugt er, svo og stofnun
Fiskvinnsluskólans 1971, en
næsta vor útskrifast þaðan
fyrstu fisktæknarnir. Fiskiðn-
aðarmenn hafa áður útskrifazt
þaðan. Svo hófst kennsla I Fjöl-
brautarskólanum I Reykjavik i
haust sem kunnugt er.
— Ákveðið var að koma á
samvinnu með skyldum skólum
á sama stigi, og hefur það þegar
verið gert á fjórum stöðum á
landinu: I Vestmannaeyjum,
Akranesi, Neskaupstað og á
Isafirði, og reynzt með ágætum.
Samvinnan liggur I þvl, að t.d.
kennsla i ýmsum greinum fer
fram sameiginlega hjá iðn-
skóla-, vélskóla-, stýrimanna-
skóla- og jafnvel gagnfræða-
skólanemum sagði mennta-
málaráðherra.
— Að undanförnu hefur
menntamálaráðuneytið haft I
undirbúningi tillögur um nýja
skiptingu landsins i skólahverfi
með tilliti til þeirra breytinga,
sem orðið hafa á ýmsum þátt-
um, sem skólahald varða og
framkvæmd þess. Svo sem
varðandi búsetu og samgöngur,
auk breytinga, sem orðið hafa
eða stefnt er að i skólastarfi.
Undirbúningurinn hófst I sama
mund og unnið var að samningu
frumvarps til laga um skóla-
kerfi og grunnskóla og hefur þvi
frá upphafi verið tekið mið af
þeirri stefnu, sem I þeim lögum
er mörkuð.
1 ljósi þeirrar reynslu, sem
fékkst af hinni fyrstu tillögugerð
fyrir einstök svæði, var gerð
heildaráætlun um skiptingu alls
landsins I skólahverfi með þvi
að endurskoða og fella saman
fyrri tillögur og auka við þær
vegna þeirra héraða eða lands-
hluta þar sem ekki höfðu áður
verið gerðar tillögur um skipan
þessara mála. — Arangur þessa
starfs felst I þeim heildartillög-
um, sem nú er lokið við að
semja og sem væntanlega verða
sendar fræðsluráðum og fleiri
aðilum i febrúar, sagði mennta-
málaráðherra.
— Eitt af nýju atriðunum er
stofnun fræðsluskrifstofa, sem
gert er ráð fyrir i hverju kjör-
dæmi, sagði menntamálaráð-
herra og er nú unnið að uppsetn-
ingu þeirra. Þegar er búið að
skipa fimm fræðslustjóra, og
embætti hins sjötta hefur þegar
auglýst. Starfsvettvangur
fræðsluskrifstofanna I kjör-
dæmum verður að veita ýmiss
konar upplýsingar i kennslu-
fræðilegum efnum, almennar
leiðbeiningar og rekstur skóla.
Sum þau verk, sem þetta
embætti fær, voru áður unnin i
menntamálaráðuneytinu, svo
sem gerð fjárhagsáætlana fyrir
skóla, og endurskoðun reikn-
inga skóla og margt annað.
HÁSKÓLI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA:
ísland með tillögur
um hugsanlega aðild
BREZKA SENDI-
RÁÐIÐ FÆR
HÓTANIR í GEGN
gébé-Rvik — Fasiafulltrúa ls-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum,
hefur verið falið að koma á fram-
færi óformlegum tillögum um
hugsanlega aðild tslands að Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna. Á
fundi rikisstjórnarinnar nýlega lá
fyrir greinargerð frá samstarfs-
hópi, sem hefur haft mál þctta til
athugunar að undanförnu, en
hópurinn lagði til að næsta stig i
könnun málsins af hálfu íslend-
inga yrði að senda forráöamönn-
um Háskóla Sþ erindi samkvæmt
þeim drögum, sem hér verða
upptalin á eftir. Rikisstjórnin
féllst efnislega á tillögur sam-
starf shópsins. t stofnskrá
Háskóla Sameinuðu þjóðanna,
sem samþykkt var á 28. alls-
herjarþingi 1973, er háskólanum
ætlað að sinna viðfangsefnum, er
miklu varða örlög þróun og vel-
ferð mannkyns, og er gert ráð
fyrir að starfsemi hans beinist
ekki sizt að vandamálum hinna
svonefndu þróunarlanda. Skipul.
háskólans er þannig hugsað, að
starfsemin fari fram við visinda-
og kennslustofnanir vlðs vegar
um heim, tengdar háskólanum
meö mismunandi hætti, en aðal-
stöðvar hans eru i Tokyo. Fjár til
starfseminnar á að afla með
frjálsum framlögum aðildarrikja
og annarra aðila. Tekin hefur
verið ákvörðun um þau megin-
svið, sem háskólinn skuli einkum
beina starfsemi sinni að, en
meðal þeirra er nýting og réttlát
skipting náttúruauðlinda. Er nú
unniö að undirbúningi ákvarðana
um einstök viðfangsefni og
stofnanatengsl.
Island lýsti snemma fylgi við
hugmyndina að Háskóla Sþ og lét
i ljósi áhuga á könnun á þátttöku i
starfsemi hans. 1 fyrstu var eink-
um rætt um rannsóknir varðandi
auðlindir hafsins, en siðar
beindist athyglin að rannsóknum
og kennslu varðandi nýtingu
jarðhita.
Athugun á vegum islenzkra
stjórnvalda hefur leitt i ljós að
ástæðan til þess að skilyrði til
rannsókna og kerinslustarfsemi i
jarðhitafræðum megi teljast
heppileg á íslandi er tviþætt.
Annars vegar er mikill og marg-
breytilegur jarðhiti hér á landi og
hins vegar nokkur fjöldi manna
með hagnýta reynslu af rann-
sóknum og fjölþættri nýtingu
jarðhita. tslenzkir jarðhita-
sérfræðingar hafa, sem kunnugt
er, tekið virkan þátt i jarðhita-
verkefnum á vegum Sþ i mörgum
löndum.
1 þeim umræðum sem þegar
hafa farið fram um hugsanlega
starfsemi á sviði jarðhitafræða i
tengslum við Háskóla Sþ hafa
einkum tvær leiðir verið ræddar.
Annars vegar eru hugmyndir um
framhaldsnám i jarðvarmaverk-
fræði til MSc-prófs og er þá haft i
huga tveggja missera nám, auk
rannsóknaverkefnis er taki um'
15—20 vikur.
Hins vegar eru hugmyndir um
þjálfun i rannsóknum varðandi
vinnslu og nýtingu jarðhita með
þátttöku i hagnýtum jarðhita-
fræðilegum verkefnum og
kennslu I tengslum við þau.
Umræður um þessi mál hafa
miðast við þá forsendu, að sú
starfsemi, sem stofnað kynni að
verða til, yrði á vegum islenzkra
stofnana og undir Isl. stjórn.
Er þá og gert ráð fyrir að Is-
lendingar stæðu straum af
meginhluta þess kostnaðar, sem
beint er tengdur innlendri aðstöðu
og mannafla, en hugsanlegt fjár-
framlag frá Háskóla Sþ yrði eink-
um varið til að greiða kostnað
vegna erlendra sérfræðinga og
styrkþega. Jafnframt yrði at-
hugað um þátttöku i hugsanleg-
um stofnkostnaði, sem stæði i
beinu sambandi við hinn al-
þjóðlega þátt starfseminnar.
Aður er lengra er haldið, mun
nauðsynlegt að kanna viðhorf for-
ráðamanna háskóla Sþ um hvort
áhugi sé af háskólans hálfu á
samstarfi við Islendinga á þessu
sviði og þá hvers konar samstarfi
þeir hafa mestan hug á. Að lokum
er áherzla lögð á, að málið er nú
aðeins lagt fyrir í könnunarskyni,
en ekki sem endanlegar tillögur.
Það mun m.a. verða komið undir
nánari athugun á fjárhagshlið
málsins, hvort unnt reynist að
leggja fram formlegar tillögur af
tslands hálfu.
UM SÍAAA
Eins og komiðhefur fram I fréttum, var talsvert um það, að Is-
lenzka sendiráðinu I London bærust hótunarbréf vegna
landhelgismálsins. Ekki hefur brezka sendiráðið I Reykjavik
farið varhluta af hita málsins, en tslendingar eru pennalatir, og
þvi hafa simhringingar verið fleiri en bréfin, sem brezka sendi-
ráðinu hafa borizt. Vegna landhelgismálsins hefur lögregiuvörð-
ur verið við brezka sendiráðið I Reykjavlk eins og það Islenzka I
London. Tlmamynd: Gunnar.