Tíminn - 07.03.1976, Page 32

Tíminn - 07.03.1976, Page 32
fyrirgóéan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAM3ANDSINS - ' ' ~ ■ " BRUGGAR ÍSLENZKT VISKÍ OG JURTALÍKJÖR koma með drykk, sem er ofur- lítið frábruðinn þvi, sem menn þekkja áður. 1 Póllandi hefur hann gefið forskrift að 30 áfengistegund- um, sem flestar eru framleidd- ar. Áfengisútflutningur er Pól- verjum drjúg tekjulind, og eru Islendingar meðal viðskipta- manna þeirra á þvi sem fleiri sviðum. Agros nefnist útflutn- ingsverzlun Pólverja með neyzluvörur, og starfar Polmos i nánum tengslum við það fyrir- tæki. — Lyfjafræðingurinn fer eftir uppskriftum annarra, þegar hann býr til lyf sin, segir dr. Boleslaw Skrzypczak, — ég hef farið minar eigin leiðir og bý til minar eigin uppskriftir. ' Dr. Skrzypczak fór héðan á mánudag og var mjög ánægður með þriðju heimsókn sina hing- að til lands og árangur af starfi sinu hér. SJ Einstæðir foreldrar hyggjast kaupa neyða r- húsnæði FB-Reykjavik. A fundi borgarráðs nú fyrir skömmu var lagt fram bréf frá Félagi einstæðra foreldra, þar sem farið var fram á aðstoð vegna fyrirhugaðra húsa- kaupa félagsins. Beiðninni var visaö til athugunar og untsagnar félagsmálastjóra. Samkvæmt upplýsingum Jóhönnu Kristjónsdóttur for- manns félagsins er hér um að ræða húsnæði, sem hugsað er sem nokkurs konar neyðarhúsnæði handa einstæðum foreldrum um takmarkaðan tima, en einnig er i ráði, að námsfólk gæti fengið þarna inni. Þá er einnig rúm fyrir skrifstofu FEF i þvi húsnæði, sem félagsstjórnin er með i huga, og að lokum er ætlunin, að i húsinu yrði húsvörður, sem annaðist eftirlit. Mætti vel hugsa sér, að þar væri einnig um einstætt foreldri að ræða, sem heföi þá um leið húsnæði fyrir sig og sina. Jóhanna sagði, að hús það, sem hér um ræðir væri i gamla bænum. barna ætti að vera rúm fyrir sex til 7 fjöl- skyldur sem hver um sig hefði eitt herbergi til um- ráða, en eldhús væri sam- eiginlegt. Mjög nauðsynlegt er fyrir félagið aö koma sér upp ein hverri aðstöðu á borð við þetta neyðarhúsnæði, þvf oft koma upp tilfelli, þar sem einstæð foreldri þurfa mjög snögglega á húsnæði að halda, eða geta ekki útvegað sérhúsnæðium skemmrieða lengri tíma. Er þá gott að geta gripið til þessa neyðar- húsnæðis sem bráöa- birgðalausnar. Jóhanna sagði, að skrif- stofa FEF væri nú i leigu- húsnæði, en æskilegt væri að á þvi yrði breyting. Félagið hefur haft uppi ráðagerðir um byggingu ibúða fyrir ein stæða foreldra á Eiðs- grandanum, en þar er ekki hægt að búast við, að um framkvæmdir veröi að ræöa á næstunni, svo aö i milli- tiöinni er sem sagt veriö aö ráðgera aö festa kaup á öðru húsnæði: — Apótekarar áttu alltaf likjör.sem þeir gerðu eftireigin uppskrift, ogbuðu vinum sinum og góðum viðskiptavinum. Það er ekki svo mjög iangt á milli starfs lyfjafræðingsins og þess, sem vinnur að gerð áfengra dry kkja. Svo fórust dr. Boleslaw Skrzypczak orð i viðtali við Timann. Fyrir strið var hann ungur apótekarasonur i Lenzo i Póllandi, sem gekk i mennta- skóla og lærði grisku og latinu og átti að feta i fótspor föður sins og taka við fjölskyldufyrir- tækinu. Aður en styrjöldin skall á, hafði hann hafið lyfjafræði- nám, en atvikin höguðu þvi svo, að starfsvettvangur hans varð hjá pólsku áfengiseinkasölunni, Polmos, en ekki innan um forn- legar krúsir i lyfjabúð föður hans. A striðsárunum var hann þegar farinn að vinna hjá áfengisverzluninni. Hann slapp þrisvar naumlega frá þvi, að nasistar skytu hann til bana ásamt öðrum löndum hans, en i þann tið voru Pólverjar, „Júðar” og hundar lagðir að jöfnu i' hernumdu heimalandi hans. Nú, áratugum siðar, er hann forstöðumaður aðalrannsókna- stofu pólsku áfengisverzlunar- innar i Poznan, en þar er sú deild hennar, sem framleiðir áfengi til útflutnings. Eftir strið lauk Boleslaw Skrzypczak lýfja- fræðináminu og doktorsprófi þrem árum siðar. Arið 1971 kom hann i fyrsta skipti til Islands, samkvæmt til- mælum Jóns Kjartanssonar, forstjóra ATVR, og á heiðurinn af framleiðslu islenzka Tinda- vodkans, sem hann segir, að sé ágætt, hreint vodka, að visu ekki eins gott og vodka wybo- rowa þeirra Pólverjanna. Hann hefur komið hingar aft- ur, og þá varð islenzki sénever- inn og islezkt gin til. Séneverinn er hann sérlega ánæ’gður með, en segirst hafa á tilfinningunni, að ginnið mætti bæta, þótt með þviséhannekkiað segja, að það sé slæmt. Og nú hefur hann unnið að þvi að búa til islenzkt viski, sem hafi sitt sérstaka bragð, og auk þess romm og creme de menthe likjör. Uppskriftir að þessum drykkjum hefur hann nú á reið- um höndum, enda ætlaði hann að vera farinn héðan, en verk- fallið tafði för hans. Einnig gerði hann uppskrift að jurta- likjör, sem e.t.v. verður hafin framleiðsla á. Skrzypczak segir, að islenzka viskiið likist fremur skozku viskii en irsku eða amerisku, þó sé engan veginn ætlunin að likja eftir ákveðinni tegund, enda sé tiigangurinn með framleiðslu nýrrar tegundar ávallt sá að Málefni nýja sjúkrahúss- ins á ísafirði í hnút BH—Reykjavik — Guðmundur Svcinsson, fréttaritari Timans á isafirði, hefur skýrt svo frá, að mikil gremja sé meðal manna vestra vegna framkvæmdaleysis við heilsugæzlustöðina og sjúkra- húsið, sem þar stendur til að reisa, og heilbrigðisráðherrá tók fyrstu skóflustunguna að þann 19. september sl. Miðaði greftri i grunni byggingarinnar vel þar á eftir, en siðustu þrjá mánuðina, eða nánar til tekið siðan i nóvem- berlok, hefur ekkert verið unnið við bygginguna, og hefur dýr- mætur timi farið til spillis. Kvað Guðmundur mönnum að visu ekki bera saman um hindrunina, en flestir vildu þó kenna kerfinu um, i þessu tilfelíi Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar rikisins, FIR. Guðmundur Sveinsson kvað all- an undirbúning verksins hafa lof- að góðu, og samninga við verk- taka gengið greiðlega. Samninga- viðræðum um byggingu á undir- stöðum fyrir kjarnabyggingu lauk um þær mundir, sem skóflu- stungan var tekin. Verktakinn var isfirzkur, Steiniðjan hf., og er Jón Þórðarson byggingameistari framkvæmdastjóri hennar. Þess verður að geta hér, að verktaki er i einu og öllu háður stjórn verkkaupa, sem i þessu til- felli er FIR fyrir hönd ráðuneytis- ins. FIR fær teikningar frá ráðu- neyti, endurskoðar þær og semur siðan beint við verktaka. Vinnan i grunninum gekk vel, að sögn Guðmundar, og þann 20. október var grunnurinn undir kjarnabygginguna tilbúinn fyrir óhindraðan uppslátt. Þennan dag gerðist það, að FIR hefur sam- band við Jón Þórðarson, biður hann að hætta við uppsláttinn, en snúa sér I þess stað að þvi að moka upp úr grunni vestur- og norðurálmu og þjappa botninn aftur. Ástæðan var sögð sú, að fundizt hefðu merki um mold á þessu svæði. Jarðvegsskiptunum lauk i lok nóvember — og þar með fram- kvæmdum við bygginguna. FIR hefur enn ekki veitt leyfi til að hefja vinnu við uppslátt. GOTURNAR EKKI SVO AFLEITAR — segir gatnamálastjóri SJ-Reykjavik— Það hefur orðið áberandi mikið jafnt slit á götum borgarinnar i vetur, enda umhleypingasöm tið, og nagladekk og keðjur hafa verið mikið notuð, sagði Ingi ú. Magnússon gatnamála- stjóri i viðtali við Timann. — Hins vegar er ekki svo mjög mikið af holum, og t.d. mun minna en 1973á sama árstima. Að visu eru holur hér og þar, og e.t.v. ber meira á þeim en ella, vegna þess að vinnu- flokkar hafa ekki komizt jafnóðum til að gera við þær, vegna þess hve tiðarfarið hefur verið slæmt, og siðan vegna verkfallsins. Nú er hinsvegar unnið af kappi að viðgerðum, og starfa við það þrir vinnuflokkar. Það hefur vakið athygli vegfarenda, að slitlag á Miklubrautinni er mjög slitið, og nánast alveg farið af á þeirri akrein, sem nær er borgarmiðju. Hafa menn velt þvi fyrir sér, hvort þetta væri ending öflugs slitlags.sem stóð til aðsetja á Miklubrautina i fyrrasumar og átti aö vera endingargott. Svo var þó ekki, þvi aðeins vannst timi til að setja undirlag, eða svonefnt afréttingarlag ágötuna i fyrrasum- ar. Var það þynnst næst borgarmiðjunni, og þvi er það uppurið þar. Aðsögn gatnamálastjóra verður umrætt slitlag sett á næsta sumar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.