Tíminn - 26.03.1976, Qupperneq 1
Aætlunarstaðir:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
■ hólmur — ;Rif .Súgandafj:
Sjúkra- o
allt land
Simar:
2-60-60 &
2-60-66
leiguflug um
o
Kartöflur
frá AAexíkó
koma
eftir viku
MÓ—Reykjavik. — t næstu
viku mun Islendingum
væntanlega gefast kostur á
aö fá kartöflur frá Mexikó,
en Grænmetisverzlun land-
búnaöarins hefur fest kaup á
150 til 100 lestum af kartöfl-
um þaöan og eru þær
væntanlegar til landsins á
miövikudag. Nú hefur veriö
litið um kartöflur á markaði
hér í nær hálfan mánuö, en
ástæðan fyrir þvi er sú aö
kartöflusendingu frá Pól-
landi hefur seinkaö mjög
vcrulega.
Jóhann Jónsson forstjóri
Grænmetisverzlunarinnar
sagði i viðtali við blaðamann
Timans að kartöflusendingin
frá Póllandi hefði átt að vera
komin hingað i byrjun þess-
arar viku, en vegna frosta i
Póllandi hefði ekki verið
hægt að skipa þeim þar út.
Siðan hefði það verið i fyrra-
dag er frétzt hefði um skip
frá Mexikó sem komið var
með kartöflur til Hollands að
heilbrigðisyfirvöld þar voru
beðin að kanna gæði þeirra
kartaflna. Þegar vottorð lá
fyrir frá þeim um að gæðin
væru fullnægjandi voru
kaupin gerð.
Ekki tókst að fá skipsrúm
fyrir nema 150 til 160 lestir
með þeirri ferð sem næst
kemur til landsins, en Græn-
metisverzlunin hefur fest sér
kaup á meira magni og
kemur það til landsins siðar.
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins:
Slógmjölsverksmiðja
rísi á Reykjanesinu
gébé—Rvik. — Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins hefur gert viða-
miklar tilraunir á þróun nýrrar
aöferöar til framleiðslii á
hýdrólýsötum úr fisklógi og úr-
gangsfiski og gert drög aö
kostnaður- og arðseinisáætlun
fyrir slógmjölsverksmiöju, sem
gert er ráö fyrir að veröi staðsett
á Reykjanesi, með tilliti til athug-
ana á flutningi hráefnis og afuröa
Ogaukbess með tilliti til jarðhita.
Eins og kunnugt er, fellur hér til i
verstöðvum mikið magn af slógi,
sem erfitt er að nýta á hagkvæm-
an hátt. Fiskmjölsverksmiðjur
hafa þó tekiö það til vinnslu meö
öörum fiskúrgangi fyrir lágt
verð, sem þó er of litið til þess aö
raunhæft sé að safna því viö aö-
gerð um borð i yeiðiskipum.
Heildarframleiöslugeta slíkrar
verksmiöju er áætluö ca. 2 þús.
tonn árlega og samkvæmt athug-
unuin, ætti hún aö geta skilaö a 11-
góöum aröi. Rannsóknarstofnun
fiskiönaöarins hefur nýlega gefiö
út nákvæma skýrslu um þessa
nýju aöferð til nýtingar á slógi og
úrgangsfiski, en aö sögn Björns
Dagbjartssonar forstöðumanns
stofnunarinnar er þessi skýrsla
eitt viöamesta verkefni sem
Rannsóknarstofnun fiskiönaöar-
ins hefur tekizt á hendur.
Um magn hráefnis og söluverð-
mæti framleiðslunnar segir i
skýrslu Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins, að til grundvallar
hafi verið lagt magn óslægðs bol-
fisks sem landað var á Reykja-
nessvæðinu á timabilinu 1/10
1973-15/5 1974. Einnig hefur ver-
ið gert ráð fyrir að komið verði
með slóg að landi yfir sumar-
mánuðina, þannig að samanlagt
slóg nái 9 þús. tonnum, sem sam-
svarar 90.000 tonna afla, miöað
við að slóg sé 10% af þyngd fisks-
ins. Haustið 1975 var greitt kr.
0.52 fyrir kg. af slógi, en gert er
ráð fyrir að greitt verði kr. 2.00
pr. kg. fyrir það slóg sem verk-
smiðjan kaupir.
Gert er ráö fyrir stálgrindahúsi
og auk þess að byggt verði utan
um úðaþurrkara utanhúss. Þá er
ráðgert að sækja slógið i stórum
tankbilum, likum þeim er notaöir
eru undir mjólk. 1 verksmiðjunni
yrði búnaður mikill.þ.á.m. tankar
dælur, ýmiss konar vélar og tæki.
1 kostnaðaráætlun var gert ráð
fyrir þrem möguleikum og er
einn þeirra þessi: Óðaþurrkun á
mjölinu, orka fengin með jarð-
gufu og innfluttu jarðgasi.
Heildarstofnkostnaður þessa yrði
238,475 millj. kr. Aætlunin var
gerð vorið og sumarið 1975 og er
upphæðin með tollum og sölu-
skatti. Leitað var upplýsinga og
tilboða i vélar og tæki. Heildar-
reksturskostnaður við fyrrnefnda
stofnáætlun, myndi vera 66.882
millj. kr. samkvæmt áætlun
stofnunarinnar.
Efgerter ráðfyrirað tekiðséá
móti 9 þús. tn. af slógi á ári, sam-
svarar það 1.080 tn af mjöli, mið-
aö við 12% nýtingu. 1 töflu yfir
tekjur og gjöld á 15 árum, i þús-
undum kr. litur þá dæmið þannig
lár 1-I5ár
Söluverðm. 108.000 1.620.000
Rekstrarkosn.
án afskrifta 66.882 1.003.230
41,118 616.770
Heildarframleiðslugeta
verksmiðjunnar er u.þ.b. helm-
ingi meiri á ári en það magn sem
berst af slógi. Væri e.t.v. hægt að
fullnýta verksmiðjuna með
hýdrólýseringu á t.d. spærlingi,
og verður arður á ári þvi verulega
meiri.
VANSKIL Á ORLOFSGREIÐSLUM
TIL PÓSTGÍRÓSTOFUNNAR AAIKIL
FB-Reykjavik. Innborguð upp-
hæö orlofsfjár til Pdstgiróstofu,
orlofsdeildar, er nú orðin 20%
hærrien á sama tima i fyrra, en
þá nam upphæðin 1400 milljón-
um króna. Þrátt fyrir þessa háu
upphæö ber mikið á vanskilum
hjá atvinnurekendum, og van-
skilaskuldir tuga launagreiö-
enda eru komnar til lögfræöings
til innheimtu, samkvæmt upp-
lýsingum Þorgeirs Þorgeirsson-
ar forstöðumanns Póstgiróstof-
unnar.
Timanum barst i gær sam-
þykkt, sem gerð var á fundi
framkvæmdastjórnar Verka-
mannasambands Islands, þar
sem segir að Verkamannasam-
bandið hafi orðið áþreifanlega
vart viö, að hlut atvinnurekenda
séiverulegum vanskilum að þvi
er snertir orlofsgreiðslur til
póstgiróstofu, orlofsdeildar.
Verkamannasambandið skorar
sérstaklega á verkalýðsfélög og
verkafólk almennt, að kynrta
sér innborganir atvinnurekenda
á orlofi til viðtakandi póststofn-
aua .
Jafnframt gerir stjórn Verka-
mannasambandsins þá ein-
dregnu kröfu til orlofsdeildar
Pósts og sima, að hert verði á
innheimtuaðgerðum frá þvi sem
nú er, og telur það ástand óþol-
andi, að hluti atvinnurekenda sé
i margra mánaða vanskilum.
V.
Að lokum segir i samþykkt
fundarins: „Ef ekki verður
skjótlega bætt úr þessu ástandi
er hætta á, að hluti verkafólks
fái ekki orlof greitt á tilskildum
tima.”
Þorgeir Þorgeirsson sagði i
viðtali við Timann, að mikið
bæri á vanskilum, og erfiðlega
hefði gengið að innheimta or-
lofsféð. Bæru menn við fjár-
hagserfiðleikum og litilli fyrir-
greiðslu. Hann sagði, að orlofs-
deiidin sendi reglulega út bréf
til allra stærstu aðila, sem inntu
af hendi orlofsgreiðslurnar með
hvatningaroröum um skil.
— En við verðum að fá á-
kveðnar kvartanir frá launþeg-
um sjálfum áður en við getum
hafiö frekari aðgerðir. Ef þær
bera ekki árangur eru kröfurn-
ar settar I hendur lögfræðings-
ins.
Vanskilaskuldir eru i meöferð
hjá orlofsdeildinni allt frá fyrsta
ári þessarar starfsemi. Hún
hófst 1. mai 1973, og tók þá við af
orlofsmerkjunum, sem menn
gátu framvisaö hjá pósthúsum
og fengið greidd, þegar orlofs-
timabilið hófst.. Launaseðlar
launþega eru einu plöggin, sem
hægteraðfara eftir, þegar gera
á kröfu um orlofsfé, og er þvi
mjög nauösynlegt fyrir allan al-
menning, að fylgjast mjög náiö
með þvi að orlofsgreiðslur séu
tiundaðar á launaseðlunum, og
halda þeim siðan til haga, svo
hægt sé að gera kröfu eftir
þeim, ef vanskil koma upp.
Arsfjórðungslega sendir Póst-
giróstofan út yfirlit til allra
þeirra einstaklinga, sem eiga
inni orlofsfé hjá henni, og hvet-
ur fólk til þess að bera þetta yf-
irlit saman við launaseðlana, til
þess að hafa þannig gætur á þvi,
hvort réttar upphæðir hafa bor-
izt Póstgiróstofunni.
Þegar Póstgiróstofan sendi út
ársfjórðungsyfirlit sitt i febrúar
sl. var það sent til samtals um
52 þúsund einstaklinga. Þorgeir
sagðist búast við þvi, að sú tala
ætti eftir að ná 60 þúsundum,
þegar sföasta yfirlitið yrði sent
út með orlofsávisuninni nú i vor.
Eru það aðeins færri aðilar
heldur en fengu sendingu frá
Póstgiróstofunni i fyrra.
Framhald á bls. 23
HÆTTA ER Á, AD VERKAFÓLK FÁI EKKI
GREITT ORLOF Á TILSKILDUAA TIAAA
SEGIR VERKAAAANNASAAABANDIÐ