Tíminn - 26.03.1976, Síða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 26. marz 1976
Ríkinu afhent Tjalda-
nesheimilið að gjöf
Tónleikar
á Akranesi
GB-Akranesi — Fyrstu áskriftar-
tónleikar T ón 1 ista r f é la gs
Akraness á þessu starfsári verða
i Bióhöllinni 30. marz kl. 21.
A tónleikunum koma fram
Sigriður E. Magnúsdóttir, söng-
kona og Simon Vaughan,
barintónsöngvari. A efnisskránni
eru islenzk, brezk og itölsklög, og
einnig lög eftir Greek, Sibelius,
Sebastian og íiugo Wolf.
Meðleikari þeirra er Jónas
Ingimundarson, pianóleikari.
FB—Reykjavik. — A þriðjudag-
inn afhenti stjórn Styrktarfélags
Tjaldnessheimiiisins heilbrigðis-
ráðuneytinu heimilið að gjöf. Það
var formaður félagsins, Friðfinn-
ur ólafsson, sem afhenti gjöfina,
en Matthias Bjarnason heil-
brigðisráðherra veitti henni við-
töku fyrir hönd þjóðarinnar.
í ræðu sem Friðfinnur Ólafsson
flutti viö afhendinguna i ráð-
herrabústaðnum, gat hann þess,
að fyrir 13 árum hefðu komið
saman 29 manns i i þeim tilgangi
að stofna styrktarfélag fyrir van-
gefin börn og unglinga. A þessum
fyrsta fundi söfnuðust 1800 krón-
ur. Siðan hefur kappsamlega ver-
ið unnið, og árangur hins mikla
starfs Styrktarfélags Tjaldaness-
heimilisins er nú öllum sýnileg,
þar sem heimilið er i Mosfells-
sveit. Er það i dag metið á 60 til 70
miiljönir króna. Var heimilið af-
hent rikinu skuldlaust, og skil-
yrðislaust.
Fljótlega eftir stofnun áður-
nefnds félags var land keypt af
Mosfellskirkju, 3hektarar, og þar
var heimilið reist. Friðfinnur gat
þess, að þeir væru ófáir, sem lagt
hefðu fé af mörkum til heimilis-
ins, bæði félög, félagasamtök og
einstaklingar, en vildi þó leggja
sérstaka áherzlu á það framlag,
sem borizt hefði frá fyrirtæki
Benedikts Magnússonar á Vallá,
en það hefði lagt af mörkum alla
þá steypu, sem þurft hefði til
byggingarinnar.
Þá óskaði Friðfinnur þess, að
allir þeir vistmenn, sem nú eru á
heimilinu fengju að vera þar sem
lengst, og yrðu ekki fluttir þaðan i
brott, nema i samráði við
heimilsstjórn eða aðstandendur
þeirra. Einnig var það skilyrði
sett, að Birgir Finnsson forstöðu-
maður og Hildur Knútsdóttir,
yfirkennari á heimilinu, störfuðu
þar áfram og nytu þeirra kjara
sem þau nú njóta.
Að lokinni ræðu Friðfinns tók
Matthias Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra tilmálsogþakkaði hann
þá gjöf sem stofnendur Tjalda-
nessheimilisins færðu nú þjóö-
inni. Sagðist hann myndi leggja
sitt lóð á vogarskálar, svo allt
yrði gert til þess að þar myndi
fram halda það starf, sem hingað
til hefur verið þar unnið. Sagði
hann að mikið starf væri enn ó-
unnið i sambandi við aðstoð
þroskaheftra hér á landi, en
áfram yrði umiið kappsamlega að
þvi að reyna á allan hátt að bæta
aðstöðu þeirra og þjálfun.
Friðfinnur Ólafsson afhendir
Matthiasi Bjarnasyni gjafa-
skjaliö. (Tm: Gunnar)
LÆKKUN
Fundur samvinnumanna i
Reykjavik, sem haldinn var i
Hamragörðum 24. marz 1976,
mótmælir kröftuglcga þeirri á-
kvörðun borgarstjórnar Ueykja-
vikur að synja KRON um leyfi til
aðstarfrækja stóran vöruinarkað
i húsakynnum Sambands isl.
samvinnufélaga við Elliðavog.
Hin nýja birgðaskemma SÍS
við Elliðavog
i tilkynningu frá fundinum seg-
ir:
,,Með þessari ákvörðun sinni er
meirihlutinn i borgarstjórn
Reykjavikur enn einu sinni að
ganga erinda fámenns kaup-
mannahóps gegn félagsverzlun
og samvinnustarfi. KRON hefur
lagt fram áætlun', sem hvergi hef-
ur verið hrundið, að með fyrir-
huguðum stórmarkaði værihægt
að lækka almennt vöruverð um 6-
10%.
Þá heitir fundurinn á alla sam-
vinnumenn að risa upp og krefj-
ast réttar sins i þessu máli. Fund-
urinn skorar á stjórn KRON að
hefja almenna undirskriftasöfnun
til að hrinda þessari árás á kjör
launafólks og almennings i borg-
inni."
Bankamenn
fá 6% frá
1. marz
en eftir er
að semja
FB-Reykjavik. 1 fréttabréfi
Sambands isl. bankamanna,
sem er nýútkomið, segir að
bankamenn fái 6% iauna-
hækkun frá 1. marz sl, eins
og aðrir launþegar i landinu.
Samningum bankamanna
var sagt upp miðvikudaginn
17. marz sl. Sama dag var
lagt fram tilboð um 6%
launahækkun á grunnlaun
bankamanna ásamt lág-
launabótum. Stjórn og
samninganefnd SIB ákvað
að taka tilboðinu, með eftir-
farandi fyrirvara:
„Stjórn Sambands isl.
bankamanna samþykkir
fyrir sitt leyti tilboð bank-
anna um að frá og með 1.
marz 1976 til 30. júni n.k.
verði laun bankamanna
greidd með 6% — sex prósent
— álagi, auk láglaunabóta.
Stjórnin litur á tilboð þetta
sem leiðréttingu á gildandi
samkomulagi og leggur
áherzlu á að þessi samþvkkt
megi á engan hátt hafa áhrif
á þær viðræður um kjör
bankamanna sem nú eru
hafnar, og undirstrikar að
með þvi viki hún i engu frá
þeim kröfum, sem lagðar
hafa verið fram.”
Dröfn
rannsakar
fyrír
norðan
Mó-Reykjavik — Rann-
sóknarskipiö Dröfn hefur
nýlega lokið rannsóknarleið-
angri um tsafjarðardjúp og
Jökulfirði. Astandið i Isa-
fjarðardjúpi virtist fremur
lélegt og hafa miðin ekki náð
sér eftir verulega veiöi, sem
þar var fyrir tveimur árum.
Hins vegar var ástandið i
Jökulfjöröum allgott og
fengust þar 300 kg af hörpu-
diski i 15 minútna togi.
Leiðangursstjóri var Hrafn-
kell Einarsson.
Nú liggur Dröfn á Akur-
eyri, en i dag fara
leiðangursmennaftur noröur
og hefja rannsóknir á rækju-
miðum fyrir Norðurlandi.
Leiðangursstjóri þar verður
Sólmundur Einarsson.
Piltarn-
ir eru
ennþá
rænu-
lausir
Gsal-Reykjavlk — Liðan
piltanna tveggja, sem slös-
uðust alvarlega I umferðar-
slysi innarlega á Laugavegi
aðfaranótt s.l. sunnudags,
var óbreytt i gærdag. Þeir
voru þá báðir meðvitundar-
lausir.
Menntamálaráðherra:
UPPSÖGN BRAGA
EKKI BYGGÐ
Á RÖNGUM
UPPLÝSINGUM
Inúk á
leiklistarhátíð
í Venezúela
Timanum hefur borizt eftirfar-
andi frá menntamálaráðherra,
Vilhjálmi Hjálmarssyni:
„Vegna endurtekinna
fullyrðinga dr. Braga Jóseps-
sonar, sem birzt hafa i dag-
blööum, um að uppsögn hans úr
starfi deildarstjóra i mennta-
málaráðuneytinu, hafi verið
byggð á röngum upplýsingum frá
ráðuneytisstjóranum, skal þetta
rifjað upp:
1 fréttatilkynningu frá mennta-
málaráðherra, dags. 13. desemb-
er 1974, er getið um ástæöur fyrir
uppsögninni. Eru eingöngu til-
færð atvik, sem áttu sér stað eftir
stjómarskiptin 1974, og aðeins
vitnað til ummæla dr. Braga
Jósepssonar sjálfs. Allt tal um að
uppsögnin hafi verið byggð á
röngum upplýsingum er þvi
mark leysa.
Fleiri missagnir eru i þvi sem
blöð hafa eftir Braga Jósepssyni
en þær skipta minnu.”
SJ-Reykjavík — Indk teik-
hópnum hefur verið boðiö aö
taka þátt i leiklistarhátíð I
Caracas i Venezúela i lok april
og byrjun mai næstkomandi.
Viöfangsefni hátiöarinnar
verður þriðji heimurinn, og
koma þar fram hópar leikhús-
fólks hvaöanæva að úr heim-
inum.
— Þjóðleikhúsið hefur þegið
boðið fyrir sina hönd fyrir Inúk-
flokkinn, en ekki er þó enn ljóst
hvort fjárhagsgrundvöllur
verður til fararinnar, — sagði
Sveinn Einarsson þjóöleikhús-
stjóri, — en ég vona að svo
verði. —
Menntamálaráð Venezúela og
deild Alþjóöa leikhússtofnunar-
innar I Venezúela sendu Inúk-
hópnum boð þetta, en Alþjóða-
leikhússtofnunin og Unesco
standa aö hátiðinni.
— Þetta er mikil
viðurkenning fyrir Inúkhópinn,
sagði Þjóðleikhússtjóri.
Samvinnumenn una ekki vinnubrögðum borgarstjórnar:
STÓRMARKAÐUR VIÐ SUND
ÞÝDDIMIKLAVERÐ-